Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 23 Garða- og Saurbæjarprestakall Garða- og Saurbæjarprestakall Pálmasunnudagur 10. apríl AKRANESKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 10 – gulur dagur Ferming kl. 10.30 Jón Þór Finnbogason Kara Líf Traustadóttir Karl Magnús Kristjánsson Sigurður Brynjarsson Sigurrós Diljá Ingimundardóttir Ferming kl. 13.30 Adam Agnarsson Agla Agnarsdóttir Aldís Birta Ólafsdóttir Amanda Zumberga Aníta Sif Flosadóttir Edda Ósk Vigfúsdóttir Guðjón Hagalín Kristjánsson Lilja Sól Bjarnadóttir Linda Þórarinsdóttir Sævar Hrafn Sævarsson Þorbjörn Tómas Guðmundsson Laugardagur 9. apríl AKRANESKIRKJA Ferming kl. 10.30 Aðalheiður Lára Guðlaugsdóttir Aldís Tara Ísaksdóttir Arnar Páll Sigmarsson Aron Snær Einarsson Björn Jónatan Björnsson Dagný Rós Stefánsdóttir Elín Birna Ármannsdóttir Fróði Hrafn Gíslason Hjálmar Jón Heide Sigfússon Hlynur Jón Heide Sigfússon Ívar Orri Sigurðarson Jenný Lind Hannesdóttir Sara Dís Óskarsdóttir Styrmir Jóhann Ellertsson Þeir félagar Heimir og Þorgeir úr Reykjavík voru í óða önn að laga bát sinn Seley BA á hafnarsvæð- inu í Stykkishólmi þegar fréttarit- ari Skessuhorns rakst á þá í liðinni viku. Báturinn er frá Flateyri en Heimir og Þorgeir segjast sigla á honum sér til skemmtunar en geyma hann í Stykkishólmi yfir vetrartímann. „Nei, þetta er ekk- ert alvarlegt,“ svöruðu þeir spurð- ir hvort eitthvað væri að bátnum. „Við erum bara að laga tjakkinn við flapsana. Hann er ekki að virka svo því þurfum við að kippa því í lag áður en sumarið kviknar,“ sögðu þeir félagar og bættu við: „Nei við erum ekki að fara á strandveiðar þótt báturinn sé skráður sem fiski- bátur, en þó er aldrei að vita, aldrei að segja aldrei.“ af Mikið var um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu sl. miðvikudagskvöld þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Þar kom saman stór hópur listamanna og aðstandenda til að fagna upp- skerunni eftir gróskumikið tón- listarár í skugga heimsfaraldurs. Kynnar á verðlaunahátíðinni voru Guðmundur Felixson og Valgerð- ur Guðnadóttir. Meðal verðlaunahafa má nefna að GusGus átti bestu plötu ársins, Mobile Home, í poppi og Birnir var með plötu ársins, Bushido, í rappi og hipphoppi. Lag ársins í poppi var Mér er drull með FLOTT, Vesturbæjar Beach með BSÍ í rokki og Vogur með Birni í rappi og hipphoppi. Bríet hélt tónlistarvið- burð ársins sem voru útgáfutónleik- ar í Eldborg og einnig var hún valin tónlistarflytjandi ársins. Bjartasta vonin var FLOTT og textahöfund- ur ársins var Teitur Magnússon. Þá var söngkonan Soffía Björg Óðins- dóttir tilnefnd í söng ársins en hún er frá Einarsnesi í Borgarhreppi. Í flokki sígildrar og samtímatón- listar var Borgnesingurinn Anna Þorvaldsdóttir áberandi. Tón- verk hennar, CATAMORPHOS- IS, var valið tónverk ársins og þá var plata hennar og Spektral Quar- tet, Enigma, tilnefnd í flokknum Plata ársins. Reykholtshátíðin í Borgarfirði var tilnefnd í flokknum tónlistarviðburður ársins, hátíðir, en þar sigraði Björk Guðmunds- dóttir með Björk Orkestral, Live from Reykjavík. Þá var Tónleika- röð á barnum Skuggabaldri valin tónlista rviðburður ársins í djass- og blústónlist en fyrir henni stóðu tónlistarmaðurinn Snorri Helga- son og Borgnesingurinn Jón Mýr- dal. Þá var Benedikt Kristjáns- son tilnefndur í flokknum Söngur ársins en Benedikt býr á Akranesi. Í flokknum önnur tónlist átti Brek plötu ársins í þjóðlagatónlist og Emiliana Torrini átti besta lag- ið í opnum flokki með titillaginu Vertu úlfur úr leiksýningunni sem byggð er á sögu Borgnesingsins Héðins Unnsteinssonar. vaks Bátnum klappað fyrir sumarið Bríet vann til tvennra verðlauna á íslensku tónlistarverðlaununum. Hér á 17. júní á Akranesi í fyrra. Ljósm. vaks Íslensku tónlistarverðlaunin afhent í síðustu viku

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.