Feykir - 07.04.2021, Side 3
AFLATÖLUR | Dagana 21. mars til 4. apríl 2021 á Norðurlandi vestra
Drangey SK2 með tæplega 320 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hafrún HU 12 Dragnót 12.892
Hrund HU 15 Handfæri 2.032
Loftur HU 717 Handfæri 1.429
Ólafur Magnússon HU 54 Net 4.205
Sæfari HU 212 Lína 709
Sæunn HU 30 Handfæri 1.492
Viktoría HU 10 Handfæri 111
Alls á Skagaströnd 48.809
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 319.170
Málmey SK 1 Botnvarpa 75.432 Alls á Sauðárkróki 394.602
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 846
Blíðfari HU 52 Handfæri 745
Dagrún HU 121 Net 24.348
Í aflatölunum verða teknar fyrir tvær vikur því síðasta blað, páskablaðið, var unnið fyrr en
vanalega til að koma því í prent fyrr svo blaðið næði inn til allra áskrifenda fyrir páska.
Á Króknum lönduðu aðeins tveir, togararnir Drangey SK 2 og Málmey SK 1, í þremur lönd-
unum. Málmey landaði rúmum 75 tonnum en Drangey landaði rúmum 319 tonnum í tveim
löndunum og var heildaraflinn á Króknum 394.602 kg síðstu tvær vikurnar. Á Skagaströnd voru
hins vegar töluvert fleiri sem sóttu sjóinn, tíu bátar, sem voru samtals með 16 landanir. Það var
Dagrún HU 121 sem var aflahæst með 24.348 kg af þeim 48.809 kg sem komu á land á Skagaströnd
en Dagrún landaði fimm sinnum á þessum tveim vikum. Enginn landaði á Hvammstanga eða
Hofsósi og var því heilarafli á Norðurlandi vestra fyrir viku 12 og 13 samanlagt 443.411 kg. /SG
Á dögunum var úthlutað úr
Sprotasjóði en honum er ætlað
að styðja við þróun og nýjungar
í skólastarfi í leik-, grunn- og
framhaldsskólum. Alls hlutu
42 verkefni styrki að þessu
sinni að upphæð rúmlega
54 milljónir króna. Áherslusvið
sjóðsins að þessu sinni eru á
lærdómssamfélög skóla og
drengi og lestur. Þrjú verk-
efnanna er að finna á
Norðurlandi vestra.
„Umsóknir í Sprotasjóð bera
vitni um nýsköpun, samvinnu
og grósku sem einkennir
íslenska skóla. Þar er gríðarleg-
ur metnaður og vilji til góðra
verka sem mikilvægt er að styðja
við,“ segir Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmála-
ráðherra í tilefni úthlutananna.
Þrjú verkefnanna er að finna
á Norðurlandi vestra, alls yfir
þrjár milljónir króna, og falla í
flokk þvert á skólastig.
Félags- og skólaþjónusta
A-Hún. fékk hæsta styrkinn á
okkar svæði, kr. 1.900.000 fyrir
verkefnið Lærdómssamfélagið í
skólum í Austur Húnavatns-
sýslu. Höfðaskóli, Barnaból,
Blönduskóli, Barnabær, Húna-
vallaskóli og Vallaból.
Fræðsluþjónusta Skagafjarðar
hlaut eina milljón fyrir Leið til
læsis. Árskóli Sauðárkróki,
Varmahlíðarskóli, Grunnskól-
inn austan Vatna, FNV, Leik-
skólinn Ársalir, Leikskólinn
Tröllaborg og Leikskólinn
Birkilundur.
Grunnskólinn austan Vatna
fékk úthlutað 350.000 krónum í
Náttúrulæsi og útikennslu. Leik-
skólinn Tröllaborg og Háskólinn
á Hólum í Hjaltadal. /PF
Sprotasjóður styrkir 42 verkefni
Rúmar þrjár milljónir króna
á Norðurland vestra
Sveitarstjórn Húnaþings
vestra samþykkti á fundi
sínum þann 14. janúar sl. að
skipa starfshóp til að rýna
teikningar fyrir fjölnota rými í
austurenda Íþróttamiðstöðv-
arinnar á Hvammstanga sem
m.a. er ætlað fyrir fólk með
sértækar þarfir og aðstöðu
fyrir keppnislið. Starfshópur-
inn skyldi einnig koma með
hugmyndir að framtíðar-
skipulagi útisvæðis við
sundlaugina.
Á heimasíðu sveitarfélags-
ins kemur fram að helstu
hugmyndirnar starfshópsins
séu eftirfarandi:
Sér búningsklefi og klefi
fyrir fatlað fólk með aðstöðu
fyrir aðstoðarmann (þar sem
gufubað er núna). Hjólastóla-
aðgengi frá anddyri um gang
að sunnanverðu.
Búningsaðstaða – Aðstaða
sem t.d nýtist keppnisliðum.
Eimbað/Gufubaðsklefi
ásamt sturtu verði staðsett á
útisvæði í norðaustur horni
við heita pottinn.
Kaldur pottur verði niður-
grafinn á svipuðum stað og
núverandi kaldur pottur er
staðsettur.
Gæslurými aukið. Við-
bygging til suðurs frá núver-
andi gæslurými til að bæta
öryggi með betri ásýnd yfir
svæðið fyrir starfsfólk.
Geymsluskúr fyrir áhöld
og tæki verði komið fyrir á
svæði undir rennibrautinni.
Sjúkraþjálfun – leitast
verði við að finna aðstöðu
fyrir sjúkraþjálfara í húsnæði
Íþróttamiðstöðvarinnar
Íbúum er gefinn kostur á því
að koma með ábendingar við
tillögur starfshópsins í gegn-
um hnapp á forsíðu heima-
síðunnar. Hægt er að senda
inn ábendingar til og með 8.
apríl nk. /PF
Sundlaugin á Hvammstanga
Ábendingar við fjölnota
rými og útisvæði
ÚT
ÚT
EICS 30
EICS 60
EICS 30
ÚT
ÚT
EI 60
EI 60
EI 60
EICS 60
NL
NL
40,0150,557,5224,0180,0
ÚT
32
,0
30m
Útigeymsla
G
le
rv
eg
gu
r
Búningsaðstaða
Wc
Eimbað
Sturta
Glerveggir
Kaldur potturGæsla
Eimbað og sturta
glerveggir í framhlið
Búningsaðstaða/
Fatlað fólk
Viðb.
Teikning af sundlaug. MYND AF NETINU
Sveitarfélagið Skagaströnd
Tekur við fasteignum
FISK-Seafood
Skagaströnd.is greinir frá því að Sveitarfélagið Skaga-
strönd hefur tekið við fasteignum FISK-Seafood í bænum
en samningur þess efnis var undirritaður 17. mars sl. Um er
að ræða iðnaðarhúsnæði sem hýsti áður gömlu rækju-
vinnsluna, síldarverksmiðjuna á hafnarsvæði ásamt
skrifstofuhúsnæði sem hýsir Greiðslustofu Vinnumála-
stofnunar og skrifstofu sveitarfélagsins.
Með breytingu á eignarhaldi skapast ýmis sóknarfæri fyrir
sveitarfélagið til þess að stuðla að uppbyggingu og styrkingu
innviða ásamt því að hlúa að þeirri mikilvægu starfsemi sem nú
þegar er starfrækt á Skagaströnd.
Fyrsta verkefnið sem er á teikniborðinu hjá sveitarfélaginu er
að búa 26 starfsmönnum Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á
Skagaströnd betri aðbúnað á Túnbrautinni. „Mikilvægi þeirrar
starfsemi hefur heldur betur sýnt sig á Covid tímum, en starfsfólk
býr yfir gríðarlega mikilvægri þekkingu og reynslu.“
Sjá nánar á Skagaströnd.is. /ÓAB