Feykir - 07.04.2021, Síða 10
Allir með Feyki!
Það er mikilvægt að halda úti fjölmiðli sem segir fréttir
og fjallar um fólk af Norðurlandi vestra. Það gerir Feykir.
Áskrifendur eru Feyki nauðsynlegir.
Er ekki upplagt að gerast
áskrifandi að góðu blaði
og fréttum af þínu fólki?
Hafðu samband í síma 455 7171
eða sendu póst á feykir@feykir.is BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS
Feykir auglýsir eftir
afleysinga-blaðamanni
á Feyki og Feyki.is.
Starfið felst í skrifum í
blað og á netmiðil Feykis,
frétta- og efnisöflun ásamt
tilfallandi störfum.
Ráðningartími er frá júní
og fram í ágúst.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald
á íslensku, geta ritað í Word og
talað í síma. Bílpróf nauðsynlegt.
Áhugasamir sendi umsókn á
netfangið: palli@feykir.is fyrir
1. maí nk.
Frekari upplýsingar gefur ritstjóri
í síma 861 9842 og/eða 455 7176.
Feyki
bráðvantar
blaðamann
í sumar
ný
pr
en
t e
hf
.
FERMINGIN MÍN | Þóranna Ásdís Fjólmundsdóttir
Verður fermd á afmælisdaginn sinn
Þóranna Ásdís Fjólmundsdóttir býr í Austurgötu á Hofsósi og foreldrar hennar eru
Fjólmundur Karl Traustason og Linda Rut Magnúsdóttir. Þóranna verður fermd á
afmælisdaginn sinn þann 15. maí, í Hofsóskirkju af sr.
Höllu Rut Stefánsdóttur.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið háttað?
Ég hef farið í fermingarfræðslu hjá Höllu, í þær messur sem
hafa verið í kirkjunni og hjálpað til í sunnudagaskólanum.
Hvar verður veislan? Veislan verður í Höfðaborg.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? Já ég
verð með bæði heita og kalda rétti og býð svo upp á
kökur.
Er búið að ákveða fermingarföt? Já ég fermist í hvítum
kjól og hælaskóm við.
Hver er óska fermingargjöfin? Góð myndavél og ný
þverflauta.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? Ég hef
aldrei velt neitt sérstaklega fyrir mér trúmálum því
kirkjan hefur alltaf verið hluti af lífi mínu. Ég hef farið
í sunnudagaskólann frá því að ég var lítil og geri
enn, því ég fer með litlu systkinin mín og aðstoða í
kirkjunni. Ég mæti í messur og hef einnig sungið með
kirkjukórnum.
FERMINGIN MÍN | Ásgerður Ásta Kjartansdóttir
Renna til Reykjavíkur eftir dressinu
Ásgerður Ásta Kjartansdóttir býr á Barkarstöðum
í Miðfirði og foreldrar hennar eru Erla Ebba
Gunnarsdóttir og Kjartan Guðni Daníelsson. Sr.
Guðni Þór Ólafsson sér um ferminguna en það er
ekki ennþá búið að ákveða daginn.
Hvers vegna valdir þú að fermast? Vegna þess að ég
trúi á Guð.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? Nei, ekkert
mjög mikið.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið
háttað? Við hittumst í safnaðarheimilinu á Melstað og
unnum verkefni.
Hvar verður veislan haldin? Veislan verður haldin í
veislusalnum á Hótel Laugarbakka.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum?
Í matinn verður kjúklinga mexíkósúpa og kökur í
eftirrétt.
Er búið að ákveða fermingarfötin? Nei, en við
förum fljótlega til Reykjavíkur að kaupa þau.
Hver er óska fermingargjöfin? Veit það ekki alveg.
FERMINGIN MÍN |
Jón Konráð Oddgeirsson / Viktoría Ýr Oddgeirsdóttir
Mamma sér um allan undirbúninginn
Jón Konráð og Viktoría Ýr búa
á Hofsósi. Þau verða fermd í
Hofsóskirkju þann 23. maí af
sr. Höllu Rut Stefánsdóttur. For-
eldrar þeirra eru Gréta Dröfn
Jónsdóttir og Jóhann Oddgeir
Jóhannsson.
Hafið þið velt trúmálum mikið fyrir
ykkur? Nei.
Hvernig hefur fermingarundirbún-
ingnum verið háttað? Við erum svo
heppin að mamma sér um allt.
Hvar verður veislan haldin? Í Höfða-
borg.
Er búið að ákveða hvað verður á
matseðlinum? Já, það er búið að
ákveða það.
Er búið að ákveða fermingarfötin? Já.
Hver er óska fermingargjöfin? Jón Konráð óskar sér krossara og Viktoríu Ýri langar í hest.
10 14/2021