Feykir


Feykir - 02.06.2021, Side 9

Feykir - 02.06.2021, Side 9
Ingvar Sighvats um það leyti sem loðnu- ævintýrið átti sér stað. MYND svo skrítinn draum. Honum finnst hann vera að þvælast með fimm hvít umslög í höndunum en þegar hann snýr því síðasta við er það svona rosalega drullugt, alveg eitt drulluhaf. Menn veltu því fyrir sér hvort við fengjum nokkuð þennan dag en endirinn varð sá að við köstuðum fimm sinnum. Við komumst niður með sand- inum í þetta skiptið því ísinn hafði lónað svolítið frá og við komnir þó nokkuð niður með sandi. Þegar við drögum síðasta kastið lítur allt rosalega vel út í fyrstu en svo kemur annar vængurinn upp í nótina, alveg gjörsamlega steyptur af drullu. Þetta hefur líklega komið úr Vötnunum og ísinn rifið drulluna upp úr botninum. Það var engin smá verkun að draga þetta rusl um borð, kostaði heljar vinnu að taka í land til að þrífa þetta djöfulsins drasl,“ segir Ingi og hlær við minn- ingunni. Hann segir að menn hafi grínast með það að þar hafi ráðning draumsins komið fram. Að sögn Inga var loðnuveiði almennt lítil á þessum tíma en þeir sem sóttu loðnu notuðu hana helst til beitu. „Ég held að menn almennt hafi ekki verið að veiða þetta til bræðslu, þó það gæti hafa verið einhvers- staðar á landinu. En þetta var töluverð veiði á svona bölvuðu bátshorni sem er ekki að skafa nema þrjú og hálft tonn eða svo. Þetta var náttúrulega bara rugl. Bátur sem var skráður 3,6 var að taka 5,5 tonn.“ Hann segir uppskeruna hafa verið þó nokkra og rifjar upp að hann hafi keypt sér skó sem kostuðu um 6-700 krónur en ein útborgunin hafi verið um fimm þúsund krónur. „Miðað við það var þetta ágætis peningur sem kom út úr þessu í heildina því aflamagnið var það mikið.“ Hann segir bílstjórann, sem flutti loðnuna upp í verksmiðju, Hauk Haralds, ekki hafa verið hrifinn af þessari aukavinnu. „Hann gat orðið kolvitlaus í skapinu því hann varð að landa þessu á kvöldin. Þetta stóð alveg til miðnættis stundum. Þá var suma dagana farið í þrjár veiðiferðir. Nei, hann var ekkert hrifinn af þessu.“ Vertíðinni lýkur Ingi segir að um það leyti sem þeir eru að hætta þessum veiðiskap hafi ísinn farið að greiðast í sundur og veiðin alveg dottið niður. Hann segir að kannski hafi verið flótti í loðnunni, bæði undan fugli eða jafnvel að smáhvalir hafi verið á ferðinni. En þarna lauk skemmtilegu ævintýri sem ekki hefur verið endurtekið í Skagafirði og hver fór til síns starfa á ný. Maggi gerði út á kolanet á sumrin og voru þeir ýmist með honum, Helgi eða Jón Björn synir, hans en þeir Ingi og Hvati voru í síma- vinnunni en að sögn Inga fóru pabbi hans og Maggi ekki saman til sjós nema rétt til að ná sér í soðið, rauðmaga og annað. Ingi lagði sjómennskuna ekki fyrir sig, var í símavinnunni eins og flestir á Stöðinni og lærði síðar rafvirkjun og hefur verið farsæll sem slíkur. Hann er enn að þó starfshlutfallið sé nokkuð minna en áður, segist hafa gleymt að hætta um sjötugt sem hann varð fyrir þremur árum. Í tilefni þessarar stuttu loðnuvertíðar orti Pétur Sig- hvats til sona sinna, Pálma og Sighvats: Pálmi heppinn sækir sjá og safnar veiðiföngum. En Hvati hefur auga á öllum loðnugöngum. Feykir þakkar Inga fyrir upp- rifjunina á þessari skemmtilegu vertíð og vill hann koma því á framfæri að ef einhver lumaði á mynd af þessum viðburði að hafa samband. Veiðin fór fram í höfninni eða mjög nálægt landi og vakti mikla athygli svo líklegt er að einhver hafi verið með myndavélina á lofti. Hafís inn á Sauðárkrókshöfn vorið 1965 – Gamla bryggjan. MYND: HSK ATB 1842 Kuldalegt var um að litast í apríl 1965. MYND: HSK GH 659 Á hafísárunum kom fyrir að Skagafjörður var ófær bátum en menn reyndu þó að veiða innan um jakana. MYND: HSK MST25 Aflabrögð hafa verið með eindæmum góð á Skaga- strönd í vetur og vor að sögn Alexöndru Jóhannesdóttur, sveitarstjóra, þar sem dragnótarbátar veiddu vel snemmvors þangað til hrygningarstopp var sett á. Eins voru færabátar að veiða ágætlega á sama tíma. Feykir hafði samband við Alexöndru og forvitnaðist um aflabrögð og stemninguna hjá útgerðarmönnum á staðnum. Geturðu sagt mér hvernig til tókst með sölu á grásleppu- hrognum og hveljum? -Verðið var því miður 50% lægra en í fyrra en sala hefur gengið ágætlega. Eru margir sem gera út á strandveiðar? -Það eru um 25 bátar sem gera út á strand- veiðar frá Skagaströnd og þeim hefur farið fjölgandi. Aflabrögð hafa verið nokkuð góð, tíðarfar gott og flestir gátu nýtt alla daga í maímánuði sem er sjald- gæft. Hingað til hefur veður verið stærsta breytan í þeim efnum. Samantekt LS á verði þorsks sem veiddur var á handfæri sýnir að verð í maí er 29% hærra en það var á sama tíma í fyrra sem er ánægjulegt. Hve miklu skipta strandveiðar fyrir Skagaströnd? -Útgerðar- mynstur á Skagaströnd hefur breyst mikið síðustu ár og strandveiðar gríðarlega veiga- mikill þáttur í atvinnulífi sveit- arfélagsins. Eru flestir þeir bátar sem leggja upp frá Skagaströnd í eigu heimamanna eða koma þeir að? -Já, stærsti hlutinn er í eigu heimamanna og hefur bæst í flotann síðustu ár. Hvernig heldur þú að sjómenn á Skagaströnd haldi upp á sjó- mannadaginn í ár? -Ég á von á því að það verði með óhefð- bundnu sniði í ljósi aðstæðna þó svo að það sé farið að birta til! Við fögnum með viðhöfn að ári. Það var verið að stækka at- hafnasvæði hafnarinnar með uppfyllingu. Hvað geturðu sagt mér um það? -Uppfylling- in er afleiðing af dýpkun á hafnarsvæði vegna smábáta- hafnar sem var tekin í notkun 2019. Framkvæmdir við höfn- ina munu klárast í sumar og aðstaða fyrir smábáta orðin hin glæsilegasta. Það kemur síðan í ljós í fyllingu tímans hvernig við nýtum uppfyllinguna en það er ýmislegt spennandi sem hægt er að gera við athafnasvæði líkt og þetta, á besta stað í bænum. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Það er tilefni til þess að óska okkar kæru sjómönn- um innilega til hamingju með daginn. Strandveiðibátum fjölgar á Skagaströnd Aflabrögð hafa verið nokkuð góð VIÐTAL Páll Friðriksson Alexandra, sveitarstjóri Skagastrandar, segir ýmislegt spennandi vera hægt að gera við nýtt athafnasvæði sem varð til með landfyllingu en framkvæmdir munu klárast í sumar. Aðstaða fyrir smábáta er orðin hin glæsilegasta enda fjölgar strandveiðibátum á Skagaströnd. MYNDIR: ÁRNI GEIR INGVARSSON 22/2021 9

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.