Feykir - 02.06.2021, Page 11
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn
VERKFRÆÐISTOFA
BÍLAVERKSTÆÐI
KJÖRSTAÐIR FYRIR
SAMEININGARKOSNINGU
Laugardaginn 5. júní næstkomandi fara fram kosningar um sameiningu
Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins
Skagastrandar.
Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi.
Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna. Einstaklingar geta athugað hvort þeir
séu á kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Kjörfundir fara fram í hverju sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:
Kjörfundur í Blönduósbæ fer fram í norðursal Íþróttamiðstöðvar frá kl. 10 til 22.
Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd fer fram í Fellsborg frá kl. 10 til 22.
Kjörfundur í Húnavatnshreppi fer fram á Húnavöllum frá kl. 11 til 19.
Kjörfundur í Skagabyggð fer fram í Skagabúð frá kl. 12 til 17.
Aðsetur kjörstjórnar verður á viðkomandi kjörstað á kjördag.
Talning atkvæða fer fram á sama stað og hefst eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað.
Verða atkvæða talin og úrslit birt í hverju sveitarfélagi og á hunvetningur.is
Um undirbúning, framkvæmd og frágang sveitarstjórnarkosninga fer eftir lögum um kosningar
til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Kjörstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar
Sérkennilegur afli
Tveir risafiskar í trollið
Karl Hólm og Guðmundur Árnason við lúðuna stóru.
MYND INGÓLFUR SVEINSSON
Karl Hólm átti togvaktina á Drangey SK 1
þennan dag árið 1968. Fór hann upp í brú til
skipstjórans, Guðmundar Árnasonar, og
dvaldi þar um stund. Vel lá á Gvendi sem
sagði: „Það er best að þú togar meðan ég fer í
kaffi.“ Svona hefst upprifjun Ingólfs
Sveinssonar á þeim degi er stærsta lúða sem
hann hefur augum litið var dregin um borð
ásamt öðrum risa fiski.
„Þegar farið er að hífa og Karl orðinn
spenntur fyrir því hvað hefði fiskast sást ekkert
móta fyrir aflanum og allt leit út fyrir að ekkert
væri í trollinu fyrr en pokinn skellur í bakreipið
og verða menn þá varir við smá hreyfingu í
pokanum. Þegar leyst er frá honum kemur í ljós
einhver alstærsta lúða sem menn höfðu séð og
annar fiskur var með lúðunni líka einhver
alstærsti steinbítur sem menn höfðu séð, á
annan metra. Ekkert annað var í trollinu en
þessir tveir fiskar,“ segir Ingólfur sem tók
meðfylgjandi mynd er komið var í land.
Sannkölluð stórlúða þar á ferð. /PF
22/2021 11