Feykir - 02.06.2021, Síða 15
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR :Ráð.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Hvað er
skemmtilegast
við sjómennsk-
una?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : klara@nyprent.is
„Vinnan og
fjölbreytileikinn.“
Ólafur Guðmundsson
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Til stendur að Ólympíuleikar verði haldnir í Tókýó 23. júlí til 8. ágúst í
sumar þrátt fyrir mótmæli heima fyrir vegna Covid-19. Grikkland er
heimaland Ólympíuleikanna en fyrstu nútíma leikarnir voru haldnir
í Grikklandi árið 1896 og sumarólympíuleikar voru haldnir í Aþenu,
höfuðborg Grikklands, árið 2004. Ótrúlegt, en kannski satt, þá saman-
stendur þjóðsöngur Grikklands af 158 vísum. Ekki er vitað til að nokkur
hafi lært þær allar utan að.
Tilvitnun vikunnar
Verum þakklát fólki sem gerir okkur hamingjusöm.
– Marcel Proust
„Að maður er hluti af litlu
samfélagi um borð þar
sem menn setja mikið
traust hver á annan og það
myndast afar góð heild.
Svo þegar vel fiskast getur
stemmingin orðið virkilega
öflug og drífandi. Og ekki
skemmir það að vita hversu
mikið þessi grein skilar í
þjóðarbúið.“
Ægir Örn Ægisson
„Fríið.“
Hjalti Magnússon
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Skrautleg lömb í Hvammshlíð
F
„Það skemmtilegasta við
sjómennskuna er líklega
að vinna með öflugum
mannskap þegar vel veiðist
og auðvitað að koma í land
eftir góðan túr.“
Jónas Rúnar Guðmundsson
Ungversk gúllassúpa
og ís með kantalópu
og súkkulaðisósu
Matgæðingar vikunnar eru Júlía Pálmadóttir Sighvats og eigin-
maður hennar, Óskar Friðrik Sigmarsson. Þau fengu áskorun frá
Birgittu, móður Júlíu, en þau hjónakorn búa í Breiðholti í Reykjavík.
Júlía er uppalin á Sauðárkróki og finnst þeim alltaf jafn gott að
komast í „sveitina“ með börnin til að hitta afa og ömmu.
„Einn af okkar uppáhaldsaðalréttum er ungversk gúllassúpa.
Við gerum oft þessa súpu þegar haldin eru barnaafmæli og þá
skiptir eiginlega engu máli hvað við eldum mikið, það er alltaf
skafið úr pottinum. Hún er alveg einstaklega góð borin fram með
nýju súrdeigsbrauði og smjöri, enn betra ef þeytt smjör er í boði,
svo er gott að bjóða upp á sýrðan rjóma með. Lykilatriðið við þessa
súpu er að hafa gott kjöt og skera allt hráefnið í litla bita þannig að
auðvelt sé að borða súpuna,“ segir Júlía.
Uppskriftin kemur upprunalega frá www.eldhussogur.is og nota
þau hana að mestu leyti eins og fram kemur þar.
AÐALRÉTTUR
Ungversk
gúllassúpa
Uppskrift – fyrir 4 fullorðna
600 g gott nautakjöt
1 rauð paprika, skorin í bita
1 gulur laukur
5-6 meðalstórar kartöflur
(alls ekki meira en 6)
3 meðalstórar gulrætur
1 msk. paprika (krydd)
1½ tsk. cumin
salt og pipar
chili krydd eftir smekk (við
höfum notað chili explosion,
passa að setja bara lítið í einu)
2 msk. góð ólívuolía
1 lítri kjötkraftur
3 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk. smjör
1-2 msk. tómatpúrra
Aðferð: Kjötið er skorið í litla
bita, aðeins minni bita en ef það
væri borðað með hníf og gaffli.
Laukurinn afhýddur og skorinn
smátt og paprika er skorin í smáa
bita – u.þ.b. 1x1 cm. Svo þarf að
flysja kartöflurnar og gulræturnar
og skera í frekar litla bita. Kjöt,
laukur og paprika eru síðan steikt
upp úr góðri olíu í stórum potti,
kryddunum er síðan bætt út í.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Júlía og Óskar Friðrik | Breiðhyltingar
Júlía Pálma og Óskar Friðrik.
AÐSEND MYND
Þetta er steikt þar til kjötið hefur
fengið á sig lit og þá nautakraft-
inum og tómatpúrrunni bætt út í.
Öllu hrært vel saman og hitað
upp að suðu, þegar suðan er
komin upp þá smjöri og hvítlauk
bætt út í. Þetta er síðan allt látið
malla í 50-60 mínútur, þegar um
15 mínútur eru eftir af suðu-
tímanum skal bæta kartöflum og
gulrótum út í súpuna. Súpan er
alls ekki verri þegar hún er hituð
upp, hún er bara svo góð að það er
sjaldnast afgangur til að njóta
þess.
EFTIRRÉTTUR
Ís með kantalópu
og súkkulaðisósu
Einfaldur og góður eftirréttur er
vanilluís með kantalópu melónu
og heitri, storknandi súkkulaði-
sósu sem er heimagerð og afar
einföld.
Vanilluís (tegund sem hver
og einn velur)
Kantalópu melóna
50 g Nóa Síríus 70%
súkkulaði
1 tsk kókosolía
Aðferð: Kantalópan er skorin í
litla bita – minna en 1x1 cm.
Súkkulaðið er hitað yfir vatnsbaði
og kókosolíunni bætt út í, hræra
þetta tvennt vel saman. Ísinn er
svo borinn fram með melónu og
súkkulaði dreift yfir ísinn í mjórri
bunu, eftir stutta stund storknar
það á ísnum og er dásamlega gott
með melónunni.
Verði ykkur að góðu!
Ekki var komið í ljós á hvern Júlía
og Óskar skora áður en Feykir fór
í prentun.
22/2021 15
Vísnagátur Sveins Víkings
Af ást eru þau víst oftast fest.
Í þeim er talið gott að sitja.
Þeir ríku hafa þau reyndar flest.
Í raun til hollra skal þeirra vitja.