Feykir


Feykir - 16.06.2021, Blaðsíða 3

Feykir - 16.06.2021, Blaðsíða 3
Hafðu samband! Hafðu samband í síma 455 7176 eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Sæþór Már Hinriksson, bladamadur@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 615 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 755 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins Textílbókverkasýningin Spor opnuð Bókverkasýningin SPOR | TRACES var opnuð sl. sunnudag í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi en þar er um samsýningu lista- manna frá fimm löndum að ræða. Fyrir verk- efninu fer bókverkahópurinn ARKIR, sem telur ellefu íslenskar listakonur, en leiðir þátt- takenda í sýningunni lágu saman í gegnum áhuga þeirra á þessu tvennu: bókverki og textíl. Á heimasíðu listahópsins ARKIR kemur fram að tvær séu þær listgreinar á Íslandi sem rekja megi í langri sögu og hefðum og telja má til höfuðlista þjóðarinnar, bóklist og textíllist, en sjaldgæft er að þessar listgreinar tvinnist saman. Sum verkanna vísa í íslenskar textílhefðir, vefnað, útsaum, jurtalitun og fleira, auk þess að vera innblásin af náttúru Íslands, menningu kvenna og sögu. Listakonurnar nýta sér tækni og aðferðir textíllista við bókverkagerð og sameina þannig myndlist, hönnun og handverk. Á heimasíðu Heimilisiðnaðarsafnsins kemur fram að sýningin hafi verið sett upp fyrir ári síðan en vegna Covid var ekki hægt að opna hana formlega þá. „Vegna sömu ástæðna drógust gestakomur í safnið verulega saman og varð því að ráði að framlengja sýninguna um eitt ár. Sýningin hefur verið uppfærð, sum verkanna tekin út og önnur ný sett í staðinn.“ /PF Valdimar O. Hermannsson, bæjarstjóri Blönduóss, opnaði sýninguna. MYND: JÓHANNES TORFASON. 24/2021 3 AÐSENT | Sveitarstjórn Skagafjarðar skrifar Ársreikningur Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar fyrir árið 2020 var samþykktur í sveitarstjórn 19. maí sl. Árið var sem kunnugt er um margt sérstakt vegna mikilla áhrifa Covid-19 veirunnar á starfsemi og rekstur sveitarfélagsins. Sveitarstjórnarmenn sýndu að hagsmunir skagfirsks samfélags ganga ávallt framar meiningarmun um einstök pólitísk álitaefni og stóðu þétt saman um öfluga viðspyrnu til að draga úr þeim áhrifum sem afleiðingar Covid-19 hafa haft á skagfirskt samfélag. Með því var leitast við að snúa vörn í sókn með velferð íbúa að leiðarljósi og enn frekari styrkingu samkeppnisfærni þess þegar kemur að búsetu, atvinnu og vellíðan íbúanna. Segja má að þetta hafi tekist vonum framar því árið 2020 var mikið framkvæmdaár hjá sveitarfélaginu og mikil uppbygging átti sér víða stað í héraðinu, stuðlað var að fjölgun bæði tímabundinna og varanlegra starfa með margvíslegum aðgerðum, staðinn var vörður um mikilvæga þjónustu og styrkingu innviða með þeim jákvæðu afleiðingum að íbúum fjölgaði um 50 manns á árinu. Áskoranir og öflug viðbrögð vegna Covid-19 heimsfaraldursins Vissulega hafði Covid-19 heims- faraldurinn veruleg áhrif á rekstur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og má áætla að beinn tekjumissir og aukinn kostnaður á árinu 2020 nemi a.m.k. 110 m.kr. Þrátt fyrir það sýnir ársreikningur ársins 2020 þá ánægjulegu rekstrarniðurstöðu að afkoman er jákvæð um rúmar 46 m.kr. Er það um 88 milljónum króna lakari niðurstaða en upphafleg fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir en þessi niðurstaða verður að teljast afar góður árangur í þeim erfiðu kringumstæðum sem verið hafa af völdum kórónaveirunnar. Þetta sýnir okkur að innviðir og rekstur í Sveitafélaginu Skagafirði eru traust og að á undanförnum árum hafi undirstöður samfélagsins verið byggðar upp á sterkum grunni. Fjárfestingar voru miklar hjá sveitarfélaginu á síðasta ári og námu fjárfestingarhreyfingar samstæðunnar 714 milljónum króna og fjárfestingar í varanlegum rekstarfjármunum námu 688 milljónum króna. Er það um 260 milljónum króna hærri fjárhæð en lagt var upp með í fjárhagsáætlun ársins 2020 en samstaða var um það í sveitarstjórn að auka fjárfestingar og framkvæmdir sem lið í aðgerðum til viðspyrnu vegna áhrifa kórónaveirunnar. Skuldahlutfall samstæðu A- og B-hluta er 123,4% en var árið 2019 117,1%. Skuldaviðmið samstæðunnar nú 90,5% og hækkar lítilega frá árinu 2019 en þá var skuldaviðmiðið 88,2%. Þrátt fyrir það eru skuldahlutfall og skuldaviðmið langt undir þeim mörkum sem lög setja sveitarfélögum og hefur farið ört lækkandi hin síðustu ár. Eignir samstæðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu um síðast liðin áramót um 11,1 milljarði króna en voru í árslok 2019 rúmir 10,1 milljarðar króna og hafa því aukist um tæpar 1000 milljónir króna. Samstaða og samvinna í þágu samfélagsins Þegar litið er til þessara staðreynda er árið 2020 hvað varðar þjónustu, framkvæmdir og rekstur Sveitarfélagsins Skagafjarðar mikill varnarsigur fyrir okkur sem erum í sveitastjórn. Sveitarstjórnarmenn voru sammála um og unnu þétt saman að umfangsmiklum aðgerðum í upphafi heimsfaraldursins með það að markmiði að vernda samfélagið okkar, heimili, fyrirtæki og félagasamtök. Við teljum að árangurinn sýni að metnaðarfullu markmiði hafi verið náð. Stefán Vagn Stefánsson, Gísli Sigurðsson, Bjarni Jónsson, Ólafur Bjarni Haraldsson, Ingibjörg Huld Þórðardóttir, Regína Valdimarsdóttir, Álfhildur Leifsdóttir, Jóhanna Ey Harðardóttir, Axel Kárason. Samstaða og öflug viðspyrna á árinu 2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.