Feykir - 16.06.2021, Blaðsíða 4
Byggðarráð Blönduósbæjar
Vonbrigði með niðurstöðu
sameiningakosninga
Á fundi byggðarráðs
Blönduósbæjar þann 9. júní sl.
lýsti ráðið yfir vonbrigðum
sínum yfir þeirri niðurstöðu
sem varð í íbúakosningu um
sameiningu sveitarfélaga í
Austur-Húnavatnssýslu þar
sem sameining var felld í
tveimur sveitarfélögum,
Skagabyggð og Sveitarfélaginu
Skagaströnd, en samþykkt í
öðrum tveimur, Húnavatns-
hreppi og Blönduósbæ.
Byggðarráðið gleðst þó
yfir afgerandi niðurstöðu
kosningar í Blönduósbæ sem
sýnir að þeirra mati samstöðu
íbúa til framþróunar.
„Mikilvægt er að nýta þá
miklu vinnu sem unnin hefur
verið að undanförnu, til þess
að þróa samfélagið áfram,“
segir í fundargerð ráðsins.
/SMH
Liggurðu á frétt?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is
4 24/2021
Íslandsmótið í hestaíþróttum á Hólum í Hjaltadal
Íslandsmót fullorðinna og
ungmenna í hestaíþróttum
verður haldið á Hólum í
Hjaltadal dagana 30. júní - 4.
júlí nk. Mótið í ár verður með
breyttu sniði frá því sem áður
hefur verið en einungis 30
efstu knapar og hestar á
landinu fá þátttökurétt í hverri
grein. Feykir hafði samband
við Sigurð Heiðar Birgisson,
framkvæmdastjóra mótsins,
og forvitnaðist örlítið um það.
„Nú hafa vissulega orðið
breytingar á því hvernig
Íslandsmóti er háttað. Einungis
30 efstu hestar í fullorðinsflokki
og 20 efstu hestar í ungmenna-
flokki komast inn á mót svo þá
má búast við gríðarlega sterkum
hestum á mótinu. Það verður
gaman að sjá hvernig Íslandsmót
fer fram í þessum búning. Þetta
verður klárlega eitt sterkasta
hestamannamótið sem haldið
verður í sumar,“ segir Sigurður.
Mótshaldarar eru hestamanna-
félögin á Norðurlandi.
Sigurður segir undirbúning
hafa staðið yfir frá því í vetur og
gengið vel. „Það er að mörgu að
huga þegar kemur að
Íslandsmóti og er verið að leggja
lokahönd á undirbúning. Helstu
framkvæmdirnar sem við
höfum farið í er við hringvöllinn
á Hólum en hann var heflaður
niður og nýtt efni sett í hann svo
völlurinn verður í toppstandi
þegar kemur að mótinu.“
Sú nýbreytni hefur orðið í
kringum Íslandsmótið að
knapar komast inn á það eftir
stöðulistum í hverri grein. Þeir
sækja sér einkunnir á mótum
sem haldin hafa verið nú í sumar
en einnig gilda einkunnir frá því
í fyrra. Sigurður segir því allt
stefna í það að gríðarlega öflugir
hestar og knapar muni etja
kappi á Hólum í sumar.
Hólar hafa hýst mörg mót,
stór og smá og virðast standast
allar væntingar hvað mótahald
stórviðburða varðar. Sigurður er
sammála því mati. „Hérna er
frábær aðstaða til mótahalds.
Við höfum rúmgóð hesthús,
getum tekið á móti 250 hestum
á svæðinu. Einnig eru hér
reiðhallir sem knapar geta nýtt
sér til undirbúnings ásamt
góðum reiðvegum. Vellir og
umgjörð í kringum þá er góð
svo að hér er allt til alls fyrir mót
af þessu tagi. Það er alltaf
eitthvað sem maður tekur með
sér og getur lært af og gert betur
næst. Ef það er eitthvað sem við
náum ekki að sinna eins og við
hefðum viljað eru það gisti-
möguleikar á Hólastað,“ segir
Sigurður en fáar íbúðir eru til
leigu fyrir fólk sem kýs þann
kostinn. Aftur á móti, segir
Sigurður, er nægt
tjaldstæðapláss, bæði almenn
tjaldstæði sem og tjaldstæði
með rafmagni. Fyrir áhugasama
má nálgast pöntun á rafmagns-
stæðum inn á skagfirdingur.is
Nú hefur Covid haft áhrif á
keppnishald undanfarin miss-
eri og Landsmóti m.a. frestað á
seinasta ári sem og HM í ár. Er
gert ráð fyrir mikilli þátttöku á
Íslandsmót vegna þess eða
teljið þið að hestamenn
sniðgangi mótið og hvað með
áhorfendur?
„Vegna þessara stöðulista
sem farið er eftir þegar skráning
fer fram verða þetta 320
skráningar í það heila. Við
gerum fastlega ráð fyrir því að
mótið verði vel sótt af knöpum
sem eiga þátttökurétt. Erfitt er
að gera sér grein fyrir hversu
margir áhorfendur muni verða
miðað við þetta ástand sem
hefur verið undanfarið ár. Það
hefur vissulega áhrif á erlendu
gestina okkar en eru ekki allir
Íslendingar orðnir ferðaþyrstir?
Það er því upplagt að skella sér í
útilegu á hestamót í sumar, það
gerist varla betra.“
Hverju búast megi við af
keppendum er Sigurður ekki í
Bestu knapar landsins mæta
með bestu hesta landsins
Sigurður Heiðar Birgisson,
framkvæmdastjóri Íslandsmótsins
í hestaíþróttum. MYND AÐSEND
vafa um hörku keppni milli
knapa á mótinun. Allir munu
koma inn á mótið með það
hugarfar að vinna sína grein svo
Sigurður lofar spennandi móti.
„Það verður einnig líf og fjör í
dalnum þessa daga, það verður
veitingasala á svæðinu, trúbador
og kvöldvaka. Við mótshaldarar
hvetjum að sjálfsögðu alla hesta-
unnendur til að drífa sig á Hóla í
Hjaltadal og njóta góðra hesta
með okkur, hér er gullið
tækifæri til að sjá alla helstu
gæðinga landsins í hverjum
flokki spreyta sig ásamt okkar
fremstu knöpum.“ /PF