Feykir - 12.08.2021, Qupperneq 1
30
TBL
12. ágúst 2021
41. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 4
BLS. 9
BLS. 6–7
Ingunn Gísladóttir segir frá
gönguferð í Vatnsdalnum
Lækjaniðurinn og
fuglasöngurinn verð-
ur hvergi fallegri en í
túninu heima
Fúsi Ben og hljóðfærið hans
Þarf vonandi aldrei að
selja Hammondinn
Skagfirðingasveit sinnir hálendisgæslu
Bjóðum alhliða lagnahreinsun á sérútbúnum bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
1 9. t 0
0. r r : t f
r tt - r l l
r rl i tr
BLS . 6–7
BLS. 4
Olíutankarnir á Króknum
teknir iður
Nýttir sem me tu-
g ymar á Vestfjörðum
BLS. 10
Hrafnhildur Viðars hefur
opnað sérhæfða naglasnyrti-
stofu á Sauðárkróki
Game of Nails
Hera Birgisdóttir læknir segir
frá degi í lífi brottflutts
Saknar íslenska
viðhorfsins
„þetta reddast“
Bjóðu alhliða lagnahreinsun á sérútbúnu bíl
Losum stíflur úr salernum, niðurföllum, frárennslislögnum, regnvatns- og skólplögnum.
Hreinsum trjárætur úr lögnum. Myndum lagnir sé þess óskað og og afhendum verkkaupa
á minnislykil. Sjáum um tæmingar á rotþróm. Bíll okkar er einnig útbúinn til hreinsunar
á sandföngum, fitu- og olíugildrum.
Holræsa- og stífluþjónusta
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 • Oddagata 18 • 545 Skagaströnd • terra.is • nordvesturland@terra.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Meirapróf - Vinnuvélanámskeið
Ökunám - Endurmenntun
Birgir Örn Hreinsson
Ökukennari
S: 892-1790
bigh@simnet.isHÁEYRI 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 4400
www.facebook.com/velavalehf
www.facebook.com/velavalehf
& 453 88 88 velaval@velaval.is
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
Veðrið hefur leikið við landsmenn
undanfarna daga með hita upp á
20 stig og jafnvel meira og að
sjálfsögðu stillu norðanlands sem
er ávísun á næturdögg. Á mánu-
dagsmorgun mátti sjá hvernig
áfallið baðaði umhverfið a.m.k. í
og við Sauðárkrók. Á Borgarsand-
inum höfðu maurköngulær
spunnið breiðu af fallegum vefjum
svokölluðum vetrarkvíða sem
Ingólfur Sveinsson, sá er tók
meðfylgjandi mynd, segir
sjaldgæfa sjón.
Matthías Alfreðsson, skordýrafræð-
ingur hjá NÍ segir vetrarkvíða vera
náttúrufyrirbrigði sem voðköngulær
eru þekktar fyrir að spinna og leggist
eins og silki yfir gróður. Blökkuló
(Erigone arctica) er dæmi um tegund
sem skilur eftir sig slíka þræði.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands kemur fram að maurkönguló sé
tiltölulega sjaldgæf en fundin í öllum
landshlutum, e.t.v. algengari um
norðanvert landið en á landinu
sunnanverðu, á miðhálendinu í
Fróðárdal við Hvítárvatn.
Maurkönguló finnst í runnum og
trjám, einnig í klettum og skriðum,
ekki eins hænd að vatni og frænka
hennar sveipköngulóin (Larinioides
cornutus). Vefurinn er hjóllaga,
tengdur milli greina inni í runnum eða
utan í þeim eða á milli steina. Hér á
landi hafa maurköngulær fundist
kynþroska í júlí og ágúst.
Almennt
Maurkönguló er lítt áberandi þar sem
lítið er af henni og hún dylst vel í
kjörlendi sínu. Auk þess er vefurinn
fíngerður og óáberandi, varla nema um
hálfur metri í þvermál ef aðstæður
leyfa.
Maurkönguló er mjög lík sveip-
könguló, þó heldur minni, og er
stundum vissara að aðgæta kynfæri til
að aðgreina þessar frænkur með vissu.
Oftast er afturbolur þó dekkri á
maurkönguló og ekki ljós rönd aftur
eftir honum miðjum. Miðbakið er að
mestu dökkt en ljóst þverbelti sker
dökka flekkinn í tvo hluta rétt framan
miðju á kvendýrum. Þetta getur þó
verið breytilegt. Neðan á afturbol eru
tveir svigalaga ljósir blettir eins og á
sveipkönguló, og fætur eru sömuleiðis
rauðleitir eða rauðgulir með dökkum
beltum.
Í heiminum eru þekktar um 44.000
tegundir köngulóa, á Íslandi 91 tegund
auk slæðinga. /PF
Köngulóin sveipar melgresið silki
Áf ll næturinnar í sólarg islum árdagsins
Þessa skemmtilegu mynd tók Ingólfur Sveinsson sl. mánudagsmorgun af maurkönguló sem hafði strengt vef milli melgresisstráa. Sagði hann vefina hafa
verið fjölmarga á svæðinu og sagði slíka breiðu vefja sem baðaðir eru næturdögginni kallaða vetrarkvíða. Sáust þeir vel í morgunsárinu áður en döggin hvarf
með hækkandi sól. MYND: INGÓLFUR SVEINSSON
Þórður Bragi og Fanndís Vala
segja frá gæludýrinu sínu
Katla er afskaplega
lítil, ljúf og góð
„Það er á við marg a ára reynslu að
dvelja vikulangt á hálendisvaktinni“
Dagana 1.–8. ágúst var í nógu að snúast
hjá björgunarsveitinni Skagfirðingasveit
á Sauðárkróki en meðlimir hennar tóku
að sér hálendisgæslu á hálendisvakt í
Landmannalaugum að Fjallabaki.
Hálendisvakt Landsbjargar er verkefni
sem byrjaði fyrir allmörgum árum til að
stytta viðbragðstíma björgunarsveita
yfir sumarið við verkefnum á hálendinu.
Hálendisgæslan fer fram á fjórum
stöðum á hálendinu; Fjallabaki við
Landmannalaugar þar sem Skagfirð-
ingasveit var í sumar, norðan Vatna-
jökuls, Nýjadal á Sprengisandi og svo er
nýtilkomin viðbragðsvakt í Skaftafelli.
Björgunarsveitir af öllu landinu geta
skráð sig á vaktir á þessum stöðum
sem eru frá sunnudegi til sunnudags.
Hálendisgæslan er starfandi yfir sum-
arið, frá miðjum júní og fram í lok ágúst.
Skagfirðingasveit hefur farið á
hálendisvakt einu sinni á sumri síðan
2013 fyrir utan eitt sumar. Feykir hafði
samband við Hafdísi Einarsdóttur,
formann Skagfirðingasveitar, á meðan
sveitin sinnti gæslu fyrr í mánuðinum og
forvitnaðist um verkefnið.
„Við erum að sinna alls kyns verk-
efnum, allt frá því að skoða augu og
setja plástur og allt upp í fjallaverkefni,
þyrluútköll og allt sem getur gerst. Fyrir
sveit eins og okkar, sem fáum ekki nema
svona átta til tólf útköll á ári og sum hver
afturkölluð mjög fljótlega, þá er þetta
bara veisla, svona uppskeruhátíð í raun
og veru. Það er á við margra ára reynslu
að dvelja vikulangt á hálendisvaktinni.“
„Þetta er í rauninni frí, skástrik, að
sinna verkefnum. Eins og t.d. núna
eru báðir bílarnir á ferðinni og okkar
fólk er bara að skoða landslagið í kring
og eru síðan til taks ef eitthvað kemur
upp á. Reynslan að keyra á hálendinu,
keyra í þungum snjó, afla sér upplýsinga
um færð vega, þetta er bara ómetanleg
reynsla fyrir okkur.“
Í haust stefnir Skagfirðingasveit á
það að vera með dagskrá fyrir nýliða
sem stendur frá september til áramóta.
Nýliðar fá kynningu á starfi sveitarinnar,
taka nokkur vel valin námskeið, kynnast
félögum sveitarinnar og verða að lokum
samþykktir á útkallslista.
„Björgunarsveitarstarf er fyrir alla, það
er alltaf hægt að leggja lið, það er hægt
að mæta í hús og smyrja samlokur fyrir
liðið eða koma og vera í tölvu- vinnunni.
Við erum á mikilli uppleið, það er búin
að vera mikil virkni síðasta ár og ég sé
fram á enn bjartari tíma,“ sagði Hafdís
Einarsdóttir, formaður sveitarinnar.
/SMH
Frá hálendisgæslu árið 2017 þegar Skagfirðingasveit tók þátt í því að bjarga aðila á Bláhnjúk í Landmannalaugum sem var með höfuð- og hryggáverka. Hér
má sjá þyrluna búa sig undir lendingu en aðstæður voru erfiðar sökum mikillar þoku. MYND: SMÁRI SIGURÐSSON