Feykir - 12.08.2021, Side 3
Félagsráðgjafi í barnavernd
Félags- og skólaþjónusta A-Hún auglýsir starf félagsráðgjafa í barnavernd laust til umsóknar.
Um er að ræða 100% starfshlutfall. Ráðning er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhald-
andi ráðningu. Félagsþjónusta A-Hún sinnir allri félagslegri þjónustu í Austur-Húnavatnssýslu.
Hjá Félags- og skólaþjónustu A-Hún er lögð áhersla á að þjónustan einkennist af fagmennsku,
áreiðanleika og jákvæðni. Starfið krefst sérfræðiþekkingar á meðferð barnaverndarmála.
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2021
Helstu verkefni
• Móttaka barnaverndartilkynninga og skráning
• Vinnsla barnaverndarmála, samskipti og samvinna við börn og foreldra
• Teymisvinna við vinnslu barnaverndarmála
• Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu barnaverndarmála
• Samskipti við stuðningsfjölskyldur og fósturforeldra.
• Þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum
• Þátttaka í þverfaglegu samstarfi við skóla, heilbrigðisstofnanir, lögreglu og aðra sem koma að málefnum barna.
Menntun
• Félagsráðgjafanám til starfsréttinda
• Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla, þekking og áhugi á barnaverndstarfi
• Réttindi til að veita PMTO foreldrafærnimeðferð er kostur sem og þekking á ESTER matskerfinu
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi er nauðsynlegt
• Krafa er gerð um jákvæð og lausnamiðuð viðhorf, lipurð í mannlegum samskiptum og sveigjanleika
gagnvart notendum þjónustunnar og samstarfsfólki
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur
Umsækjendur skulu senda inn umsóknir sínar á netfang félagsmálastjóra sara@felahun.is.
Umsókninni skal fylgja greinagóð skýrsla um störf umsækjanda, menntun og reynslu sem varpað
geta ljósi á færni hans til að sinna umræddu starfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir >
Sara Lind Kristjánsdóttir í síma 863-5013 eða með því að senda tölvupóst á sara@felahun.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
F É L A G S - O G S K Ó L A Þ J Ó N U S T A A - H Ú N
Félags- og skólaþjónusta A-Hún
Nýverið barst Byggðasafni
Skagfirðinga pakki frá
Þýskalandi sem innihélt þrjá
hluti. Starfsfólk safnsins
botnaði fyrst um sinn hvorki
upp né niður í sendingunni en
fljótlega kom í ljós að um var að
ræða þrjá safngripi sem höfðu
horfið af safninu árið 1970.
Í frétt á heimasíðu safnsins
segir: „Pakkanum fylgdu engar
upplýsingar utan nafn og
heimilisfang sendanda sem
skrifað var utan á pakkann og
eftir smá grúsk tókst að hafa
uppi á símanúmeri og hafa
samband við hann. Samtalið
leiddi í ljós að sendandanum
hafði áskotnast þessir gripir á
flóamarkaði erlendis fyrir fjölda
ára og að þær upplýsingar hefðu
fylgt með gripunum að þeir
kæmu frá Glaumbæ á Íslandi.
Sendandinn væri nú orðinn
gamall og enginn nákominn
virtist vilja eiga gripina og því
hafi honum fundist réttast að
koma þeim aftur til sinna heima.
Allt er því gott sem endar vel
og erum við þakklát fyrir að
vera komin aftur með gripina í
hendurnar eftir hálfrar aldar
fjarveru.“
Nánari umfjöllun um málið
er á heimasíðu safnsins
glaumbaer.is og á feykir.is.
/Byggðasafnið í Glaumbæ
Horfnir safngripir Byggðasafnsins í Glaumbæ
Komu í leitirnar eftir 50 ár
Þann 26. júlí sl. fór fram
afhending styrkja úr Húna-
sjóði, en sjóðinn stofnuðu
hjónin Ásgeir Magnússon og
Unnur Ásmundsdóttir frá
Ægissíðu á Vatnsnesi til að
minnast Alþýðuskóla
Húnvetninga sem Ásgeir
stofnaði árið 1913.
Þeim hjónum var mikið í
mun að Vestur-Húnvetningar
hefðu tækifæri til að mennta
sig. Hjónin gáfu einnig kr.
10.000 til Háskóla Íslands árið
1960 vegna herbergis í fyrir-
huguðum nýjum stúdenta-
garði. Herbergið skyldi nefn-
ast Ægissíða og stúdent úr
Vestur-Húnavatnssýslu skyldi
hafa forgangsrétt til búsetu í
herberginu.
Við sameiningu sveitar-
félaganna í Vestur-Húna-
vatnssýslu árið 2000, var
Húnasjóður endurvakinn og
ný skipulagsskrá rituð. Árlega
fer fram úthlutun úr sjóðnum
og miðast fjármagn við
framlag frá sveitarsjóði ásamt
hálfum vöxtum höfuðstóls.
Það kemur í hlut byggðar-
ráðs Húnaþings vestra að
úthluta úr sjóðnum, en á 1095.
fundi byggðarráðs var sam-
þykkt að eftirtaldir aðilar
fengju úthlutað úr sjóðnum
að þessu sinni:
Ása Berglind Böðvarsdóttir,
B.S. nám í sálfræði.
Fríða Björg Jónsdóttir,
B.S. nám í viðskiptafræði.
Inga Rósa Böðvarsdóttir,
B.S. nám í almennri hagfræði.
Lóa Dís Másdóttir,
atvinnuflugnám.
Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir,
B.S. nám í hjúkrunarfræði.
Þórdís Helga Benediktsdóttir,
B.S. nám í viðskiptafræði.
Styrkfjárhæð á hvern styrk-
þega er kr. 100.000. /Húnaþing.is
Vestur-Húnavatnssýsla
Afhending styrkja úr
Húnasjóði árið 2021
Frá afhendingu styrkja úr Húnasjóði
árið 2021. MYND: HÚNAÞING.IS
Síðastliðið fimmtudagskvöld
bauð Svf. Skagafjörður
íbúum Varmahlíðar til fundar
í Miðgarði vegna aðgerða í
kjölfar aurskriða sem féllu á
hús við Laugarveg seint í
júní, þar sem betur fór en á
horfðist.
Að sögn Sigfúsar Inga
Sigfússonar, sveitarstjóra, var
ágætlega mætt á fundinn en
þar miðluðu fulltrúar sveitar-
félagsins upplýsingum til íbúa
um þær framkvæmdir sem
þegar er búið að ráðast í vegna
skriðanna og hvaða hug-
myndir eru uppi á þessu stigi
um frekari framkvæmdir.
„Einnig upplýstum við um
beiðni sveitarfélagsins til
umhverfisráðherra um gerð
sérstaks hættumats fyrir
Varmahlíð og hluta Sauðár-
króks vegna aurskriðuhættu,“
sagði Sifús Ingi í samtali við
Feyki. Hann sagði ennfremur
að stefnt sé að öðrum íbúa-
fundi þegar frekari upplýs-
ingar liggja fyrir um hættu-
matið og þær tillögur að
framkvæmdum sem lagðar
verða til í kjölfar þess. /ÓAB
Sveitarfélagið Skagafjörður
Vilja hættumat fyrir Varma-
hlíð og hluta Sauðárkróks
Svona var staðan á skriðusvæðinu í Varmahlíð sl. mánaðamót. MYND: ÓAB
Rjómakanna úr tini, útksorin smjöraskja og kotrutafla úr hvalbeini. MYND: BSK
30/2021 3