Feykir


Feykir - 12.08.2021, Side 5

Feykir - 12.08.2021, Side 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Lið Kormáks/Hvatar er á siglingu í D-riðli 4. deildar en liðið vann sinn þriðja leik í röð þann 7. ágúst sl. þegar þeir mættu Knattspyrnufélagi Breiðholts (KB) á Domusnovavellinum sl. sunnudag. George Chariton hélt áfram að skora og kom gestunum yfir rétt fyrir hlé og Húnvetningar bættu við tveimur mörkum til að gulltryggja sigurinn áður en heimamenn klóruðu í bakkann í lokin. Lokatölur 1–3. Spánverjinn markheppni gerði fjórtánda mark sitt í sumar á 45. mínútu og sá til þess að Kormákur/Hvöt var yfir í hálfleik. Jose Mariano Saez Moreno bætti við marki á 48. mínútu og Akil De Freitas gerði þriðja markið á 66. mínútu. Brynjar Magnússon lagaði stöðuna fyrir Breið- hyltinga með marki á 90. mínútu. Úrslitin þýða að nú þegar tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni þá eru Vængir Júpiters efstir með 33 stig en Kormákur/Hvöt í öðru sæti með 30 stig. Síðan koma Hvíti riddarinn og Léttir í þriðja og fjórða sæti með 25 stig, geta komist upp fyrir lið Kormáks/Hvatar en það verður að teljast afar ólíklegt. Í næstu umferð mæta Húnvetningar liði Hvíta riddarans á heimavelli og í síðustu umferð fara þeir í Eyjafjörðinn og mæta liði Samherja sem er lang- neðst í riðlinum með einn sigur það sem af er sumri. Það yrði því stórslys ef Kormákur/Hvöt færi ekki alla leið í úrslitakeppnina. /ÓAB 4. deild karla | KB – Kormákur/Hvöt 1–4 Húnvetningar komnir með níu tær inn í úrslitakeppnina Pepsi Max deild kvenna | Tindastóll – Breiðablik 1–3 Meistarar Blika of stór biti Íslandsmeistararnir úr Kópavogi, lið Breiðabliks, komu í heimsókn á Krókinn sl. föstudag til að skoða sólina og spila við lið Tindastóls í Pepsi Max deildinni góðu. Stólastúlkur hefur sjálfsagt dreymt um að leggja meistarana í gras en þrátt fyrir draumabyrjun Tindastóls þá reyndust Blikar búa yfir of miklum gæðum og nýttu sér nokkur mistök heimaliðsins til að sigla heim 1-3 sigri. Það er varla hægt að segja að gestirnir hafi verið búnir að komast í boltann þegar Tindastóll náði forystunni eftir tveggja mínútna leik. Jackie tók þá aukaspyrnu og smurði boltann í nærhornið með glæsilegum bananabolta. Blikar jöfnuðu á 18. mínútu eftir að heimastúlkur töpuðu boltanum á slæmum stað og höfðu yfirhöndia fram að hléi. Það sama var uppi á teningnum í síðari hálfleik. Blikar komust yfir á 57. mínútu með marki úr hornspyrnu. Boltinn kom á nærstöng þar sem Ásta Eir Árnadóttir flikkaði honum laglega í markið en alltof auðveldlega. Á 70. mínútu tryggði Karitas sigur gestanna með hnitmiðuðu skoti eftir góða sókn þar sem varnarlína Tindastóls var teygð og toguð. Eftir þetta komust Stólastúlkur betur inn í leikinn og fengu Murr og Laura tvo-þrjú ágæt færi til að laga stöðuna. Allt kom þó fyrir ekki og lið Breiðabliks vann sanngjarnan sigur. Eftir leikinn er lið Tindastóls á ný komið í fallsæti eftir sigur Fylkis á botnliði Keflavíkur. Það er því stórleikur í næstu umferð þegar Stólastúlkur halda til Akureyrar til að eiga við sameinað lið Þórs/KA. /ÓAB 3. deild karla | Augnablik – Tindastóll 2–4 Langþráður sigur Tindastóls Augnablik tók á móti liði Tindastóls á Kópavogsvelli 5. ágúst sl. í 3. deild karla í knattspyrnu. Stólarnir höfðu tapað fjórum leikjum í röð í deildinni og útileikur gegn einu af liðunum sem er að berjast um að komast upp í 2. deild því kannski ekki óskastaðan fyrir Hauk þjálfara og lærisveina hans. En strákarnir komu sperrtir til leiks og sýndu að þeim er ekki alls varnað. Lokatölur 2-4 og þrjú dýrmæt stig fleyttu liðinu upp úr fallsæti. Það var Pape Mamadou Faye sem gerði fyrsta mark Stólanna eftir 21 mínútu og Raul Sanjuan Jorda bætti öðru marki við með skalla eftir hornspyrnu tíu mínútum síðar. Hrannar Jónsson lagaði stöðuna fyrir heimamenn á 36. mínútu en það var síðan Arnór Guðjónsson sem átti lokaorðið í fyrri hálfleik þegar hann gerði þriðja mark Stólanna á fyrstu mínútu uppbótartíma. Stólarnir bökk- uðu talsvert í síðari hálfleik og heimamenn gerðu harða hríð að marki gestanna. Þeir minnkuðu muninn á 62. mínútu með marki frá Rúnari Eysteinssyni en leikmenn Tindastóls náðu góðri skyndisókn seint í leikn- um og uppskáru víti. Konni fór á punktinn og honum brást ekki bogalistin og tryggði stigin þrjú. Næsti leikur Stóla er í kvöld en þá kemur lið Dalvíkur/Reyn- is í heimsókn á Krókinn. /ÓAB Stólastúlkur sækja að marki Blika seint í leiknum. MYND: ÓAB Kvennasveit GSS lenti í 6. sæti í 1. deild á íslandsmóti Golf- klúbba sem fram fór dagana 22.-24. júlí sl. Úrslitin þýða að liðið leikur áfram í 1. deild. Árný Lilja Árnadóttir var liðsstjóri og valdi liðið sem er þannig skipað: Anna Karen Hjartardóttir, Dagbjört Rós Hermundsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir, Sólborg Björg Hermundsdóttir, Telma Ösp Einarsdóttir og Una Karen Guðmundsdóttir. Karlarnir féllu í 3. deild Golfklúbbur Skagafjarðar sendi karlasveit sína til keppni á Íslandsmóti golfklúbba í 2. deild dagana 26.-28. júlí. Sveit GSS skipuðu þeir: Arnar Geir Hjartarson, Atli Freyr Rafnsson, Elvar Ingi Hjartarson, Hákon Ingi Rafnsson, Hlynur Freyr Einarsson, Ingvi Þór Óskarsson og Jóhann Örn Bjarkason. Keppnin var mjög jöfn og hefðu úrslitin hæglega getað fallið með GSS-mönnum en sú varð ekki rauninn og féllu þeir um deild eftir hetjulega baráttu. /SMH Golfklúbbur Skagafjarðar Kvennasveit GSS hélt sæti sínu í 1. deild Kvennasveit GSS á íslandsmóti Golfklúbba 2021 MYND: GSS Ekki náðu Íslendingar í verðlaun á Ólympíuleikunum í Tokyo og voru ekki nálægt því að þessu sinni. Margir hafa notið þess að fylgjast með fjölbreyttum greinum sem keppt hefur verið í og öllu því ljúfsára drama og þeirri botnlausu gleði sem fylgir þessum stórkostlegu leikum. Með góðum vilja getur Tindastólsfólk samglaðst Kellie Harrington og fjölskyldu hennar, en Kellie gerði sér lítið fyrir síðasta keppnisdaginn og nældi í gull í boxi fyrir Íra. Kellie er fædd árið 1989 og hefur nú um nokkurt skeið verið einn albesti boxari heims í sínum þyngdarflokki og unnið til fjölda verðlauna. Og hvað kemur þetta Tindastólsfólki við? – gæti nú einhver spurt. Jú, bróðir Kellie er hinn eini sanni Christopher Harrington, kallaður Gitzy, en hann spilaði knattspyrnu á Krókn- um, bæði með Tindastóls- liðinu og Drangey. Kom fyrst á Krókinn 2013 en snéri sér síðan meira að þjálfun og kom að þjálfun meistara- flokka Stólanna og yngri flokka. Hann hefur víða komið við síðan hann var á Króknum en þjálfar nú kvennalið Fram í Reykjavík. Kappinn flaug að sjálf- sögðu heim til Írlands til að geta horft með fjölskyldu sinni á systurina taka gull. Feykir óskar Gitzy og írsku fjölskyldunni til hamingju! Sjá nánar á Feykir.is. /ÓAB Ólympíuleikarnir í Tokyo Systir Gitzy með gull Gitzy í faðmi fjölskyldunnar sem réð sér vart fyrir kæti. MYND AF NETINU 30/2021 5

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.