Feykir - 12.08.2021, Page 9
Nú fer hver að verða síðastur
að kíkja á Búminjasafnið í
Lindabæ en safnið er opið alla
daga frá kl. 13 til 17 til 20.
ágúst. Það er því vissara að
gera sér ferð til hans Sigmars
áður en hann lokar í ár því
margir gullmolarnir leynast á
safninu hans.
Þessi Massey Ferguson 135 vél
er árgerð 1965, en það er fyrsta
árið sem þessi tegund af
dráttavél var flutt inn til Íslands
og innflytjandi var Dráttarvélar
hf. Vélin er með 47 hestafla
Perkinsvél (dísel). Þessi vél var
keypti af Sigfúsi Helgasyni,
bónda í Stóru-Gröf syðri.
Sigfús notaði vélina við sinn
búskap meðan hann bjó í
Stóru-Gröf en hann hætti
búskap árið 2012. Það er svo í
kringum 2014 sem Sigmar í
Lindabæ fær vélina sem var
ágætlega gangfær enda búið
að fara í mótorinn á henni.
Haustið 2020 var hafist handa
við að rífa vélina niður og
undirbúa undir uppgerð. Dekk
voru góð en aðeins þurfti að
pússa þau upp og bera á þau
gljáa.
Það var Sigurður Baldurs-
son í Varmahlíð sem sá um
uppgerðina og sprautunina á
vélinni en Sigmar í Lindabæ
var honum til aðstoðar. Þá
voru ámoksturstæki máluð og
sett á vélina og lítur hún nú
glæsilega út.
Massey Ferguson 135
EINS MANNS RUSL ER ANNARS FJÁRSJÓÐUR
Búminjasafnið í Lindabæ í Skagafirði
Massey Ferguson 135 spikk og span. MYNDIR AÐSENDAR
UMSJÓN
siggag@nyprent.is
Frá vinnu við uppgerð vélarinnar.
Á Ríp í Hegranesinu í Skagafirði búa systkinin
Þórður Bragi og Fanndís Vala. Foreldrar þeirra
eru Sigurður Heiðar Birgisson og Sigurlína
Erla Magnúsdóttir og eiga þau lítinn bróður
sem heitir Kristófer Elmar. Þau ætla að segja
okkur frá uppáhalds hestinum sínum henni
Kötlu.
Hvernig gæludýr eigið þið? Í sveitinni eru mörg
dýr, hestar, kindur, hundar og kisur en eitt af
uppáhalds dýrunum eru hestarnir og þar
fremst í flokki er Katla frá Íbishóli sem er 27
vetra gömul hryssa sem var fyrsta hrossið sem
við fórum ein í reiðtúr á. Var hún líka fyrsta, og
uppáhalds, reiðhrossið hennar mömmu þegar
hún var lítil og erum við krakkarnir svo heppin
að fá að njóta hennar líka. Þó hún sé hestur
köllum við hana gæludýrið okkar því hún er
svo góð og mikil vinkona okkar.
Hvernig eignuðust þið Kötlu? Katla er fædd á
Íbishóli þar sem afi, Magnús Bragi, og amma,
Valborg Jónína, stunduðu hestamennsku og
afi gerir enn í dag. Hún var þriggja mánaða
tamin þegar mamma fór að fara ein á henni í
reiðtúra, hún þá fjögurra vetra og mamma sex
ára. Svo þegar hún og systkinin hennar hættu
að fara á hestbak á hana eignaðist hún fimm
folöld. Vorum við svo heppin að afi gaf okkur
hana og kom hún hingað til okkar á Ríp svo að
við krakkarnir gætum farið að leika okkur á
henni og byrjað að fara á hestbak ein.
Hvað er skemmtilegast Kötlu? Hún er afskap-
lega lítil, ljúf og góð og hefur kennt okkur
öllum sem hafa riðið henni margt í hesta-
mennsku. Hún er með einstakt geðslag og
passaði mömmu og systkini hennar þegar þau
voru lítil á Íbishóli og í dag leikum við
krakkarnir okkur með henni og hægt að
treysta henni alveg 100%. Afskaplega góður
kennari og leyfir okkur að leika með sér og á
henni alveg endalaust.
Hvað er erfiðast? Katla er að verða gömul og
verður erfitt að kveðja hana þar sem hún hefur
fylgt okkur alla okkar ævi og mikið uppáhalds
hross hjá okkur fjölskyldunni. En hún er líka
svo stór að hún þarf að eiga heima í hesthúsinu.
Eruð þið með einhverja sniðuga eða merkilega
sögu af Kötlu? Katla er einstök og mamma
hefur sagt okkur margar sögur af henni þegar
þær voru saman í reiðtúrum og hestaferðum.
Einu sinni var mamma á leiðinni heim úr
réttunum og var hnakkurinn hjá henni orðinn
laus en Katla passaði hana alla leið heim og
sveigði sig til hliðar þegar hún var næstum því
dottin til að passa að hún myndi ekki detta af
baki. Hún passar alltaf vel upp alla sem eru í
kringum hana og vill leyfa öllum að njóta sín í
kringum hana. Svo höfum við bæði systkinin
keppt á henni í pollaflokki í okkar fyrstu
keppni og er hún alltaf jafn góð og gerir allt
fyrir okkur sem við biðjum hana um.
Katla með Kristófer Elmar, Fanndísi Völu og Þórð Braga. AÐSEND MYND
Katla er afskaplega lítil, ljúf og góð
ÉG OG GÆLUDÝRIÐ | siggag@nyprent.is
Þórður Bragi Sigurðsson og Fanndís Vala Sigurðardóttir | hesturinn Katla
30/2021 9