Feykir


Feykir - 12.08.2021, Page 11

Feykir - 12.08.2021, Page 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR :Ás.. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Undir hvaða stóðhest(a) var haldið í sumar? Spurt á Facebook UMSJÓN: Sæþór Már „Við hjónin héldum átta 1. verðl. hryssum í ár. Notuðum Fróða frá Flugumýri, léttstígan og spennandi fola, Viðar frá Skör, skrefstóran og ganggóðan og Kolbak frá Litla-Garði sem ég heillaðist af fyrir ganghæfni og útgeislun. Einnig notuðum við Óm frá Kvistum, Snilling frá Íbishóli, Eldjárn frá Skipaskaga og Þór frá Efri-Brú.“ Sonja Líndal Þórisdóttir Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: Ótrúlegt - en kannski satt... Svartidauði var einn skæðasti heimsfaraldur sögunnar og náði hámarki í Evrópu um miðja 14. öld en barst ekki til Íslands fyrr en vorið 1402 vegna þess að engin skip komu til landsins þau tvö ár sem hann geisaði á Norðurlöndum og í Englandi. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er talið að um 75 milljónir manna alls hafi látist úr farsóttinni, þar af 25–30 milljónir í Evrópu, eða þriðjungur til helmingur íbúa álfunnar á þeim tíma. Tilvitnun vikunnar Ég vil hafa mennina mína eins og kaffið mitt – þögla. – Anna Kendrick „Einn af þeim var Óskasteinn frá Íbishóli. Hann er einstakur gæð- ingur og hefur reynst okkur vel.“ Sigurður Heiðar Birgisson „Við héldum undir Fróða frá Flugumýri, Óskastein frá Íbishóli, Sjóð frá Kirkjubæ, Þór frá Efri-Brú og Drang frá Steinnesi vegna þess að þeir eru góðir og okkur fannst þeir passa vel við ræktunarhryssurnar.“ Fanney Dögg Indriðadóttir LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Turdus merula svartþröstur. F „Ég hélt til að mynda undir Þráinn frá Flagbjarnarholti, Kná frá Ytra- Vallholti, og Sólon frá Skáney. Þar er ég að leitast fyrst og fremst eftir góðu geðslagi og tölti. Síðan er með Óskar frá Narfastöðum undan Korg frá Ingólfshvoli.“ Elvar Einarsson Jólamaturinn okkar og besti eftirrétturinn Matgæðingur vikunnar er Finna Guðrún frá Hátúni í Skagafirði og er hún gift Garðari Smárasyni. Þau eiga þrjá uppkomna syni og þrjú barnabörn og mætir fjórða barnabarnið á næstu dögum. Finna býr í Mosfellsbæ þar sem hún vinnur í Mosfellsbakaríi en fyrstu búskaparárin þeirra Finnu og Garðars ráku þau fiskbúð. Finna segir að önnur eða þriðju jólin þeirra saman hafi þau ákveðið að prufa að hafa fisk á jólunum og síðan þá hefur þessi réttur, sem hún ætlar að deila með ykkur hér, alltaf verið jólamaturinn þeirra. AÐALRÉTTUR Smálúða með humar-rjómasósu 800 g smálúðuflök 10 humarhalar 3 dl rjómi 1 dl fisksoð 1 dl mysa 1 msk. eðalkrydd frá Pottagöldrum 1 tsk. paprikuduft 2 hvítlauksgeirar 1 msk. dill frá Pottagöldrum smjör til að steikja upp úr og hveiti til að velta fisknum upp úr Aðferð: Hreinsa humarhalana. Velta smálúðuflökunum upp úr hveiti og krydda. Steikja smá- lúðuflökin og humarinn upp úr smjöri. Þegar búið er að steikja smálúðuflökin og humarinn, þá á að hella mysu, fiskisoði og rjóma á pönnuna og leyfa suðunni að koma upp. Láta sósuna sjóða niður og hella henni síðan yfir fiskinn. Okkur finnst gott að hafa sætar kartöflur og hrásalat með. EFTIRRÉTTUR Ávextir með rjóma Niðurbrytjaðir ávextir eftir smekk með þeyttum rjómi sem er gerður smá sætur. Verði ykkur að góðu! Finna skorar á Lindu Dröfn Káradóttur, frænku sína, að taka við sem matgæðingur. ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Finna Guðrún Ragnarsdóttir | Hátúni í Skagafirði Garðar og Finna Guðrún. AÐSEND MYND Ávextir með rjóma. MYND AF NETINU 30/2021 11 Vísnagátur Sveins Víkings Ég er máttarviður vænn. Var tilbeðinn áður. Oft á sumrin iðjagrænn. Engu spili háður.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.