Feykir


Feykir - 12.08.2021, Qupperneq 12

Feykir - 12.08.2021, Qupperneq 12
Allir með Feyki! Það er mikilvægt að halda úti fjölmiðli sem segir fréttir og fjallar um fólk af Norðurlandi vestra. Það gerir Feykir. Áskrifendur eru Feyki nauðsynlegir. Er ekki upplagt að gerast áskrifandi að góðu blaði og fréttum af þínu fólki? Hafðu samband í síma 455 7171 eða sendu póst á feykir@feykir.is BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 30 TBL 12. ágúst 2021 41. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 16.-17. janúar Séra Pétur Guðmunds- son, sem samdi Annál nítjándu aldar, rifjaði upp minningu frá unglingsárum, sem hér er tekin upp: ,,16. janúar um kvöldið hafði Pétur Guðmundsson, er síðar varð prestur í Grímsey, sem þá var um tvítugt og vinnupiltur á Hofdölum í Skagafirði, leitt kú að Svaðastöðum í mjög ískyggilegu veðri. Var með honum stúlka innan við fermingu. Brast á þau stórhríð á leiðinni heim, svo að þau villtust. Gengu þau þó enn nokkuð, þar til stúlkan örmagnaðist og urðu þau að setjast að. Klæddi hann hana þá í treyju sína og gróf í fönn. Sat hann þar þá um stund, unz hann ætlaði, að hún væri sofnuð. Stakk hann þá staf sínum þar niður og freistaði að nýju að leita bæja, en fann engan. Hitti hann fyrir stekk og lagði sig þar til svefns í fönninni, unz dagaði. Vaknaði hann þá við það, að hríðina hafði heldur rofað. Var hann þá bæði heitur og blautur, og frusu mjög að honum klæðin, því að frost var mikið, og varð honum stirt um gönguna. Náði hann þó heim að Ytri-Brekkum lítið kalinn á úlnliðum og stóru tám. Var þá stúlkunnar leitað. Fannst hún síðla um daginn og var þá örend. Kýrin var að mestu óskemmd. Kvöld þetta höfðu fleiri menn villzt, og var um kennt, hve vindstaðan hafði snúið sér.“ /PF Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947 1853 Eitt sérstæðasta réttarstæði landsins er án vafa Hamarsrétt á vestanverðu Vatnsnesi, nokkurra kílómetra holóttan spöl norður af Hvammstanga. Þegar blaðamaður Feykis renndi fyrir Vatnsnesið um mánaðamótin mátti sjá að lagfæringar stóðu yfir á réttinni sem staðsett er í fjörukambinum. Á VisitHúnaþing.is segir: „Réttin er notuð á haustin þegar bændur á Vatnsnesi rétta fé sitt sem þeir smala saman úr fjallinu. Sunnan við Hamars- rétt er Hamarinn, klettaberg sem fengið hefur nafnið Kallhamar, tilkomið vegna þess að á árum áður var mikið útræði frá Vatnsnesi og þegar koma þurfti boðum til báta á sjó var farið fram á hamarinn og gefið merki eða kallað til nærliggj- andi báta. Sunnan við Hamarinn má enn finna rústir frá sjóbúðum og útræði sem þar var mikið. Litlu norðan við fjárréttina stendur Hamarsbúð, félagsheimili húsfreyjanna á Vatnsnesi.“ Við útsýnisplan ofan við réttina má finna skilti þar sem gestir geta áttað sig á örnefnum fjalla og annars sem fyrir augu ber þegar horft er vestur á Strandir. /ÓAB Hamarsrétt á Vatnsnesi Unnið að lagfæringum Þetta sumarið hefur verið góð aðsókn í sundlaugina á Blönduósi. Reyndar svo góð að hingað til í sumar hefur verið sett aðsóknarmet í fjölda sundlaugar- gesta. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Íþróttamið- stöðvarinnar á Blönduósi. Frá 1. júní til 28 júlí í ár komu 16.827 gestir í laugina en á sama tíma fyrir tveimur árum, 2019, komu 15.892. „Ef reiknað er bara sumartímabilið eða frá 1. júní til dagsins í dag er árið í ár (2021) stærra en 2019, sem gerir sumarið í ár það besta hingað til það sem af er því. Sumartímabilið okkar er 1. júní til 20. ágúst ár hvert," segir í færslu Íþróttamiðstöðvarinnar. Ef horft er yfir árið í heild hafa 26.502 sund- laugargestir heimsótt laugina sem er aukning um 19% frá árinu í fyrra. /SMH Aðsóknarmet í sumar Sundlaugin á Blönduósi Sundlaugin á Blönduósi. MYND: RÓBERT DANÍEL JÓNSSON Framkvæmdir við Hamaarsrétt. MYNDIR: ÓLI ARNAR

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.