Feykir - 13.10.2021, Side 3
Í ár var haldið haustþing
leikskóla á Norðurlandi vestra
og Strandabyggðar. Sveitar-
félögin skiptast á að halda
þingið og sjá skólastjórnendur
í sveitarfélögunum um skipu-
lagningu. Í ár sá Húnaþing
vestra um skipulagningu og
var haustþingið haldið á Hótel
Laugarbakka í september.
Haustþingið sóttu um 120
starfsmenn úr leikskólunum,
þátttaka var góð og lögð var
áhersla á að vera með hagnýta
fræðslu sem hægt væri að nota í
daglegu starfi. Þrír fyrirlestrar
voru yfir daginn. Aðalfyrir-
lesarinn var Hlín Magnúsdóttir.
Hlín var með fræðslu um
málörvun í leikskólastarfinu og
fjölbreyttar leiðir til að styðja við
málþroska barna. Hún vinnur
sem deildarstjóri við sérkennslu
í samreknum leik- og grunn-
skóla, einnig heldur hún úti
vefsíðunni https://fjolbreytt
kennsla.is/ þar sem hægt er að
sækja sér ýmist efni til notkunar
við kennslu leik- og grunn-
skólabarna.
Eftir hádegi voru tveir fyrir-
lestrar, sá fyrri var frá Barnaheill
þar sem Guðrún Helga Bjarna-
dóttir hélt fræðsluerindi um
forvarnir gegn kynferðisofbeldi
á börnum. Seinni fyrirlesturinn
flutti Saga Stephensen, verk-
efnastýra fjölmenningar, fag-
skrifstofu leikskólamála á skóla-
og frístundasviði Reykjavíkur.
Fyrirlesturinn bar heitið Fjöl-
menning og fjöltyngi í leikskóla,
þar sem lögð var áhersla á vinnu
með börnum með annað
móðurmál en íslensku.
Í lok fyrirlestra gafst tæki-
færi til samtals um efni dagsins
og starf skólaársins.
Fyrir hönd
undirbúningsnefndar:
Guðný Kristín Guðnadóttir,
aðstoðarleikskólastjóri
Guðrún Lára Magnúsdóttir,
leikskólastjóri
/Aðsent
Strandir og Norðurland vestra
Haustþing leikskóla haldið
á Laugarbakka
Á heimasíðu Húnavatnshrepps
eru birtar upplýsingar um
refa- og minkaveiði innan
Húnavatnshrepps, síðasta
veiðitímabil sem telst frá 1.
september 2020 til og með 31.
ágúst sl.
Alls voru drepnir 418 refir,
þar af 236 hlaupadýr og 182
grenjadýr. Á sama tímabili voru
veiddir 132 minkar. Refaveiðin
er á pari við síðasta ár en þá voru
423 refir skotnir en heldur hefur
hún aukist í minknum því 107
minkar voru felldir í fyrra, eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd
sem fengin var af heimasíðu
Húnavatnshrepps. /PF
Vargur í Húnavatnshreppi
Fleiri minkar veiddir í ár
– GR ÁNU Á SAUÐÁRKRÓKI –
Glatt á hjalla í gránu
ÞAÐ ERU GÓÐ KVÖLD FRAMUNDAN Í HÁA SALNUM Í GRÁNU
14
NÓV
SUNNUDAG 14. NÓV. KL. 20:30
Rannveig & Róbert,
Edda Borg OG
Reynir Snær
Fallegir dúettar / soul og blús.
20
OKT
MIÐVIKUDAG 20. OKT. KL. 21:00
STUÐNINGS
MANNAKVÖLD
KKD. TINDASTÓLS
3ja stiga skemmtun garanteruð.
18
NÓV
FIMMTUDAG 18. NÓV. KL. 20:30
Ragga og Sjana
syngja jazz
ásamt Ómari Guðjónssyni og Þorgrími
Jónssyni – íslensk og erlend jazzlög.
22
OKT
FÖSTUDAG 22. OKT. KL. 20:30
MAGNI, ÓSKAR PÉTURS
OG VALMAR
Glatt á hjalla, sungið hástöfum og
leikið af fingrum fram.
8
des
MIÐVIKUDAG 8. DESEMBER
GRÝLUBÖRN
Aldís Fjóla og Svavar Knútur
klæða jólalögin að sínum smekk.
23
OKT
LAUGARDAG 23. OKT. KL. 20:00
BLANKIFLÚR
Inga Birna Friðjónsdóttir flytur lög
af nýlegri plötu sinni.
18
des
LAUGARDAG 18. DESEMBER
Jólin í Gránu
Glæný jólalög eftir skagfirska höfunda
í bland við gömlu góðu jólalögin.
Valgerður Erlingsdóttir kynnir
MENNINGARFÉLAG GRÁNU
AÐALGÖTU 21 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 588 1238
SÓKNARÁÆTLUN
NORÐURLANDS VESTRA
Nánari upplýsingar um viðburði er að finna á Facebook | Miðasala á tix.is og við innganginn meðan húsrúm leyfir
Spennandi helgartilboð á heimteknum mat framundan á Gránu Bistro | Októberfest á barnum
ný
pr
en
t e
hf
|
1
02
02
1
29
OKT
FÖSTUDAG 29. OKT. KL. 20:30
Kristjana
Arngrímsdóttir og
Kristján Eldjárn
Vísna og þjóðlagaballöður.
Veðurklúbburinn kominn úr sumarfríi
Haustkálfar boða milt haust
Nú hefur Veðurklúbburinn á Dalbæ tekið aftur
til starfa eftir sumarfrí og segir í skeyti til
fjölmiðla að nýr starfsmaður hafi tekið við
stjórn klúbbsins. Þá kemur einnig fram að með
nýju fólki megi búast við breytingum og
nýjungum. Jákvætt er að spáð er mildum
október með suðlægum áttum.
Í fundargerð klúbbsins frá 5. okt. sl. segir: „Núna
5. október hittust sjö félagar í Veðurklúbbi
Dalbæjar eftir langt sumarfrí til að ráða ráðum
sínum. Ekki var sérstaklega farið yfir veðrið
undanfarið nema að því leyti að núna um miðjan
september síðastliðinn komu svokallaðir
Haustkálfar, en þeir boða frekar milt haust.
Enda kemur það heim og saman við draum
eins félagans og tunglkomu þann 6. október að
október verði mildur með suðlægum áttum, en
þó mögulega með einhverri rigningu eða éljum
sem stoppa samt stutt við í byggð.“
Með kveðjum frá Veðurklúbbnum á Dalbæ
leynast að þessu sinni tvær skemmtilegar vísur:
Draumar geta veður vitað,
er væta öfgakennd.
En verst er þó með orðum litað
að búa þarna í Grennd.
-B.J.
Næsta vísa er trúlega kveðin á Völlum í
Svarfaðardal 13. september 1841 eftir því sem
segir í Bréfi Jónasar til Brynjólfs Péturssonar 8.
október 1841. (Sjá: Ritverk Jónasar Hallgríms-
sonar II. bindi. Bréf og dagbækur, bls. 111–112).
Veðrið er hvurki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt,
það er hvurki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.
/PF
39/2021 3