Feykir - 13.10.2021, Page 5
Stólastúlkur spiluðu annan leik
sinn í 1. deild kvenna sl.
laugardag þegar sterkt lið ÍR
mætti í Síkið. Lið Tindastóls
gerði vel í fyrsta leikhluta en
villuvandræði lykilleikmanns
snemma leiks dró svolítið úr
heimastúlkum og Breiðhyltingar
gengu á lagið og tryggðu sér
sigurinn með góðum leik í þriðja
leikhluta. Lokatölur 52-75.
Það hefur jafnan verið á
brattann að sækja hjá Stóla-
stúlkum gegn liði ÍR sem hefur
síðustu árin verið sterkt og
reynslumikið. Lið ÍR byrjaði
betur en fimm stig frá Ingu
Sólveigu komu heimastúlkum á
bragðið og með góðum leik
náðu þær forystunni og leiddu
15-9 þegar rúmar sjö mínútur
voru liðnar. Maddie Sutton
nældi sér í tvær villur seint í
fyrsta leikhlutanum og hafði
fengið fyrstu villuna snemma
leiks og þetta flækti leikinn fyrir
lið Tindastóls. Jafnt var, 16-16,
þegar annar leikhluti hófst en
það var ekki fyrr en um hann
miðjan sem gestirnir náðu
forystunni. Þær náðu mest
ellefu stiga forystu fyrir hlé en
körfur frá Maddie og Evu Rún
löguðu stöðuna. Staðan 33-40 í
hálfleik.
Lið ÍR hóf síðari hálfleikinn
sterkt og var fljótlega komið 15
stigum yfir, 35-50. Jan tók þá
leikhlé og í kjölfarið lagaði
Maddie stöðuna fyrir heima-
stúlkur, gerði sjö stig í röð og
minnkaði muninn í 42-53 og
fjórar mínútur eftir af þriðja
leikhluta. Gestirnir fundu hins
vegar taktinn á ný og skelltu í lás
í vörninni því lið Tindastóls
náði ekki að bæta við stigum í
heilar tíu mínútur eða þar til
tæpar fjórar mínútur voru eftir
af leiknum. Þá var staðan orðin
42-70. Stelpurnar okkar gáfust
þó ekkert upp og náðu að laga
stöðuna lítillega fyrir leikslok.
Maddie var stigahæst með
15 stig en nú var það Ksenja
sem skilaði mestu framlagi
Stólastúlkna, gerði 10 stig, tók
sjö fráköst og átti sex stoð-
sendingar. Inga Sólveig skilaði
tíu stigum á töfluna og þremur
fráköstum en Eva Rún gerði sjö
stig og tók sjö fráköst. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
1. deild kvenna | Tindastóll – ÍR 52–75
Breiðhyltingar reyndust
sterkari gegn Stólastúlkum
Subway-deildin | Tindastóll – Valur 76–62
Góð byrjun Tindastóls
„Ég reikna með að við spilum vörn í vetur og
sendum boltann á milli,“ svaraði Baldur Þór
spurningu Stöð2Sport fyrir fyrsta leik
Tindastóls í Subway-deildinni þennan veturinn.
Með þessu svari hefur hann örugglega glatt alla
stuðningsmenn Stólanna sem flestir voru
ókátir með spilamennsku liðsins á síðasta
tímabili. Andstæðingar Tindastóls í fyrsta leik
voru Valsmenn og þó leikur Tindastóls hafi ekki
verið fullkominn þá var spiluð hörkuvörn,
boltinn var hreyfður vel og leikgleði og vilji
leikmanna var smitandi. Niðurstaðan var góður
76-62 sigur og fín byrjun á mótinu.
Jafnræði var með liðunum framan af leik en
Valsmenn voru þó með örlítið forskot, 16-21,
þegar fyrsti leikhluti var liðinn. Lið Tindastóls
var engu að síður að spila vörnina vel og hún
small enn betur saman í öðrum leikhluta því
þá fóru gestirnir að pirra sig talsvert á lítilli
gestrisni heimamanna. Lið Vals er vel skipað,
þó enn vanti þá Kana, og með mörg ágæt vopn
í sínu búri. Framan af leikhlutanum héldu þeir
í við Stólana og héldu forystunni fram í miðjan
leikhlutann þegar Arnar Björns skellti í þrist og
kom sínum mönnum yfir, 30-29, en Bertoni og
Kári Jóns svöruðu fyrir Val. Síðustu rúmar
fjórar mínútur fyrri hálfleiks léku Stólarnir við
hvern sinn fingur og breyttu stöðunni úr 32-34
í 45-35. Að öðrum ólöstuðum var þessi leik-
hluti að mestu í eigu Sigga okkar Þorsteins sem
átti flottan leik á föstudaginn.
Hlíðarendasveinarnir komust hvorki lönd
né strönd í þriðja leikhluta, en í raun skoruðu
bæði lið lítið en Valsmenn þó sýnu minna.
Varnarleikur beggja liða var sterkur en illa
gekk að koma boltanum í körfuna. Sextán
stigum munaði á liðunum fyrir lokaleikhlut-
ann, staðan 59-43. Nú virtist nokkuð draga af
Stólunum í varnarleiknum og sóknarleikur
beggja liða var nokkuð villtur en einkenndist
kannski helst af því að bæði lið fóru illa með
góða möguleika. Valsmenn, og þá sérstaklega
Kári og Pavel, fengu galopin 3ja stiga skot en
gekk afleitlega að setja þau niður. Kristófer
Acox minnkaði muninn í tíu stig með glæsi-
troðslu þegar tvær og hálf mínúta voru eftir og
Valsmenn klúðruðu tveimur álitlegum mögu-
leikum á að minnka muninn enn frekar áður
en Arnar gerði út um leikinn með öðrum þristi
sínum í leiknum. Staðan 73-60 og innan við
mínúta eftir.
Siggi Þorsteins drjúgur fyrir Stólana
Sem fyrr segir var leikur Tindastóls talsvert
annar en síðasta vetur og gaman að sjá. Liðið
spilaði klikkaða vörn og engir áhorfendur í
henni. Allir leikmenn sem við sögu komu
skiluðu sínu; það var helst að Arnar og Pétur
færu sparlega í að skjóta boltanum. Bess var
stigahæstur með 19 stig en á hæla honum kom
maður leiksins, Siggi Þorsteins, sem gerði 16
stig og hirti 13 fráköst og virkar í fínu formi.
Hinn 36 ára gamli sænski Thomas Massamba
virðist vera alvöru foringjaefni í liðinu; hann er
ekki að fara að sætta sig við eitthvert hálfkák.
Spilaði aggresíva vörn og bar lengstum boltann
upp en var sjaldnast að leita að skoti fyrir
sjálfan sig. Þá sýndi Badmus flotta takta,
eldsnöggur og áræðinn. Helgi Rafn átti flotta
innkomu og skilaði sjö stigum og fjórum
fráköstum á ellefu mínútum og virtist fíla sig
vel við að elta Valsmenn fram að miðju í
vörninni. /ÓAB
Ksenja, slóvenskur leikmaður Tindastóls, með boltann. MYND: DAVÍÐ MÁR
Subway-deildin í stað Dominos-deildarinnar
Stólum ekki spáð titli
Í síðustu viku var haldinn kynn-
ingarfundur fyrir komandi leik-
tíð í úrvalsdeildum karla og
kvenna í körfubolta þar sem
spár þjálfara, fyrirliða og for-
manna liða í úrvals- og 1. deild-
um karla og kvenna voru m.a.
kynntar, ásamt spá fjölmiðla.
Karlaliði Tindastóls er spáð
3. sæti af þjálfurum, fyrirliðum
og formönnum en 5. sæti af
fjölmiðlum en kvennaliðið því
áttunda. Í upphafi fundar var
skrifað undir samning við nýjan
samstarfsaðila úrvalsdeilda og
heitir nú Subway-deildin og
tekur við af Dominos.
Spárnar fyrir Subway-deild-
ina eru nokkuð samhljóða en
samkvæmt þeim munu lið
Njarðvíkur og Keflavíkur
berjast um toppsætið hjá
strákunum en Haukar og Valur
hjá stelpunum. /PF
Taiwo Badmus skilar boltanum í körfu Valsmanna. Það var aftur komin stemning í Síkinu eftir Covid-deyfð síðasta veturs.
MYND: DAVÍÐ MÁR
39/2021 5