Fréttablaðið - 09.08.2022, Page 2
Siglt um Faxaflóa
Þó að ekki hafi viðrað vel til fjallgöngu í gær og gossvæðinu í Meradölum hafi verið lokað, var fínasta veður til siglinga. Þessir sæfarar nýttu vindinn og
skemmtu sér á siglingu um Faxaflóa. Í bakgrunni má sjá listaverkið Þúfu sem stendur við Norðurgarð í Örfirisey og er eftir Ólöfu Nordal. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Félagið Fjallabati hefur að
markmiði að halda aftur af
útbreiðslu lúpínu á miðhá-
lendinu og öðrum viðkvæm-
um gróðursvæðum. Fram
undan er átak á Emstrum.
gar@frettabladid.is
NÁTTÚRA „Okkur finnst mjög gleði-
legt hvað við erum víða að fá jákvæð
viðbrögð við þessum aðgerðum,“
segir Ingibjörg Eiríksdóttir, annar
forvígismanna félagsins Fjallabata
sem fæst við að hefta útbreiðslu
lúpínu á miðhálendinu og víðar.
Ingibjörg ásamt Geirmundi Klein
sendi nýverið fyrir hönd Fjallabata
bréf til Rangárþings eystra þar sem
verkefni félagsins eru kynnt. Þar
segir að þau hafi, ásamt f leirum, að
eigin frumkvæði unnið að heftingu
útbreiðslu lúpínu að Fjallabaki, á
Sprengisandi, á Tungnaáröræfum
og á Kili og einnig á Heklusvæðinu.
Þau segjast vinna að því hefta
útbreiðsluna á Emstrum að Fjalla-
baki syðra og víðar og hafi í sumar
fengið styrki frá Landgræðslunni,
Landsvirkjun og Náttúruverndar-
samtökum Suðurlands.
Markmiðið segir Ingibjörg vera
að hefta frekari útbreiðslu lúpín-
unnar á hálendinu til lengri tíma
litið.
„Af góðum hug var hvatt til dreif-
ingar plöntunnar á sínum tíma, en
reynslan hefur sýnt að þessi annars
duglega landgræðslujurt á ekki alls
staðar við og hopar seint eða jafn-
vel ekki í gljúpum eldfjallajarðveg-
inum hérlendis,“ segir í bréfinu til
Rangárþings eystra.
„Alaskalúpína er ágeng, fram-
andi tegund sem veldur, eða líklegt
er að valdi, rýrnun líffræðilegrar
fjölbreytni. Með hækkandi lofthita
hefur hún í auknum mæli náð að
sá sér á hálendinu á undanförnum
árum, sem er alvarlegt mál með til-
liti til þess að hún hörfar almennt
ekki fyrr en vistkerfinu hefur verð
breytt,“ segir í bréfi Fjallabata.
Á hálendinu hafi tekist að halda
aftur af frekari dreifingu lúpínu
með markvissum aðgerðum á um
tuttugu smærri reitum. Í Hatta-
fellsgili og Mosum á Emstrum séu
breiðurnar þó nokkuð umfangs-
miklar.
Benda þau Geirmundur og Ingi-
björg á að samkvæmt náttúru-
verndarlögum sé bannað að dreifa
lúpínu á friðlýstum svæðum, í
landslagsgerðum sem njóti sér-
stakrar verndar og ofan 400 metra
yfir sjávarmáli.
„Reynsla sumarsins 2022 verður
notuð til skýrari mótunar áætlunar
til lengri tíma, sem lögð verður til
grundvallar áframhaldandi vinnu
komandi ára. Við höfum þegar
hafið slátt með fram læknum í
Hattafellsgilinu, en forgangsatriði
er að hreinsa lúpínuna frá straum-
vatni,“ segir Fjallabati í bréfinu.
Ætlunin sé að reyna að meta
árangur af mismunandi aðferðum
við eyðinguna. Mikill áhugi sé á að
reyna beit í afmörkuðum reitum.
Ingibjörg leggur áherslu á það í
samtali við Fréttablaðið að lúpína
geti sannarlega víða gert gagn á
sumum stöðum sem landgræðslu-
jurt. „En það er áríðandi að hugsa
til enda að hún verður ekki svo
auðveldlega heft. Ástandið í Hatta-
fellsgili á Emstrum var orðið mjög
krítískt. Þetta er svæði á náttúru-
minjaskrá,“ bendir hún á. n
Hefta lúpínu til að varðveita
líffræðilegan fjölbreytileika
Fólkið að baki Fjallabata hefur lengi unnið að því að hefta útbreiðslu lúpínu
á svæðum þar sem hún ógnar öðrum gróðri. MYND/AÐSEND
HJARTA
OG
ÆÐAKERFI
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
OMEGA-3 COLLAGEN
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
Ingibjörg Eiríks-
dóttir í Fjalla-
bata
sigurjon@frettabladid.is
VEÐUR Nú fer sumarfrí að líða undir
lok hjá mörgum og því margir á
faraldsfæti þessar síðustu vikur af
sumrinu. Besta veðrið í vikunni og
komandi helgi verður austanlands,
að sögn Þorsteins V. Jónssonar, veð-
urfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Það verður líklegast best að
vera fyrir austan ef fólk vill losna
við rigninguna, þó að menn verði
ekki alveg lausir við hana. Hitinn
verður í kringum tuttugu stig víða
fyrir austan,“ segir hann.
Vestlæg átt verður ráðandi á
komandi dögum, að sögn Þor-
steins. Hann segir Suður- og Vest-
urland þá helst muna finna fyrir
vætu.
„Það verður áfram frekar milt
veður, það er ekki að sjá neinn
kulda. Það er þessi lægðagangur
sem kemur hérna á okkur með til-
heyrandi vætu á vestanverðu land-
inu en það verður fínasta veður
fyrir austan,“ segir Þorsteinn. n
Besta veðrið
fyrir austan
Hitinn verður í kring-
um tuttugu stig víða
fyrir austan.
Þorsteinn V. Jónsson
sigurjon@frettabladid.is
ELDGOS Fjöldi fólks sótti gosstöðv-
arnar í gær þrátt fyrir að svæðið hafi
verið lokað. Björgunarsveitarhópar
björguðu um tíu manns sem höfðu
hringt í neyðarlínuna og óskað eftir
aðstoð.
„Það var hundleiðinlegt veður og
svartaþoka og þau höfðu villst á leið-
inni. Það var enginn slasaður en fólk
var orðið kalt, blautt og rammvillt,“
segir Davíð Már Bjarnason, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar.
Ekki er vitað hversu margir gengu
að gosstöðvunum í gær en Davíð
segir að þónokkur umferð hafi verið
að svæðinu.
„Þarna voru margir erlendir ferða-
menn, sem eru þá kannski ekki með-
vitaðir um hætturnar og stöðuna á
lokunum og veðri, við getum gert
betur í að tryggja að allir séu vel upp-
lýstir,“ segir Davíð.
Hann segir margt mega lærast af
síðasta gosi. „Á endanum var farið í
það að hafa landverði á staðnum til
að upplýsa fólk og kynna því hætt-
urnar, ég held það gæti gefist vel.“ n
Margir á lokuðum gosstöðvunum í gær
Margir lögðu leið sína að gosstöðv-
unum í Meradölum þrátt fyrir lokun
vegna veðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2 Fréttir 9. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ