Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 9. ágúst 2022
Sælkeranesti sem kætir og gleður
Haustið nálgast og er fallegur árstími þar sem haustlitirnir njóta sín í náttúrunni. Það væri
upplagt að taka með sér sælkeranesti í berjamó eða í bíltúr á Reykjanesið. Finna til dæmis
fallegan áningarstað þar sem glittir í hið magnaða sjónarspil, eldgosið, sem fangar alla. 2
Þórunn elskar að nostra kringum sig og útbúa sælkerakræsingar fyrir hvert tækifæri. Takið eftir litaþemanu sem fangar augað. Ömmubörn Þórunnar, Vignir
Hrafn og Sara Lind, og dóttir hennar Leah Mist, njóta þessara kræsinga á pallinum. Börnin eru öll í fötum frá Bíum bíum, allir í stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þeir sem hafa fengið langvarandi
Covid hafa lýst ýmsum einkennum
eftir vírusinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Rannsóknarhópar frá tveimur
breskum háskólum hafa tekið
saman þau einkenni sem fólk
leitaði með til heimilislækna eftir
Covid-19. Vísindamennirnir telja
sig hafa fundið 62 mismunandi
einkenni sem fólk kvartaði yfir
eftir langvarandi Covid.
Einkennin eru víðtæk. Meðal
þess sem kom mest á óvart var
hversu margir sjúklingar segja
frá minni kynhvöt, ristruflunum,
meltingarvandamálum og hár-
losi. Á alþjóðavettvangi eru nú
viðamiklar rannsóknir í gangi um
hormónaáhrif af Covid-19. Algeng-
ustu einkennin sem fólk kvartaði
yfir voru lyktar- og bragðleysi,
mæði, brjóstverkur og hiti. Einnig
hafa komið upp alvarleg vandamál
eins og aukning á hjartavanda-
málum einum til tveimur mán-
uðum eftir Covid.
Margt óljóst
„Það er ekki óalgengt að fá auka-
verkanir eftir veirusýkingar. Það
þekkjum við frá fyrri heims-
faraldri og inflúensusjúkdómum,“
segir Arne Søraas, læknir við
háskólasjúkrahúsið í Osló, í sam-
tali við vefmiðilinn forskning.no.
„Hins vegar er ljóst að eftir-
verkanir af Covid-19 eru víðtækar
og einkennin geta bitnað harðar á
fólki en við sjáum eftir inflúensu,“
segir Søraas og bætir við. „Við
vitum ekki mikið um Covid-19
vírusinn annað en að hann er frá-
brugðinn öðrum vírusum. Veirur
eru ótrúlega ólíkar,“ segir hann. n
Missa bæði hárið
og kynhvötina
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is