Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 30
Ég var átta tíma að fylla
út eitthvað eyðublað
um að ég væri ekki
hryðjuverkamaður.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
*Mjúka deildin samanstendur af dýnum, sængum, koddum,
rúmfötum, lökum, sloppum, dýnuhlífum, mottum,
inniskóm og handklæðum.
MJÚKIR
DAGAR
20%
afsláttur
af öllum rúmum
og mjúku
deildinni*
Lýkur mánudaginn
15. ágúst
– Við elskum allt mjúkt –
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Tónlistarmaðurinn og sund
kappinn Már Gunnarsson
flytur í haust til Englands og
hefur nám í virtum tónlistar
háskóla. Búferlaflutningarnir
gefa honum tilefni til þess að
halda þrenna kveðjutónleika
víðs vegar um landið í tón
leikaröðinni Sjáumst.
erlamaria@frettabladid.is
Sundkappinn og tónlistarmaðurinn
Már Gunnarsson hefur ákveðið að
láta glæstan sundferil sinn víkja
fyrir tónlistinni. Hann er að hefja
nám í einum virtasta tónlistar
háskóla Bretlands, Academy of
Contemporary Music, í haust og
ætlar því að einbeita sér alfarið að
tónlistinni.
Hann segir atburðarásina, frá
því hann sótti um og þar til hann
var samþykktur inn í skólann, hafa
verið nokkuð hraða. „Eftir Söngva
keppnina og Ólympíuleikana hugs
aði ég mikið um það hvað ég vildi
gera með líf mitt. Fyrir nokkrum
mánuðum sendi ég inn umsókn og
fyrir stuttu fékk ég svar um að ég
væri kominn inn,“ segir Már bros
andi.
Hundurinn Max fer með
Már segist strax hafa farið af stað í
pappírsvinnuna sem fylgi slíkum
flutningum milli landa, þar á meðal
að sækja um landvistarleyfi.
„Það var ógeðslega mikið vesen
að fá vísa. Ég var átta tíma að fylla
út eitthvað eyðublað um að ég væri
ekki hryðjuverkamaður,“ segir Már
og hlær. Hann bætir þó við að enn sé
smá pappírsvinna eftir, þar sem til
standi að Max, leiðsöguhundurinn
hans, f lytji með honum.
Langar í gott kveðjupartí
Már segir að þegar það hafi orðið
ljóst hann væri á leiðinni erlendis
í tveggja ára nám hafi kviknað sú
hugmynd að halda kveðjutónleika.
Þessi hugmynd hafi þróast yfir í
tónleikaröð sem hefur hlotið heitið
Sjáumst, þar sem þrennir tónleikar
eru á dagskrá.
„Ég hugsaði með mér að það væri
gaman að vera með gott kveðju
partí áður en ég fer. Auk þess þá var
ég ekki beint á launum við að æfa
sund og maður þarf að eiga fyrir
skólagjöldunum. Þannig að tónleik
arnir eru bæði tækifæri fyrir mig til
þess að kveðja landa mína í bili og
sömuleiðis fjáröflun fyrir námið,“
segir Már.
Lofar frábærri stemningu
Landslið íslenskra hljóðfæraleikara
verður Má til halds og trausts á tón
leikunum auk gestasöngvara, sem
Már segir að verði kynntir til leiks
þegar nær dregur.
„Ég er búinn að vera eins og
þeytivinda út um allt að hengja
upp plaköt og koma tónleikunum á
framfæri þannig að sem flestir taki
eftir þessu og sjái sér fært að mæta,“
segir Már, sem lofar tónleikagestum
æðislegum tónleikum og frábærri
stemningu.
Allar frekari upplýsingar um tón
leikaröðina, dagsetningar og miða
sala eru á Tix.is. n
Már kveður sundið og
landið með tónleikaröð
Már hefur ákveðið að leggja farsælan sundferilinn á hilluna. MYND/AÐSEND
Már sleppir sundtökunum en herðir tökin á tónlistinni með háskólanámi í Englandi þangað sem þeir Max halda
saman í haust eftir að hafa klórað sig í gegnum landflutningaskriffinnskuna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
18 Lífið 9. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ