Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 13
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS
Fasteignablaðið
32. TBL. 9. ÁGÚST 2022
Miklaborg og Jórunn, lög-
giltur fasteignasali, kynna
til sölu Mjóanes, lóð númer
17, í Bláskógabyggð. Lóðin
er eignarland sem liggur að
Þingvallavatni, þrír hektarar
að stærð. Landið er norð-
vestanmegin við Miðfell
og liggja landamörk fyrir
Mjóanes við land Arnarfells,
Gjábakka og Miðfells, auk
kennileita til austurs, á milli
Miðfells og Arnarfells.
Mjóanes er sumarbústaðaland
í mikilli náttúruparadís, landið
er lyngi og kjarri vaxið, þar sem
vatnið hefur mikil áhrif á upp-
lifunina. Norðanmegin gefur að
líta Arnarfell, Botnssúlur, Búrfell,
Ármannsfell og Hrafnabjörg, svo
eitthvað sé nefnt. Þjónustumið-
stöð á Þingvöllum er í tólf kíló-
metra fjarlægð.
Aðkoma að lóðinni í Mjóanesi
er frá þjóðvegi 36. Kostur er hversu
vegalengdin er stutt til að komast
í mikla nálægð við náttúruna, um
40 kílómetrar eða einungis um
45 mínútna akstur. Landið er rétt
sunnan megin við Almannagjá og
þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Jörðin er þakin mosa- og grasi-
vöxnu hrauni, nema þar sem
hlíðar Miðfells rísa upp af henni.
Á nesinu sjálfu eru slétt tún yfir
hrauninu. Landið hallar lítillega og
er nokkuð jafnhallandi frá austri
til vesturs, í átt að Þingvallavatni,
ef frá eru taldar hlíðar Miðfells til
suðurs. Fuglalíf er mikið og fjöl-
breytt, bæði á landi og legi.
Svæðið er tilvalið til útivistar og
möguleikar til gönguferða góðir.
Siglingar á Þingvallavatni eru
sömuleiðis tilvaldar. Góð silungs-
veiði er í vatninu og hægt að fá
veiðileyfi. Golfvellir eru víða, svo
sem á Selfossi, í Hveragerði og
Kiðabergi. Hestaleigur eru einnig
víða í nágrenninu, og sundlaugar á
Ljósafossi, Selfossi, Laugarvatni, í
Hveragerði og víðar.
Núverandi deiliskipulag gerir
ráð fyrir nítján lóðum. Samtals
eru frístundabyggðarlóðir 534.000
fermetrar. Byggingarskilmálar eru
að hús skuli að jafnaði ekki vera
stærri en 220 fermetrar að grunn-
fleti og ekki minni en 30 fermetrar.
Að auki er heimilt að byggja auka-
hús, svo sem verkfærageymslu, allt
að 30 fermetra á hverri lóð.
Hnit eru: N.64.1795 / E. -21.0732
Óskað er eftir tilboði í eignina.
Þetta er einstakt tækifæri til að
eignast eignarland á þessum ein-
staka stað. n
Allar nánari upplýsingar veitir
Jórunn, löggiltur fasteignasali, í
síma 845 8958 og á netfanginu
jorunn@miklaborg.is
Paradís við Þingvallavatn
Lóðin í Mjóanesi er mikil náttúruparadís, rétt sunnan megin við Almannagjá og þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Lóð númer 17 í Mjóanesi er þrír hektarar að stærð, með gríðarfagurt útsýni.
Þetta er einstakt
tækifæri til að
eignast eignarland á
þessum einstaka stað.
Svæðið er tilvalið til
útivistar og eru mögu-
leikar til útivistar góðir.
Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali.
Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is
Fasteignasalar og nemar
Fold fasteignasala óskar eftir sölumönnum til starfa.
Áhugi á sölumennsku og mannlegum samskiptum
ásamt faglegum metnaði er skilyrði. Við bjóðum
upp á nútímalega, fallega vinnuaðstöðu miðsvæðis í
Reykjavík og reynslumikið samstarfsfólk sem vinnur
vel saman að úrlausn verkefna.”
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á
vidar@fold.is
Fasteignasalar og nemar
Fold fasteignasala óskar eftir sölufulltrúa til
starfa. Fold hefur starfað í áratugi og eru starfs-
menn reiðubúnir að vinna með þeim sem eru
að stíga sín fyrstu skref sem og reynslumiklum
fasteignasölum.
Vinnurými eru vel búin, björt og hugguleg og
lagt upp úr góðri samvinnu starfsmanna.
Skilyrði er að umsækjendur séu löggiltir
fasteignasalar eða í löggildingarnámi.
Umsóknir sendist á vidar@fold.is