Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 28
Ég fullyrði að þeir sem fara á tónleika með svona listamönnum segja bara: Vá! Af hverju er ég ekki búinn að gera þetta fyrr? KVIKMYNDIR Bullet Train Leikstjórn: David Leitch Aðalhlutverk: Brad Pitt, Joey King, Aaron Taylor-Johnson Oddur Ævar Gunnarsson Hraðskreiðasta lest veraldar þeyt- ist milli Tokyo og Kyoto sem sögu- svið þessarar súrrealísku en bráð- skemmtilegu hasarmyndar sem í upphafi virkar dálítið eins og ein- hvers konar spennumyndarútgáfa af rómantísku gamanmyndinni Love Actually. David Leitch, sem er þekktastur fyrir Deadpool 2, leikstýrir Bullet Train, þar sem hann teflir fram hópi leikara sem standa sig heilt yfir vel og virðast hafa notið sín vel við gerð myndarinnar. Brad Pitt fer hreinlega á kostum og virðist skemmta sér konunglega í aðalhlutverkinu sem seinheppinn fyrrum launmorðingi sem gengur undir dulnefninu Maríubjalla. Lestarferðin er varla hafin þegar hann lendir í hörkuvandræðum með, að því er virtist, það einfalda verkefni að sækja eina tösku um borð í ómerkilega hraðlest. Ekki er annað að sjá en aðrir leik- arar hafi einnig skemmt sér konung- lega og finni sinn takt í þeim léttúð- uga og oft og tíðum jafnvel einum of sturlaða tón sem sleginn er í mynd- inni. Aaron Taylor-Johnson og Brian Tyree Henry eru stórskemmtilegir sem morðóðir breskir sprelligosar sem gegna dulnefnum úr ávaxta- ríkinu, á meðan Joey King fær áhorf- endur til að halda ýmist með sér eða á móti út myndina, í hlutverki enn eins leigumorðingjans. Handrit myndarinnar byggir á japönsku skáldsögunni Maria Beetle sem hentar ágætlega til síns brúks og söguþráðurinn minnir á klassíska skáldsögu eftir Agöthu Christie, nema með miklu meira blóði, húmor og bulli. Framvindan er því ekkert of f lókin en nægilega rugluð fyrir hasarmynd á borð við þessa og Bullet Train er nefnilega, þótt hún sé á köflum undarleg, hasarmynd og sem slík ekki endilega allra því hún tekur sig heldur ekkert sérstaklega alvarlega, sem gæti farið í taugarnar á alvörugefnustu bíógestunum. Sturlunin fer þannig sífellt stig- vaxandi eftir því sem á líður mynd- ina og sýran verður sterkari og sterkari. Þess vegna verður lokahluti myndarinnar að mati undirritaðs eilítið of langdreginn og leikstjóri og handritshöfundur hafa mögulega einum of mikla trú á skemmtana- gildi sögunnar. Sá kengur kemur hins vegar alls ekki í veg fyrir að mælt sé með því að sjá Bullet Train í bíó. n NIÐURSTAÐA: Bullet Train er stórskemmtileg mynd sem tekur sig alls ekki alvarlega en vitleysan gæti aftur á móti reynst sumum um megn enda verður lokahnykk- urinn aðeins of langdreginn þótt skemmtigildið sé óumdeilt. Agatha Christie á japönskum hasarsterum Maríubjallan Brad Pitt er í hörkustuði í Bullet Train. toti@frettabladid.is Eldgosið hitar upp fyrir Bjartmar Guðlaugsson „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur Risunum og alls staðar uppselt með góðum fyrirvara,“ segir tónlistarmaður- inn Bjartmar Guðlaugsson, sem hefur verið með hljómsveit sinni, Bergrisunum, á tónleika- ferðalagi um landið í kjölfar þess að þeir kjaftfylltu Háskólabíó á 70 ára afmælistónleikum hans í júní. „Næst tökum við áhættu og höldum tónleika í Gígnum, Grinda- vík, föstudagskvöldið 12. ágúst, en náttúruöflin eru að hita upp fyrir okkur Bergrisana,“ segir Bjartmar og hlær enda vandfundnar heitari slóðir á landinu en þessar eftir að byrjaði að gjósa í Meradölum. Bergrisarnir og Bjartmar halda sömu línu og var mörkuð í Há- skólabíói og munu fara yfir feril Bjartmars og flytja bæði gömul lög og ný. Dauðaþögn á platínu Plata Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, hefur selst í 40.000 eintökum og útgefandinn Alda Music hefur því afhent tónlistar- manninum fjórfalda platínuplötu. Ásgeir Trausti gaf út sín fyrstu lög á vormánuðum 2012 og hann varð fljótt og örugglega einn allra vin- sælasti tónlistarmaður landsins. Dýrð í dauðaþögn kom út þetta sama ár og sló öll íslensk sölumet og hún hefur setið samtals í 415 vikur á Tónlistanum, yfirliti yfir mest seldu plötur landsins. Platan var endurútgefin fyrr á þessu ári á tvöföldum vínyl og geisladiski þar sem fjórum aukalögum var bætt á plötuna. Ásgeir Trausti var tvítugur þegar platan kom út fyrir tíu árum og til þess að halda upp á þessi tímamót ætlar hann að vera með tónleika í Hörpu laugardaginn 27. ágúst með stórhljómsveit og strengjum. Yfirskrift tónleikanna er Dýrð í dauðaþögn – 10 ára afmælistón- leikar og á þeim verður platan flutt í heild í bland við frumflutn- ing á glænýju efni. Árný Margrét hitar upp. Miðasala er hafin á harpa.is. n Eldgos hófst á Reykjanesi, í Mera- dölum, á svipuðum slóðum og gosið í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Ásgeir Trausti með platínuplötuna fyrir 40.000 seldu eintökin. n Fréttir af fólki Bjartmar Guðlaugsson Nýsjálenska tónlistarkonan Aldous Harding leggur lykkju á leið sína til þess að halda tónleika í Hljómahöll- inni í Reykjanesbæ í næstu viku. Kærastinn hennar, H. Hawkline, verður með í för og hitar upp, þannig að Grímur Atlason, sem er eldri en tvæ- vetra í tónleikahaldi fullyrðir að í boði verði tveir fyrir einn af stórkostlegri tónlist. toti@frettabladid.is Tónlistarkonan Aldous Harding spilar á tónleikum í Hljómahöll- inni í Reykjanesbæ að kvöldi mánu- dagsins 15. ágúst og Grímur Atlason, tónleikahaldari með meiru, segir að nú fari hver að verða síðastur til að tryggja sér miða af þeim rétt um 100 sem eftir eru á Tix.is. „Við erum að tala um nýsjálensk- an hvalreka. Hún er algjörlega stór- kostleg,“ segir Grímur og er nokkuð niðri fyrir þegar hann talar um Harding, sem hefur frá sinni fyrstu plötu, Aldous Harding frá 2014, ekki síður vakið athygli fyrir lagasmíðar en flutning. „Hún kemur fram með þessa plötu sem hét bara eftir henni og vakti smá athygli,“ segir Grímur sem hefur fylgst með Harding frá fyrstu plötunni. „2017 kemur hún með aðra plötu sem heitir Party og þá opnuðust gáttirnar. Þá kom hún og spilaði á Airwaves hjá mér í Frí- kirkjunni og var stórkostleg.“ Búinn að reyna lengi Grímur segist allar götur síðan vera búinn að reyna að fá hana til þess að koma aftur og halda sína eigin tónleika. „Það hefur gengið illa. Við vorum að spá í fyrra en það gekk ekki. Náttúrlega búið að vera Covid og vesen en í millitíðinni er hún búin að gefa út tvær plötur; Designer 2019 og svo Warm Chris núna í ár.“ Grímur segir tónleikahald Har- ding vera að komast á almennilegt skrið eftir heimsfaraldurinn. Hún sé búin að vera á ferð um Bandaríkin, þræði tónlistarhátíðir og sé á ferð um Evrópu þegar hún tekur smá krók til að koma við á Íslandi sem sé ekki sjálfgefið, enda landið ekki í alfaraleið. Harding hefur unnið síðustu þrjár plötur sínar, Party, Designer og Warm Chris, með tónlistarmannin- um John Parish, sem er meðal ann- ars þekktur fyrir samstarf sitt með PJ Harvey, Eels og Tracy Chapman. Party og Designer fengu einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunn- enda um allan heim. Designer fékk þannig fullt hús fimm stjarna hjá tímaritinu Q og The Independent og lagið Barrel náði talsverðri spilun á Íslandi þegar það kom út í febrúar 2019. Grímur segir nýju plötuna, Warm Chris, einnig hafa fengið frábæra dóma og bendir á að Clash gaf plöt- unni 9 í einkunn og Mojo og Uncut 8. Lögin Fewer og Lawn af Warm Chris hafa heyrst á öldum ljósvak- ans síðustu vikur. Vá! „Hún er alveg þekkt hér, hjá þeim sem hlusta á tónlist,“ segir Grímur, þegar hann útskýrir hvers vegna aðeins um 100 miðar eru eftir þegar tæp vika er í tónleikana. Þá bætir hann við að ekkert sé að því að opna stundum aðeins og prufa eitthvað nýtt. „Vegna þess að það er alltaf þetta sama, ég fullyrði að þeir sem fara á tónleika með svona listamönnum segja bara: Vá! Af hverju er ég ekki búinn að gera þetta fyrr? Af því að maður er alltaf í þessu sama rugli, þú veist. Mín kynslóð festist bara í Pixies eða eitthvað. David Bowie eða eitthvað, sem er yndislegt en maður þarf að halda áfram.“ Grímur segist sjálfur vera svo heppinn að hafa aldrei staðnað alveg. „Ég er búinn að halda tónleika allan þennan tíma og þá var maður alltaf að spá í hvað er að gerast og Airwaves ýtti mér alveg fram af bjargbrúninni með það að reyna að vera alltaf að hlusta á eitthvað nýtt. Ekki bara Bowie, sko, og Duran eru fínir skilurðu, en það má alveg hlusta á eitthvað annað. Ég held líka bara að vaxandi hugarfar sé málið. Annars bara koðnar maður inni og verður óhamingjusamur.“ Tvöfaldur skammtur Velski tónlistar- og fjölmiðlamað- urinn H. Hawkline hitar upp fyrir Aldous Harding. Hann hóf sóló- feril sinn árið 2010 og hefur síðan þá gefið út fjórar plötur. Hann hefur unnið með Cate Le Bon og Kevin Morby og síðustu árin með Aldous Harding. „Hann er kærastinn hennar og er í bandinu líka þannig að maður er að fá svolítið tveir fyrir einn af stórkostlegri tónlist,“ segir Grímur. Hljómahöllin opnar klukkan 19 á mánudagskvöld og tónleikarnir hefjast klukkustund síðar. Rútu- ferðir eru í boði milli Reykjavíkur og Hljómahallarinnar í Reykjanesbæ, fyrir þá sem vilja, en Grímur segir vel þess virði að leggja á sig smá akstur til þess að njóta tónlistar Harding. „Hljómahöllin er langbesta húsið á Íslandi af þessari stærðargráðu og það er ógeðslega gott að fara á tónleika þarna,“ segir Grímur sem talar ekki alveg út í bláinn, hokinn af reynslu af tónleikahaldi síðan 1987. n Stórkostlegur nýsjálenskur hvalreki Sætaferðir verða í boði á tónleika Aldous Harding í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ í næstu viku. MYND/AÐSEND 16 Lífið 9. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 9. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.