Fréttablaðið - 09.08.2022, Blaðsíða 9
Tíu þús-
und konur,
börn og
karlar voru
drepin
á auga-
bragði,
fuðruðu
upp í vítis-
logum.
Síðastliðinn laugardag stóð ég stolt-
ur við hlið Fumio Kishida, forsætis-
ráðherra Japans og íbúa Hiroshima
á minningarathöfn um fordæma-
lausar hamfarir.
Fyrir sjötíu og sjö árum var
kjarnorkusprengjum varpað á íbúa
Hiroshima og Nagasaki.
Tíu þúsund konur, börn og karlar
voru drepin á augabragði, fuðr-
uðu upp í vítislogum. Byggingar
umbreyttust í ryk. Fallegar ár borg-
anna voru litaðar blóði.
Þeir sem lifðu af glímdu við bölv-
un geislavirkni, og látlaus veikindi
auk þess að búa við smán vegna
kjarnorkuárásarinnar.
Ég naut þess heiðurs að hitta hóp
eftirlifenda, svokallaðra hibakusha,
en þeim fer óðum fækkandi. Þau
sögðu mér frá einstökum hetjudáð-
um sem þau urðu vitni að þennan
skelfilega dag 1945.
Það er kominn tími til að ver-
aldarleiðtogar öðlist sömu glögg-
skyggni og hibakusha-fólkið og
viðurkenni hið sanna eðli kjarn-
orkuvopna. Þau þjóna engum til-
gangi. Þau munu ekki tryggja öryggi
eða vernd. Í eðli sínu geta þau ein-
ungis valdið dauða og eyðileggingu.
Þrír f jórðu hlutar aldar eru
liðnir frá því sveppalöguð skýin
mynduðust fyrir ofan Hiroshima
og Nagasaki. Á þessum tíma hefur
mannkynið þraukað tíma kalda
stríðsins, og áratugi af fáránlegum
línudansi. Nokkrum sinnum hefur
mátt minnstu muna að mannkynið
yrði gereyðingu að bráð.
En jafnvel á meðan á fimbul-
vetri kalda stríðsins stóð, sömdu
kjarnorkuveldin um verulega
fækkun í kjarnorkuvopnabúrum
sínum. Almennt samkomulag var
um meginsjónarmið um notkun
þeirra, útbreiðslu og tilraunir með
kjarnorkuvopn.
Í dag er hætta á að við séum að
gleyma lærdómunum frá 1945.
Nýtt vopnakapphlaup er að fær-
ast í aukana og ríkisstjórnir verja
hundruðum milljarða Bandaríkja-
dala til að uppfæra kjarnorkuvopn
sín. Nærri 13 þúsund kjarnorku-
vopn eru nú í vopnabúrum um allan
heim. Deilur færast í vöxt, þar sem
kjarnorkuvopn eru undirtónn, frá
Miðausturlöndum til Kóreuskaga,
að ógleymdri innrás Rússlands í
Úkraínu.
Enn einu sinni er mannkynið
að leika sér með hlaðna byssu. Við
erum einum mistökum, einum mis-
skilningi frá dómsdegi.
Leiðtogum ber að hætta að berja
að dyrum dómsdags og fjarlægja
möguleikann á notkun kjarnorku-
vopna í eitt skipti fyrir öll.
Það er óásættanlegt að ríki sem
búa yfir kjarnorkuvopnum skuli
viðurkenna möguleikann á kjarn-
orkustríði því slíkt myndi hafa í för
með sér endalok mannkyns.
Að sama skapi ber kjarnorku-
ríkjum að skuldbinda sig til að
vera ekki fyrst til að grípa til slíkra
vopna. Þeim ber einnig að fullvissa
þau ríki sem ekki búa yfir slíkum
vopnum, um að þau muni hvorki
nota né hóta að nota kjarnorku-
Skilaboð mín frá Hiroshima
António
Guterres
aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu
þjóðanna
vopn gegn þeim og vera fullkom-
lega gegnsæ að öllu leyti. Hótunum
verður að linna.
Þegar upp er staðið er aðeins ein
lausn á kjarnorkuvánni: Að kasta
kjarnorkuvopnum fyrir róða. Þetta
þýðir að nýta þarf hvern einasta
vettvang viðræðna, stjórnarerind-
reksturs og samninga til að draga
úr spennu og eyðileggja þessi ban-
vænu gereyðingarvopn.
Við sjáum jákvæð teikn á lofti í
New York þar sem tíunda endur-
skoðunarráðstefna Samningsins
um takmörkun útbreiðslu kjarn-
orkuvopna stendur yfir. Samning-
urinn er ein ástæða þess að kjarn-
orkuvopnum hefur ekki verið beitt
síðan 1945. Hann felur í sér skuld-
bindingar um kjarnorkuafvopnun.
Hann getur reynst þungur á met-
unum í baráttunni fyrir afvopnun,
einu leiðarinnar til að eyða þessum
skelfilegu vopnum í eitt skipti fyrir
öll.
Og í júní hittust aðilar samnings-
ins um bann við kjarnorkuvopnum
í fyrsta skipti til að þróa vegvísi í átt
til veraldar sem er laus við þessar
vítisvélar.
Við getum ekki lengur samþykkt
tilvist vopna sem ógna framtíð
mannkyns.
Það er tími til kominn að taka
undir boðskap hibakusha fólksins:
„Aldrei f leiri Hiroshima! Aldrei
f leiri Nagasaki“
Tími útbreiðslu friðar er kominn.
Í sameiningu getum við, skref
fyrir skref, fjarlægt þessi vopn af
yfirborði jarðar. n
Skeifunni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 533 4450 | everest.is | everest@everest.is | facebook.com/everestverslun
Vango Osiris 500
5 manna fjölskyldutjald
99.995,- 69.997,-
Vango Winslow 500
5 manna fjölskyldutjald
69.995,- 48.997,-
Vango Joro 450
4 manna fjölskyldutjald
114.995,- 80.497,-
Vango Stargrove 600 XL
6 manna fjölskyldutjald
129.995,- 90.997,-
Tilboðsdagar
Öll fjölskyldutjöld á
30% afslætti
ÞRIÐJUDAGUR 9. ágúst 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ