Morgunblaðið - 06.04.2022, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. A P R Í L 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 81. tölublað . 110. árgangur .
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
HLUSTAR Á ALLT
NEMA KÁNTRÍ
OG RAPP
YOUTUBE
STÆRSTA
ÓGNIN
FRUMRAUN
TEITS Í FULLRI
LENGD
VIÐSKIPTAMOGGINN UGLUR FRUMSÝND 24BOGI SJÖTUGUR 20
Aðsókn í athvarf samtakanna
„Flottafólks“ í Guðrúnartúni 8 í
Reykjavík náði nýjum hæðum í
fyrrakvöld, að sögn Sveins Rúnars
Sigurðssonar, læknis, tónlistar-
manns og athafnamanns, sem hefur
haft forgöngu um aðstoð við flótta-
mennina frá Úkraínu sem leitað
hafa skjóls hér á landi.
„Þetta hefur verið að aukast og í
gær [fyrradag] komu um 200
manns í mat og til að sækja sér föt
og afþreyingu,“ sagði Sveinn. Opið
er í Guðrúnartúni fjögur kvöld vik-
unnar milli kl. 18.00 og 20.00.
Foreldrar og börn hafa fengið at-
hvarf á neðri hæð Fíladelfíu í Há-
túni 2 en þar er opið fimm daga vik-
unnar milli kl. 10.00 og 15.00.
Sjálfboðaliðar annast rekstur at-
hvarfanna. Þeirra á meðal er fag-
lært fólk sem flúði hingað frá Úkra-
ínu og eins íslenskt fagfólk sem
hefur lagt lið við barnastarfið.
Þessar úkraínsku stúlkur undu
sér vel við leik þegar ljósmynd-
arinn kom í heimsókn í gær. »2 Morgunblaðið/Eggert
Í skjóli
frá stríðs-
átökum
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Íbúar Bútsja sem ekki náðu að flýja
bæinn hafa lifað við hreint helvíti síð-
asta mánuð. Ekkert rennandi vatn
eða rafmagn er í bænum, og til að
halda á sér hita hefur fólk þurft að
sofa í öllum fötum undir sæng. Ekk-
ert líf er á götum úti fyrir utan þau
gæludýr sem hafa verið skilin eftir
eða eigendur þeirra myrtir.
Rússneskir hermenn hafa gjör-
eyðilagt heilu íbúðarhverfin. Þetta
segir Óskar Hallgrímsson ljósmynd-
ari sem búsettur er í Kænugarði en
hann ásamt hópi blaðamanna heim-
sótti í gær bæinn sem hefur mikið
verið í sviðsljósinu síðustu daga
vegna fjöldamorðsins sem þar var
framið. Þar náði hann tali af heima-
mönnum og sá með eigin augum þá
eyðileggingu sem hefur átt sér stað
síðustu vikur.
„Þetta er bara ein stór brunarúst
þessi borg,“ segir Óskar þegar hann
lýsir sjóninni sem blasti við í bænum.
„Þú heyrir ekki í neinum, það er eng-
in umferð. Þú heyrir bara í vindinum
og glerbrotum.“
Skutu á fólkið sem bar líkin
Búið var að fjarlægja flest líkin
sem lágu á götum borgarinnar þegar
Óskar kom í gær, en þau höfðu legið
á víð og dreif um borgina.
Að sögn þeirra heimamanna sem
hópurinn náði tali höfðu kæli-
geymslur í líkhúsum fyllst. Íbúar á
svæðinu gripu þá til þess ráðs að
flytja hina látnu í fjöldagrafir sem
þeir grófu sjálfir. Í fyrstu leyfðu
rússnesku hermennirnir fólkinu að
fara óáreitt með líkin í grafirnar, það
breyttist þó þegar líða tók á stríðið.
„Síðan einn daginn hættu þeir að
láta þá í friði og fóru að skjóta á þá.
Skjóta fólkið sem var að fara með lík-
in í fjöldagrafirnar,“ segir Óskar.
Höggið í heimsókninni kom þó
ekki af alvöru fyrr en Óskar og
blaðamennirnir heimsóttu nýbygg-
ingahverfi í bænum. „Það var ekkert
heilt sem við sáum. Neins staðar.“
Íbúar Bútsja bjuggu við helvíti
- Bærinn ein stór brunarúst að sögn Íslendings á vettvangi - Enginn hiti og ekk-
ert rafmagn - Gæludýr skilin eftir í bænum - Líkhúsin full eftir árásir Rússa
MRússum verði vísað... »11
_ Engar kvart-
anir eða gagnrýni
hafa borist frá
fagfjárfestum
vegna söluferlis á
22,5% hlut í Ís-
landsbanka í ný-
liðnum mánuði.
Þetta staðfestir
Lárus Blöndal
stjórnarformaður
Bankasýslunnar í viðtali í Dagmálum
í dag þar sem hann ræðir ferlið og þá
gagnrýni sem komið hefur fram á
ferlið ásamt Jóni Gunnari Jónssyni
forstjóra stofnunarinnar.
Þeir segja ferlið afar vel heppnað
og að meira hafi fengist fyrir hlut rík-
isins í bankanum en gert hafi verið
ráð fyrir. »ViðskiptaMogginn
Engin gagnrýni frá
fagfjárfestum
Lárus Blöndal