Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 BEINT Í SÓL | 13 DAGAR Á TENERIFE ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 20. APRÍL - 01. MAÍ 13 DAGAR PARQUE SANTIAGO 4* VERÐ FRÁ166.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 208.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA 20. APRÍL - 01. MAÍ 13 DAGAR MARYLANZA SUITES & SPA 4* VERÐ FRÁ150.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 218.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fyrsti Úkraínumaðurinn, úr hópi flóttamanna, kom til Vinnumálastofnunar í gær í atvinnuleit og var skráður sem slíkur, að sögn Unnar Sverrisdóttur, forstjóra stofnunarinnar. Hún sagði viðbúið að fleiri flóttamenn frá Úkraínu komi í atvinnuleit á næstu dögum. Útgáfa atvinnuleyfis gengur greiðlega uppfylli vinnan skilyrði m.a. um samningsbundin kjör. Vinnumálastofnun tekur þátt í samræmdri móttöku flóttamanna. Þar eru ráðgjafar sem sinna eingögu þjón- ustu við flóttamenn, þar á meðal samfélagsfræðslu. Flóttamaður sótti um vinnu VINNUMÁLASTOFNUN MEÐ ÞJÓNUSTU VIÐ FLÓTTAMENN Unnur Sverrisdóttir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Aðsókn í athvarf samtakanna „Flottafólks“ í Guðrúnartúni 8 í Reykjavík náði nýjum hæðum í fyrrakvöld, að sögn Sveins Rúnars Sigurðssonar, læknis, tónlistar- manns og athafnamanns, sem hefur haft forgöngu um aðstoð við flótta- mennina frá Úkraínu. „Þetta hefur verið að aukast og í gær [fyrradag] komu um 200 manns í mat og til að sækja sér föt og af- þreyingu,“ sagði Sveinn í gær. At- hvarfið í Guðrúnartúni er opið milli klukkan 18.00 og 20.00 frá mánudegi til og með fimmtudags. Hópurinn er að stærstum hluta konur og börn, en stöku eiginmenn einnig. Fólkið er á öllum aldri, börn, unglingar, for- eldrar og afar og ömmur. Foreldrar og börn hafa haft at- hvarf á neðri hæð Fíladelfíu í Hátúni 2. Það er opið frá klukkan 10.00 til 15.00 frá mánudegi til og með föstu- dags. „Þar er framreiddur morg- unverður og hádegismatur. Við höf- um notið stuðnings íslenskra fyrirtækja með mat og drykk og fólk fær nóg að borða. Einnig er þar tón- listarstofa, afþreying og ferðatölvur fyrir foreldra til þess að dreifa hug- anum á netinu. Þessi aðstaða er líka að sprengja utan af sér,“ segir Sveinn. Verið er að skoða möguleika á að opna fleiri úrræði, t.d. í Hafn- arfirði eða annars staðar í Reykja- vík. „Mér skilst að Reykjavíkurborg verði tilbúin með sín fínu úrræði í kringum páskana. Þá getum við mögulega lokað þessu eða borgin komið að því með beinum hætti.“ Sjálfboðaliðar annast rekstur at- hvarfanna. Þeirra á meðal er faglært fólk sem flúði hingað frá Úkraínu og eins íslenskt fagfólk sem hefur lagt lið við barnastarfið. Fram kemur á heimasíðunni help- ukraine.is og í facebookhópnum Ís- land fyrir Úkraínu að ofgnótt hafi borist af notuðum fötum. Börn sem koma fá nýjan vetrargalla og skó hjá hjálparstarfinu. Enn er þörf fyrir ónotuð föt, ýmsar hreinlætis- og snyrtivörur, eins bleyjur og blaut- klúta svo nokkuð sé nefnt. „Maður er hrærður yfir aðkomu landsmanna og íslenskra fyrirtækja að þessu hjálparstarfi. Það er sömu sögu að segja um allt land. Gott dæmi er hvernig Vesturbæingar tóku við flóttafólkinu sem kom á Hótel Sögu. Eins hefur fólk hlaupið undir bagga þar sem hefur vantað mat. Þessi velvild er með ólíkindum. Ég er stoltur af því hvað er mikill samtakamáttur í samfélaginu varð- andi það að hlúa að þessu fólki. Ég vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem hafa sinnt þessu,“ segir Sveinn. Ferðamenn geta verið í 90 daga Gylfi Þór Þorsteinsson, verk- efnastjóri við móttöku flóttamanna, veit ekki til þess að flóttamenn hafi farið héðan aftur til Úkraínu. Gylfi segir að í nágrannalöndum Úkraínu sé mikill fjöldi flóttamanna og skorti m.a. gistirými. Sumir hafi því kosið að snúa frekar aftur heim til ætt- ingja og vina. Hann bendir á að Úkraínumenn geti komið hingað sem ferðamenn, án þess að biðja um vernd, og dvalið hér í 90 daga. Talið er að töluverður hópur hafi gert það. Opnuð hefur verið vefsíða, first- medical.is, þar sem flóttafólk frá Úkraínu getur svarað heilsufars- spurningum og forskráð sig fyrir komu hingað. Það er ekki umsókn en flýtir fyrir skráningarferlinu. Landamærasvið ríkislög- reglustjóra hefur ekki upplýsingar um hve margir Úkraínumenn hafa komið hingað undanfarið sem ferða- menn. Það muni skýrast sæki þeir hér um alþjóðlega vernd ef stríðið dregst á langinn. Að sögn lögregl- unnar er búist við að það geti orðið „einhver fjöldi“. Flóttafólk mætir víða velvild - Mikil aðsókn í athvörf flóttafólks frá Úkraínu - Um 200 manns komu í Guðrúnartún í fyrrakvöld - Fólk og fyrirtæki hafa stutt myndarlega við hjálparstarfið - Rætt um að opna þurfi fleiri úrræði Morgunblaðið/Eggert Örugg Athvarf fyrir börn frá Úkraínu er opið í Hátúni 2 í Reykjavík fimm daga vikunnar frá klukkan 10.00 til 15.00. Þar er boðið upp á morgunverð og hádegisverð, aðstöðu fyrir foreldra og leikföng sem börnin geta leikið sér með. Læknir Sveinn Rúnar Sigurðsson. Mun lægra hlutfall barna á aldr- inum fimm til ellefu ára hafa verið bólusett við Covid-19-sjúkdómnum samanborið við börn og unglinga á aldrinum 12 til 17 ára. Fer hlut- fallið ört lækkandi eftir því sem börnin eru yngri. Samkvæmt upplýsingum í svör- um embættis landlæknis við fyr- irspurn Morgunblaðsins hefur 91% þeirra sem fæddir eru árið 2005 fengið tvo eða fleiri skammta af bóluefni gegn sjúkdómnum. Til samanburðar hafa um 24% barna fædd árið 2016 fengið tvo eða fleiri skammta. Þá hefur einungis 1% barna fengið tvo eða fleiri skammta sem fædd eru árið 2017 en tekið skal fram að einungis hluta af þeim árgangi stóð það til boða, eða þeim sem hafa náð fimm ára aldri. Þess skal getið að bólusetningar ungmenna á aldrinum 12 til 17 ára voru heimilaðar fyrr hér á landi og hófust þær á síðasta ári. Börn á aldrinum 5 til 11 ára gátu ekki fengið bólusetningu fyrr en í árs- byrjun. Þá var smittíðni í samfélaginu jafnframt mun hærri og því fleiri börn sem höfðu fengið sjúkdóminn. hmr@mbl.is Hlutfall barna bólusettum við Covid-19 Eftir fjölda sprauta, börn fædd árin 2005-2017 Árgangur Ein Tvær eða fleiri 2005 3% 91% 2006 4% 83% 2007 4% 79% 2008 5% 75% 2009 8% 66% 2010 21% 42% 2011 20% 40% Árgangur Ein Tvær eða fleiri 2012 18% 41% 2013 20% 39% 2014 18% 37% 2015 19% 35% 2016 18% 24% 2017* 1% 1% *Einungis hluta árgangs 2017 stóð bólusetning til boða vegna aldurs. Heimild: Embætti landlæknis. Bólusetningarhlutfall lækkar með aldri barna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.