Morgunblaðið - 06.04.2022, Side 8

Morgunblaðið - 06.04.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Tokyo línan Fáanlegt í svörtu, hnotu og eik Í tíð vinstri meirihluta Samfylk- ingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri-grænna hefur Reykjavíkur- borg staðið gegn umbótum í sam- göngum og orðið verulega ágengt eins og sjá má á miklum og vaxandi töfum í umferðinni. Lausnin á þessu var „samgöngsáttmáli fyrir höfuðborgar- svæðið“ þar sem meirihlutinn í Reykjavík þvingaði fram borgar- línu því ella yrði ekkert gert í sam- göngumálum á svæðinu. Þessi „sátt“ var verri en ekkert; gríðar- legur kostnaður en afar takmark- aðar samgöngubætur, jafnvel minni en engar vegna þrenginga borgar- línunnar. - - - Aðgerðaleysi vinstri meirihlut- ans í lóðamálum veldur sams konar vanda þegar kemur að hús- næði. Verðið hefur rokið upp úr öllu valdi og íbúðir eru varla í boði í Reykjavík nema á svokölluðum þéttingarreitum þar sem dýrt og tafsamt er að byggja. - - - Eftir að hafa komið borgarbúum í þennan vanda býður borg- arstjóri nú nýja „sátt“; „húsnæð- issáttmála fyrir höfuðborgar- svæðið“. Þar á að fara leið meirihlutans og beina byggingum að „þróunarásum borgarlínu“, sem er nákvæmlega það sem gert hefur verið með þekktum afleiðingum. - - - Borgarstjóri tekur sérstaklega fram að ekki megi taka „vond- ar ákvarðanir“ „í flýti“ og segir að dreifing byggðar væri „slíkt skyndiráð“. Það á með öðrum orð- um að gera „sáttmála“ um þá stefnu vinstri meirihlutans sem leitt hefur af sér húsnæðisskort og hátt húsnæðisverð en hafna þeirri leið sem leysir vandann. Dagur B. Eggertsson Sáttaboð um hátt húsnæðisverð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Reykjavíkurskákmótið hefst í dag kl. 15 í Hörpu. Um 270 skákmenn frá um 50 löndum taka þátt í því, þar af 24 stórmeistarar. Aldurs- munurinn á milli yngsta og elsta keppanda er 70 ár. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setur mót- ið og leikur fyrsta leik þess. Mótið stendur til 12. apríl og verða tefldar níu umferðir á sjö dög- um. Aðalstyrktaraðili mótsins er Kvika. 67 íslenskir keppendur eru skráðir til leiks. Íslendingar eru því um fjórðungur keppenda. Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2.542 skákstig) er stigahæstur heimamanna og nr. 14 á stigalista mótsins. Næstir koma al- þjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2.501), sem freistar þess að ná lokaáfanga sín- um að stórmeistaratitli, og stórmeistararnir Jó- hann Hjartarson (2.465), Þröstur Þórhallsson (2.422) og Bragi Þorfinnsson (2.419). Flestar sterkustu skákkonur Íslands taka þátt í mótinu, með stórmeistara kvenna, Lenku Ptácníková (2.186), fremsta í flokki. Íranski stórmeistarinn Poyya Idani (2.638) er stigahæstur keppenda. Indverjar setja svip sinn á mótið. Meðal sjö stigahæstu keppenda þess eru fimm Indverjar, þar á meðal tveir fyrrver- andi sigurvegarar mótsins, Baskan Adhiban (2.633) og Abhijeet Gupta (2.616). sisi@mbl.is Reykjavíkurskákmótið hefst í dag Morgunblaðið/Ómar Að tafli Ungir sem aldnir munu tefla í Hörpu næstu daga. Myndin er frá mótinu árið 2018. Hin árlega kokteilhátíð Barþjóna- klúbbs Íslands í samstarfi við helstu veitinga- og skemmtistaði Reykjavíkur hefst í kvöld og verð- ur fram á sunnudag. Aðstandend- ur hátíðarinnar hvetja fólk til að skilja bílinn eftir og taka göngutúr um miðbæinn þar sem víða verða sérstakir kokteilar á tilboðsverði. Vegna Covid-19-faraldursins var hátíðin í fyrra haldin á netinu og árið á undan féll hún niður út af ástandinu í samfélaginu. Íslandsmeistaramót barþjóna, sem er aðalviðburður hátíðarinnar, fer fram í kvöld í Gamla bíói. Bar- þjónaklúbbur Íslands hefur staðið fyrir keppninni síðan árið 1964, eða ári eftir að klúbburinn var stofnaður. Í tilkynningu frá klúbbnum segir að keppnin sé stærsti kokteila- og barviðburður ársins á landinu. Sigurvegarinn keppir fyrir hönd Íslands á heims- meistaramóti barþjóna sem haldið verður á Kúbu í haust. Keppt verður í tveimur flokk- um. Annars vegar er það Íslands- meistarkeppnin sjálf þar sem keppt er í kokteilagerð eftir al- þjóðlegum stöðlum og keppir sig- urvegarinn á heimsmeistaramóti barþjóna. Hins vegar er þema- keppni en þema ársins er tiki- menning. Helstu birgjar og framleiðendur víns hér á landi munu kynna strauma og stefnur í kokteilagerð á Íslandi samhliða keppnunum. Tvö þúsund krónur kostar á við- burðinn en miðasala fer fram á tix.is og við inngang Gamla bíós. Kokteilhátíð hald- in um helgina - Íslandsmeistari barþjóna krýndur Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kokteilar Sigurvegari kokteila- keppninnar keppir á Kúbu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.