Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 06.04.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Sveinn Óskar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri og bæjar- fulltrúi, skipar áfram efsta sæti Miðflokksins í Mosfellsbæ fyrir kosningarnar 14. maí. Listinn var nýverið sam- þykktur á fé- lagsfundi. Meðalaldur frambjóð- enda er 53 ár, sá yngsti er 19 ára og elsti 77 ára. Örlygur Þór Helgason, kennari og varabæjarfulltrúi, er í öðru sæti og Sara Hafbergsdóttir rekstrar- stjóri skipar þriðja sætið. Helstu stefnumál Miðflokksins í bænum eru að setja börn og barnafólk í for- grunn og stórefla mennta- og íþróttamál. Sveinn leiðir Mið- flokkinn í Mosfellsbæ Sveinn Óskar Sigurðsson Hildur Þórisdóttir, sveitarstjórn- arfulltrúi á Seyðisfirði, skipar áfram efsta sæti Austurlistans í Múlaþingi. Frambjóðendur í efstu fjórum sætum koma frá öllum byggðakjörnum og eru þeir sömu og 2020. Kristjana Ditta Sigurð- ardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi á Fljótsdalshéraði, færist í fjórða sæti en Eyþór Stefánsson, sveitarstjórn- arfulltrúi á Borgarfirði eystra, í annað sæti og Ásdís H. Benedikts- dóttir, varasveitarstjórnarfulltrúi á Djúpavogi, í það þriðja. Hildur efst á Aust- urlista í Múlaþingi Austurlistinn Efstu fjögur á lista. Álfhildur Leifs- dóttir, kennari og sveitarstjórn- arfulltrúi, er áfram oddviti Vinstri-grænna í Skagafirði fyrir komandi kosn- ingar. Listinn var samþykktur á félagsfundi í Hegranesi í fyrrakvöld. Bjarni Jónsson, þing- maður VG, skipar heiðurssætið en hann hefur um árabil verið oddviti listans í Skagafirði. Í öðru sæti er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, tómstunda- og fé- lagsmálafræðingur á Sauðárkróki, og í þriðja sæti Pétur Örn Sveins- son, tamningamaður og bóndi. Í fjórða sæti er Steinunn Rósa Guð- mundsdóttir ráðgjafi. Álfhildur áfram odd- viti VG í Skagafirði Álfhildur Leifsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gæftaleysi og minni kvóti ráða því að verð á fiskmörkuðum er verulega hærra nú en var á sama tíma í fyrra. Á tímabilinu janúar til mars í fyrra voru um 12.000 tonn af fiski seld á mörk- uðum en 9.000 á þessu sama tímabili í ár. „Á sama tíma er meiri eftirspurn eftir hráefni. Vinnsluhús þurfa jafnan tiltekið magn af fiski til að svara markaðnum og af þessum sökum hef- ur verðið hækkað,“ segir Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands í Ólafsvík (FMIS). Algengt kílóverð af uppboðs- fiski þar hefur að undanförnu verið 370 krónur en var 265 krónur á sama tíma fyrir ári. „Aflabrögð að undanförnu hafa verið góð og menn hafa getað sótt nokkuð stíft á sjó, eftir þá miklu ótíð sem var á fyrstu mánuðum ársins. Núna veiðist til dæmis mjög drjúgt af þorski, sem fengist hefur hér skammt frá – við Öndverðarnes og úti á Breiðafirði. Þá hefur að undanförnu verið sótt talsvert í ufsann, sem er mikið hér sunnan og vestan við land,“ segir Ragnar. Fiskað stíft fyrir stoppið Hjá FMIS hefur kílóið af þorski að undanförnu gjarnan selst á 425-430 kr. en algengt verð á fyrstu mánuðum síðasta árs var 315-320 kr. Algengt er að seld séu 200-300 tonn af fiski dag- lega. Útgerðarmenn og skipstjórar reyna eðlilega að sæta lagi og sækja helst á sjó þegar útlit er fyrir að gott verð fáist á markaði. Lesið er vel í allar aðstæður svo út- koman verði sem best. Þannig reyna menn til dæmis núna að fiska stíft fyr- ir hryningarstoppið um páska sem hefst 12. apríl og stendur til 21. dags mánaðarins. Mest af aflanum sem FMIS selur fer í gegnum starfsstöðvarnar í Ólafs- vík, á Rifi og í Þorlákshöfn. Er fluttur þaðan til kaupenda, sem eru fisk- vinnslur gjarnan á höfuðborgar- svæðinu og Suðurnesjum. Einnig er fyrirtækið með starfsstöðvar í Reykjavík, Arnarstapa, Grundarfirði, Stykkishólmi og Skagaströnd. Margar ástæður skýra hátt verð „Fiskur er jafnvel keyptur á upp- boði óveiddur meðan bátarnir eru enn í róðri. Hraðinn í viðskiptum, flutningum, vinnslu og öðru er mikill – stundum líður varla nema sólar- hringur frá veiðum uns varan er komin til neytenda erlendis. Síðustu misserin hefur Frakkland verið stór markaður fyrir íslenskan fisk, en Bretarnir komið sterkt inn að undan- förnu eftir að tók fyrir kaup þeirra á rússaþorski. Margar samverkandi ástæður eru því fyrir háu fiskverði nú – sem sennilega verður í svipuðum hæðum á næstunni,“ segir Ragnar. Ótíð og aukin eftirspurn hafa hækkað fiskverðið - Velta á fiskmarkaði - Drjúgt af þorski - Bretar sterkir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Markaður Núna veiðist til dæmis mjög drjúgt af þorski, sem fengist hefur hér skammt frá við Öndverðarnes, segir Ragnar Smári Guðmundsson. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Löndun Körin hífð úr lestinni á Agli SH í Ólafsvíkurhöfn á dögunum. Stutt er á miðin og veiðin er góð. 2022 Vinnupallar hafa nú verið reistir við Skálholtskirkju vegna við- gerða á múrklæðingu og gluggum á turni byggingarinnar. Á næstu vikum á svo að rjúfa þekju turns- ins til að koma þar inni fyrir nýrri klukku í stað einnar slíkrar sem féll niður og brotnaði fyrir nokkr- um árum. Jafnframt verður stjórnbúnaður klukknanna endur- nýjaður. Þegar þekjunni er lokað aftur verða svo nýjar steinflísar lagðar þar á. Í sumar verður kirkjan máluð, en nú er hún með múrgráan svip. Klössun á Skálholtskirkju hefur staðið yfir frá 2017. Viðgerð á steindum gluggum kirkjunnar, sem eru alls 30 og hannaðir af Gerði Helgadóttur, er lokið. Eins fékk altarismynd Nínu Tryggva- dóttur yfirferð. Búið er að endur- byggja steintröppurnar framan við kirkjuna og svo mætti áfram telja. Utanhússviðgerðirnar eru þó dýrasti og stærsti liður þessara endurbóta, en allur pakkinn kost- ar um 200 milljónir króna. „Öllu verkinu á að vera lokið á næsta ári, þegar kirkjan er 60 ára,“ seg- ir Kristján Björnsson vígslu- biskup. Endurnýjun á klukku og sigur- verki er greidd af Verndarsjóði Skálholtsdómskirkju. Margir aðr- ir hafa lagt endurbótunum lið, svo sem Landsvirkjun og AP-Möller- sjóðurinn í Danmörku. sbs@mbl.is Kirkjan er í klössun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skálholt Vinnupallar eru nú við múrgráa veggi kirkjunnar. Turnþekjan verður rofin á næstunni og ný klukka og sigurverk sett þar inn. Guðmundur Þórðarson, fiskifræð- ingur og sviðsstjóri botnsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun, hefur verið ráðinn til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hann lét af störfum á Hafró um mánaðamótin og hefur störf hjá SFS um miðjan maí. Í samtali við Morgunblaðið segir Guðmundur að eftir sé að móta nýja starfið, en verkefni hans muni eftir sem áður snúast um fiski- fræði. Hans hlutverk á nýjum vinnustað verði m.a. að túlka ráð- gjöf og rannsóknir Hafrannsókna- stofnunar og Alþjóðahafrannsókna- ráðsins, ICES, og fræða félags- menn SFS um þessi efni. Einnig að taka þátt í að móta stefnu og áhersluatriði samtakanna. Guð- mundur mun starfa við hlið Krist- jáns Þórarinssonar stofnvistfræð- ings, sem um árabil hefur starfað hjá Lands- sambandi ís- lenskra útvegs- manna og SFS. Guðmundur hóf störf hjá Hafrannsókna- stofnun sem sumar- starfsmaður og í tímabundnum verkefnum í lok síðustu aldar, en hefur verið fastur starfsmaður þar frá árinu 2005. Hann er með próf frá Háskóla Ís- lands í líffræði, vann að meistara- prófsverkefni á Hafrannsókna- stofnun og er doktor í fiskifræði frá Imperial College í London. Doktorsverkefni hans bar heitið: Vöxtur og kynþroski ýsu og áhrif þess á nýtingu. aij@mbl.is Sviðsstjóri á Hafró ráðinn til SFS Guðmundur Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.