Morgunblaðið - 06.04.2022, Side 18
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Sýningakerfi
Prentun
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um endurskoðun
aðalskipulags Sveitarfélagsins Ölfuss
Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti þann 31. mars síðast-
liðinn nýtt aðalskipulag til auglýsingar í samræmi við
31. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið
kemur í stað aðalskipulags Ölfuss 2010-2022.
Skipulagstillagan samanstendur af forsenduhefti,
umhverfisskýrslu, greinargerð, sveitarfélagsuppdrætti
og skipulagsuppdráttum fyrir þéttbýlin Þorlákshöfn
og Árbæ auk fylgigagna. Nánari upplýsingar er hægt
að finna á heimsíðu sveitarfélagins Ölfuss á slóðinni
www.olfus.is. Þar er meðal annars að finna slóð á
gagnvirka heimasíðu tillögunnar.
Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss,
Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn og í anddyri Skipulags-
stofnunar, Borgartúni 7b frá 6. apríl til 18. maí 2022.
Hægt er að senda ábendingar eða athugasemdir á
netfangið skipulag@olfus.is fyrir lok vinnudags þann
18. maí 2022 eða í pósti á: Skipulagsfulltrúi Ölfuss,
Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn.
Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi Ölfuss
Aðalskipulag Rangárþings eystra 2020-2032
Heildarendurskoðun
Sveitarstjórn Rangárþings samþykki á fundi sínum þann 20.12.2021 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu
aðalskipulagi Rangárþings eystra skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er auglýst ásamt forsendu-
hefti og umhverfismatsskýrslu sbr. 15. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Tillagan inniheldur greinargerð, umhverfismatsskýrslu, sveitarfélags- og þéttbýlisuppdrætti fyrir Hvolsvöll og
Ytri-Skóga ásamt séruppdráttum. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins
varðandi landnotkun, byggðarþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál.
Tillögunni er ætlað að leysa af hólmi gildandi aðalskipulag Rangárþings eystra 2012-2024. Aðalskipulagstillagan
verður til sýnis á skrifstofu Rangárþings eystra að Austurvegi 4 á Hvolsvelli og hjá Skipulagsstofnun
Borgartúni 7b, 105 Reykjavík frá og með 6. apríl 2022. Einnig má nálgast öll gögn tillögunnar rafrænt á
heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is.
Tillagan er auglýst frá og með frá 6. apríl með athugasemdafresti til 18. maí 2022. Þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu berast skriflega á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 4, 860 Hvolsvöllur eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is.
F.h. Rangárþing
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi
í Rangárþingi eystra.
Skálabrekka – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða 3,74 ha spildu þar sem m.a. verður heimilt að byggja tveggja hæða íbúðarhús, með hámarks-
hæð allt að 8,5m frá botnplötu.
Hólmaflöt – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða nýtt deiliskipulag á lóðinni Hólmaflöt. Á byggingarreit B1 er gert ráð fyrir íbúðarhúsi, allt að
140 m2 og á byggingarreit B2 er gert ráð fyrir tveimur 30 m2 gestahúsum.
Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 6. apríl nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta
er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 18. maí nk.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi
4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13.
Innipútt kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími 411 2600.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 11.30. Sundlaugin er opin frá kl.
13.30-16.
Bústaðakirkja Ekkert starf verður í safnaðarsalnum í dag miðviku-
dag, þar sem félagsstarfið fer í heimsókn á Akranes. Sjáumst svo eftir
páska. Starfsfólk Bústaðakirkju.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og
spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10.
Ljóðahópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10.Tálgun með Valdóri kl. 13-
15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Kl. 9 Pool-hópur í Jónshúsi Kl. 9 leirnámskeið í Smiðju.
Kl. 10 gönguhópur frá Jónshúsi. Kl. 10.30 skák og scrabble í Jónshúsi.
Kl. 11 stóla-jóga í Kirkjuhvoli. Kl. 12.30-15.40 brids í Jónshúsi Kl. 13
göngu-hópur frá Smiðju. Kl. 15 / 15.40 / 16.20 vatnsleikfimi í Sjálandi.
Kl. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli.
Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldri borgara kl. 12. Helgistund, fyrir-
bænir og söngur. Sigrjón Örn Sturluson frá Ultraform kemur og
spjallar og sprellar með okkur. Matur í safnaðarheimilinu kr. 1500.-
kaffisopi og spjall. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9-
11. Ganga með Evu kl. 10-11, allir velkomnir. Útskurður með leiðbein-
anda kl. 9-12, 500 kr. skiptið.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Stóla jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl.
13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Handavinna,
opin vinnustofa kl. 13-16. Brids kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30,
panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir
styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10. Páska-
bingó kl. 13. Qi-gong, frír prufutími kl. 16.30. Gleðin býr í Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Postulínsmálun í hand-
verksstofu kl. 9-12. Bókband í smiðju kl. 9-12.30. Myndlist í hand-
verksstofu kl. 13-16. Bókband í smiðju kl. 13-16.30. Hinn sívinsæli
dansleikur með Vitatorgsbandinu er svo á sínum stað kl. 14-15 og
síðdegiskaffið. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartan-
lega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Skólabraut, kaffikrókur kl. 9. Leir kl. 9. Botsía kl. 10.
Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.Timburmenn,
Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Handa-
vinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Allir velkomnir.
alltaf - allstaðar
mbl.is
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022
hljóp í skarðið fyrir hana þegar
illa viðraði.
Þegar loðnan brást hætti pabbi
til sjós. Mamma og pabbi voru
tilbúin að taka við reiðhjólaverk-
stæðinu og hófu reksturinn undir
heitinu Músík og sport. Örn fór til
Spánar til frekara náms í gítar-
leik. Klassískur gítarleikur átti
hug hans allan. Æ síðan kenndi
hann og kom fram sem gítarleik-
ari á ýmsum viðburðum.
Hugur pabba leitaði á haf út.
Hann keypti sér lítinn bát. Örn
fór oft á sjóinn með honum og var
innan handar þegar þurfti dytta
að bátnum.
Örn var ætíð tilbúinn að rétta
fram hjálparhönd og má með
sanni segja að hann hafi verið
þúsundþjalasmiður.
Á níunda áratugnum fluttu Örn
og Didda eiginkona hans til Sví-
þjóðar.
Þau komu sér upp fallegu
heimili. Örn vann sem tónlistar-
kennari eins og hann hafði gert á
Íslandi. Dætur þeirra hafa búið
þar alla tíð síðan. Ragnheiður
starfar sem bráðahjúkrunarfræð-
ingur og Arna Þöll viðskiptafræð-
ingur og rekur eigið fyrirtæki.
Huldar Freyr sonur þeirra
settist að á Íslandi og hefur getið
sér gott orð sem afbragðshljóð-
maður við kvikmynda- og þátta-
gerð. Örn var alla tíð afar stoltur
af börnum sínum og hvatti þau til
dáða.
Þegar við heimsóttum Örn og
fjölskyldu hans skömmu fyrir
andlát hans var ljúft að heyra
hversu börnin hans voru þakklát
honum fyrir þá umhyggju og að-
stoð sem hann ætíð veitti þeim og
börnum þeirra.
Við minnumst Arnar bróður
okkar með hlýhug og söknuði og
sendum Diddu og börnunum hug-
heilar samúðarkveðjur.
Erla Aradóttir,
Kristjana Aradóttir,
Kristján Arason,
Arndís Aradóttir.
Það er komið að kveðjustund.
Æskuvinur og uppeldisbróðir
minn, gítarleikarinn og kennarinn
Örn Arason, sem lést 22. febrúar
sl. eftir stutta sjúkrahúslegu,
verður kistulagður nú í vikunni í
Svíþjóð nokkrum dögum áður en
hann hefði orðið 71 árs.
Við vorum systkinasynir og á
fyrsta aldursári okkar fluttum við
í tvíbýlishús sem foreldrar okkar
höfðu reist á kletti við Álfaskeið í
Hafnarfirði. Samskipti okkar
Arnar voru því náin strax í upp-
hafi.
Við ólumst upp í ævintýra-
heimi hraunsins þar sem ýmis-
legt var brallað, stórhuga strákar
sem átta ára ákváðu að grafa nið-
ur til Kína eftir að hafa hlustað á
kristniboða halda fyrirlestur um
trúboð þar í KFUM á Hverfis-
götunni.
Sprunga í klettinum fyrir
framan eldhúsgluggann á Álfa-
skeiðinu varð fyrir valinu og gáf-
umst við upp eftir meters holu í
áttina að áfangastað. Þá fannst
okkur tilvalið að hafa sundlaug í
gjótunni við húsið og bárum burt
hestburði af grjóti úr henni.
Leynifélagið Zorro var svo stofn-
að uppi á háalofti og því fagnað
með því að stela hálfhertum fiski
úr þurrkofni pabba Arnar.
Svo gekk Bítlatíminn í garð og
báðir hrifumst við með. Ég sem
hlustandi en Örn tók þetta skref-
inu lengra og hóf nám í klassísk-
um gítarleik hjá Eyþóri Þorláks-
syni gítarleikara við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
En Örn fylgdist líka vel með því
sem var að gerast í rokkheimum
og eftir að hann stofnaði versl-
unina og hjólreiðaverkstæðið
Músík og sport í viðbyggingu við
hús ömmu Línu var hann ætíð
með nýjustu plöturnar í rekkun-
um.
Meðal listamanna sem þar var
að finna voru margar af fram-
sæknustu hljómsveitum rokk-
sögunnar og ýmis gimsteinninn
rataði þaðan í plötusafn mitt.
Ég minnist þess þegar ég
gerði upp gamalt reiðhjól á verk-
stæðinu hjá Erni. Ógleymanleg-
ar stundir við að pússa burt ryð,
skrúfa í sundur og setja aftur
saman, í smurolíu- og lakkmáln-
ingarvímu við undirleik Pink Flo-
yd, Greatful Dead eða Rolling
Stones.
Síðan skildi leiðir. Örn fór til
Barcelóna í áframhaldandi gítar-
nám og þegar hann kom aftur
heim höfðum við Gyða tekið til
við kennslu í Nesjaskóla við
Hornafjörð.
Örn og Didda verðandi eigin-
kona hans heimsóttu okkur
þangað og áttum við góðar stund-
ir saman. Síðan fluttum við Gyða
til Svíþjóðar og dvöldum þar í
átta ár.
Eftir heimkomuna hittumst
við af og til en síðan fluttu Örn og
Didda til Staffanstorp í Svíþjóð
og þangað heimsóttum við þau
hjónin eitt sinn og dvöldum hjá
þeim í góðu yfirlæti.
Við Gyða sendum Diddu og
börnum og barnabörnum þeirra
Arnar innilegar samúðarkveðjur.
Sigurður Á. Friðþjófsson.
Örn Arason