Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 21

Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum hafðu það notalegt Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „STARFSMANNALEIGAN SENDI MIG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... strandferð með smáfólkinu á góðviðrisdegi. ÉG MEÐ BLÚS… VERSTU TEGUND AF BLÚS… ÉG ER MEÐ „PÍTSUSENDILLINN- FÓR-MEÐ-PÍTSUNA-MÍNA-Í- RANGT-HÚS“ BLÚS HUNANG ELDAÐI Í KVÖLD. PASSAÐU AÐ HRÓSA MATNUM. ÉG VERÐ AÐ SEGJA AÐ ÞESSAR KJÖTBOLLUR ERU ÞÆR BESTU SEM ÉG HEF NOKKRU SINNI SMAKKAÐ! ÞETTA ER SÓSAN! Ú Ú Ú P S „LÆKNIRINN FÓR HEIM FYRIR KLUKKUTÍMA. VIÐ ÆTTUM LÍKLEGA AÐ SEGJA ÞEIM ÞAÐ ÞEGAR VIÐ KOMUM ÚR HÁDEGISMAT, EF VIÐ MUNUM EFTIR ÞVÍ.“ 1953, kennara. Þau eru búsett á Grandavegi í Reykjavík. Foreldrar Jónínu voru Kristján Eiríksson, f. 6.9. 2921, d. 18.10. 1984, hæsta- réttarlögmaður, og Eiríka Kristín Þórðardóttir, f. 28.3. 1928, fv. rit- ari seðlabankastjóra, búsett í Reykjavík Börn Boga og Jónínu Maríu eru: 1) Ágúst, f. 25.10. 1980, með meistaragráðu í stjórnmálafræði frá Stokkhólmsháskóla og er sér- fræðingur hjá rannsóknastofn- uninni Nordregio, rannsóknar- stofnun Norrænu ráðherra- nefndarinnar, í Stokkhólmi. Eiginkona hans er Valgerður Árnadóttir, f. 1984, barnalæknir í Stokkhólmi. Börn þeirra eru Bogi, 2011, Fríða María, f. 2014, og Iðunn María, f. 2020; 2) Þórunn Elísabet, f. 22.6. 1986, með meist- aragráðu í evrópskum stjórn- málum og alþjóðamálum frá Edinborgarháskóla og er umsjón- armaður Morgunvaktarinnar á Rás 1. Eiginmaður hennar er Jón Benediktsson, f. 1988, sérfræð- ingur hjá Talnakönnun. Börn þeirra eru Jónína María, f. 2018, og Benedikt, f. 2021; 3) Jónína Guðný, f. 13.12. 1987, BA í fé- lagsfræði frá HÍ og hjúkrunar- fræðingur, vinnur við heima- hjúkrun hjá Reykjavíkurborg. Eiginmaður hennar er Guðmundur Óskar Guðmundsson, f. 1987, tón- listarmaður. Börn þeirra eru Ágúst Þór, f. 2013, og Emilía María, f. 2020. Systir Boga var Emilía, f. 26.5. 1960, d. 9.4. 2018, skrifstofumaður, síðast búsett í Grindavík. Eigin- maður hennar var Yuzuru Ogino fiskitæknifræðingur, einnig látinn. Dóttir þeirra er Yuriko. Foreldrar Boga voru Ágúst Jónsson, f. 2.8. 1926, d. 26.12. 1996, skipstjóri í Reykjavík, og Jónína Guðný Guðjónsdóttir Kelpien, f. 26.8. 1931, d. 14.7. 1973, húsmóðir í Reykjavík og Fort Lauderdale í Flórída, Bandaríkjunum. Bogi Ágústsson Jónína Guðný Pálsdóttir húsfreyja á Ytri-Brennihóli og Akureyri Bogi Ágústsson bóndi á Ytri-Brennihóli í Kræklingahlíð, síðar keyrari á Akureyri Elísabet Bogadóttir verkakona á Akureyri og í Reykjavík, bjó síðast í Grindavík Guðjón Einarsson verslunarmaður í Reykjavík Jónína Guðný Guðjónsdóttir Kelpien húsmóðir í Reykjavík og Fort Lauderdale, Flórída Guðrún Jónasdóttir húsmóðir í Hafnarfirði Einar Ólafsson steinsmiður í Hafnarfirði Ágústa Sigfúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Sighvatur Bjarnason bankastjóri og bæjarfulltrúi í Reykjavík Emilía Sighvatsdóttir húsmóðir í Reykjavík Jón Kristjánsson læknir í Reykjavík Gróa Ólafsdóttir húsfreyja í Víðidalstungu Kristján Jónsson bóndi í Víðidalstungu í Víðidal, V-Hún. Ætt Boga Ágústssonar Ágúst Jónsson skipstjóri í Reykjavík Karlinn á Laugaveginum orti á laugardaginn: Vorið kemur veit ég senn og vísast lygnir; sama veðrið úti enn og hann rignir. Skúli Pálsson orti á fésbók og tók fram, að bragarhátturinn héti vik- henda: Vorið kemur varlega í bæinn, velgir mold og vekur af vetrarblundi fræin. Upp úr moldu mjóir gægjast angar svona litlir sem að í sólargeisla langar. Hingað yfir hafið flýgur tjaldur; héðan undan hlýjum blæ hopar vetur kaldur. Magnús Geir Guðmundsson svar- aði: Engin hefur orðin skort, með „Yrkislandið“ fyrir stafni. Virkilega vel er ort, í vikhendunnar góða nafni! Á Boðnarmiði yrkir Davíð Hjálm- ar Haraldsson gagararvillu um list og listamannalaun: Listamannalaunastúss lítið tíðkast hér með oss. Fá þeir mest sem taka túss og teikna menn að pissa í kross? Jón Ingvar Jónsson yrkir: Mér er sæmst að hengja haus og horfa niður, enda hæfileikalaus ljóðasmiður. Hallmundur Guðmundsson fer með „nokkurra ára gamalt hnoð sem enn passar við verald- arvafstrið“: Þó forræði okkar sé algert og andartak lofað í hástert er nútíminn nóta í konsert með náttúruhljómfallið lofsvert. Nú víðast hvar veröld er ósnert en vargana tilætlan forhert. Þó standi allt stöðugt og bísperrt er stuggur af því sem er vitskert. Guðný Jakobsdóttir rifjar upp vísur eftir Guðjón Jóh.: Að mjólka kýr og moka flór er mesta gaman. Dunda við það dögum saman. Íþrótt sú er öðru sporti æðri og meiri. Iðka hana ættu fleiri. Kýrrassanna tók ég trú og tryggur henni. Engu trúa öðru nenni. Beljur eru besta fólk og bændur líka. Óspart sinni fegurð flíka. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vorið kemur og glatt syngur þrösturinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.