Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 22

Morgunblaðið - 06.04.2022, Page 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 Meistaradeild karla 8-liða úrslit, fyrri leikir: Manchester City – Atlético Madrid........ 1:0 Benfica – Liverpool .................................. 1:3 England B-deild: Reading – Stoke....................................... 2:1 - Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hópi Reading. Staða efstu liða: Fulham 38 24 8 6 92:32 80 Bournemouth 37 21 9 7 62:33 72 Huddersfield 40 18 12 10 52:43 66 Luton 40 18 11 11 59:45 65 Sheffield Utd 40 18 10 12 53:41 64 Middlesbrough 38 18 8 12 52:40 62 Blackburn 40 17 11 12 51:41 62 Nottingham F. 37 17 10 10 57:36 61 C-deild: Bolton – Portsmouth............................... 1:1 - Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn fyrir Bolton. Staða efstu liða: Wigan 39 25 8 6 70:35 83 MK Dons 41 24 10 7 68:39 82 Rotherham 39 24 8 7 64:25 80 Plymouth 41 23 8 10 67:40 77 Sheffield Wed. 40 20 12 8 66:43 72 Wycombe 41 20 12 9 68:48 72 Sunderland 40 20 10 10 67:48 70 Oxford United 41 20 9 12 75:52 69 Ítalía B-deild: Ternana – Lecce ...................................... 1:4 - Þórir Jóhann Helgason kom inn á sem varamaður á 66. mínútu hjá Lecce en Davíð Snær Jóhannsson var ekki í hópnum. SPAL – Cosenza....................................... 2:2 - Mikael Egill Ellertsson lék ekki með SPAL vegna meiðsla. >;(//24)3;( Evrópudeild karla 16-liða úrslit, seinni leikir: GOG – Bidasoa..................................... 33:31 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 13 skot í marki GOG. _ GOG áfram, 63:59 samanlagt og mætir Nexe. Sävehof – Kadetten............................. 34:28 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. _ Kadetten áfram á fleiri mörkum skoruð- um á útivelli og mætir Wisla Plock. Wisla Plock – Lemgo........................... 28:28 - Bjarki Már Elísson skoraði átta mörk fyrir Lemgo. _ Wisla Plock áfram, 59:56 samanlagt. Magdeburg – Sporting Lissabon....... 36:35 - Ómar Ingi Magnússon skoraði tíu mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson tvö. _ Magdeburg áfram, 65:64 samanlagt og mætir Nantes. Svíþjóð 8-liða úrslit, annar leikur: Lugi – Kungälv .................................... 27:21 - Lilja Ágústsdóttir skoraði ekki fyrir Lugi. Ásdís Þóra Ágústsdóttir er meidd. _ Lugi vann einvígið 2:0 og er komið áfram í undanúrslit. E(;R&:=/D Subway-deild karla 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Tindastóll – Keflavík .......................... 101:80 _ Staðan er 1:0 fyrir Tindastól. Valur – Stjarnan ................................... 90:85 _ Staðan er 1:0 fyrir Val. 1. deild kvenna Úrslit, fyrsti leikur: Ármann – ÍR......................................... 77:60 _ Staðan er 1:0 fyrir Ármann. Evrópubikarinn B-riðill: Valencia – Ulm .................................. 103:71 - Martin Hermannsson skoraði 8 stig, tók eitt frákast og gaf átta stoðsendingar á 15 mínútum fyrir Valencia sem hafnaði í 2. sæti riðilsins og er komið áfram í 16-liða úr- slit. >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR 8-liða úrslit karla, fyrsti leikur: Ljónagryfjan: Njarðvík – KR ............. 18.15 Þorlákshöfn: Þór Þ. – Grindavík ......... 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kórinn: HK – Víkingur ........................ 19.30 Vestmannaeyjar: ÍBV – Grótta........... 19.30 Kaplakriki: FH – Afturelding ............. 19.30 Framhús: Fram – Stjarnan ................. 19.30 KA-heimilið: KA – Selfoss ................... 19.30 Origo-höll: Valur – Haukar.................. 19.30 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Vestmannaeyjar: ÍBV – Afturelding .. 17.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Austurberg: ÍR – Víkingur.................. 20.15 Í KVÖLD! Sandja Bimpa skoraði 27 stig, tók fimmtán fráköst og gaf fjórar stoð- sendingar fyrir Ármann þegar liðið vann 77:60-sigur gegn ÍR í fyrsta leik liðanna í úrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik í Kenn- araháskólanum í gær. Telma Lind Bjarkardóttir skoraði 18 stig fyrir Ármann og gaf sex stoðsendingar en Gladiana Jimenez var stigahæst í liði ÍR með 22 stig og sex fráköst. Annar leikur liðanna fer fram í TM-hellinum í Breiðholti hinn 8. apríl en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í efstu deild. Ármann tók forystuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Öflug Sandja Bimpa hjá Ármanni reyndist ÍR-ingum afar erfið. Bandaríska körfuknattleikskonan Danielle Rodriguez hefur gert samning við Grindavík og mun hún leika með liðinu frá og með næstu leiktíð. Rodriguez kann greinilega vel við sig á Íslandi en hún lék með Stjörnunni og KR frá 2016 til 2020 og var síðan aðstoðarþjálfari karla- og kvennaliðs Stjörnunnar. Hún var stoðsendingahæst í efstu deild árin 2017 og 2019 og var valin besti erlendi leikmaður deildar- innar árið 2018. Hún mun einnig koma að þjálfun hjá yngri flokkum Grindavíkur. Rodriguez snýr aftur á völlinn Morgunblaðið/Eggert Grindavík Danielle Rodriguez var lykilmaður hjá KR frá 2019 til 2020. FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Úkraínska knattspyrnukonan Iryna Mayborodina kom til Íslands fyrir tveimur vikum en hún ákvað að flýja heimaland sitt eftir innrás Rússlands í Úkraínu sem hófst hinn 24. febrúar. Iryna, sem er 28 ára gömul, flúði yfir landamærin til Póllands þar sem hún fékk gistingu hjá kunningja sín- um sem hún kynntist í gegnum fót- boltann. Þaðan lá leiðin til Íslands og bíður hún nú eftir dvalarleyfi á Íslandi en hún hefur æft með Fram, sem leikur í 2. deildinni, síðustu daga. Iryna settist niður með blaða- manni á litlu kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur á dögunum þar sem hún ræddi meðal annars flóttann frá Úkraínu, knattspyrnuferilinn og sumarið fram undan. „Ég er fædd og uppalin í Úkraínu og ég ólst upp í litlum bæ sem heitir Volnovakha,“ sagði Iryina en Volno- vakha, sem er rúmlega 20.000 manna bær, er staðsettur í Donetsk-héraði í austurhluta Úkraínu og var hann nánast lagður í rúst af innrásarher Rússa. „Ég eyddi öllum mínum frítíma í íþróttum þegar ég var lítil. Faðir minn var mjög virkur þátttakandi í mínu íþróttauppeldi og ég æfði til að mynda körfubolta og bardagaíþróttir á yngri árum. Í kringum 16 ára ald- urinn byrjaði ég svo að leika mér í fótbolta en það var ekki starfrækt kvennalið í Volnovakha á þeim tíma. Ég æfði þess vegna með strákun- um til að byrja með og það gekk mjög vel. Í eitt skiptið kom þjálfari frá úkraínska kvennaliðinu Donchanka Donetsk til þess að fylgjast með æf- ingu hjá okkur. Hann sá eitthvað í mér og ákvað að bjóða mér samning. Ég var ekki lengi að stökkva á tæki- færið og ég hóf því minn knatt- spyrnuferil með Donchanka Donetsk sem ég á mikið að þakka.“ Neitaði að trúa Iryna man vel eftir augnablikinu þegar Rússar réðust inn í Úkraínu 24. febrúar. „Það var búið að tala um að það yrði mögulega stríð í Úkraínu og að Rússar ætluðu sér að ráðast inn í landið okkar. Ég hafði enga trú á því og ég neitaði einfaldlega að trúa því að það væri að fara að brjótast út stríð í heimalandinu mínu. Þann 24. febrúar var ég sofandi inni í herberg- inu mínu þegar ég heyri móður mína öskra á mig: „Vaknaðu Ira! Stríðið er byrjað.“ Ég fékk sjokk og gat varla hreyft mig. Ég trúði þessu einfaldlega ekki fyrr en ég heyrði allar sprenging- arnar. Ég yfirgaf heimili mitt og hélt að landamærum Póllands. Það tók mig tvo daga að komast að landa- mærunum en fjölskyldan mín og vin- ir urðu flest öll eftir í Úkraínu. Ég hugsa stanslaust til þeirra og hef miklar áhyggjur af þeim.“ Ákvað að taka áhættu Þegar komið var til Póllands heyrði Iryna fyrst af áhuga Framara. „Það fyrsta sem ég gerði, þegar ég heyrði af áhuga Fram, var að fletta Íslandi upp á landakortinu. Ég hugs- aði með mér að þetta land gæti ekki verið lengra í burtu og það heillaði mig. Ég vissi hins vegar lítið um Ís- land og ég vildi vita meira áður en ég tæki ákvörðun um framhaldið. Ég var dugleg að skoða alls konar mynd- bönd af Íslandi á samfélagsmiðlinum Youtube. Að endingu ákvað ég að taka smá áhættu og koma til Íslands. Þrátt fyr- ir að ég sé bara búin að vera hérna í tvær vikur þá líður mér vel hérna. Fólkið hérna er mjög vinalegt og það eru allir brosandi alltaf. Ég er í góðri vinnu og stelpurnar, þjálfararnir og allir sem starfa í kringum félagið hafa tekið mér opnum örmum og fyrir það er ég ótrúlega þakklát.“ Líkamlegt atgervi mikilvægt Framarar höfnuðu í 4. sæti 2. deildarinnar síðasta sumar og léku til undanúrslita um sæti í efstu deild þar sem liðið tapaði fyrir Fjarðabyggð/ Hetti/Leikni. „Ég á ennþá eftir að spila minn fyrsta leik fyrir félagið en vonandi er ekki langt í að ég geti hjálpað liðinu. Það mun eflaust taka mig einhvern tíma að venjast íslenska fótboltanum enda er hann mjög frábrugðinn þeim úkraínska. Í Úkraínu eru leikmenn- irnir mjög teknískir en hraðinn er kannski ekki alveg sá sami og á Ís- landi. Á Íslandi eru allir leikmenn í mjög góðu líkamlegu standi og leikurinn hérna er mjög líkamlegur. Ég þarf að taka vel á því í ræktinni ef ég ætla mér að sýna mínar bestu hliðar á Ís- landi en markmiðið er að hjálpa lið- inu að vinna 2. deildina og komast upp um deild. Ég hef ekki sett mér nein persónuleg markmið fyrir tíma- bilið og einbeiti mér frekar að því að hjálpa liðinu að ná sínum mark- miðum.“ Jafnaður við jörðu Áttu von á því að snúa aftur til Úkraínu? „Ég er ekki farin að hugsa svo langt. Ástandið í Úkraínu er vægast sagt hrikalegt og fyrst og fremst sorglegt auðvitað. Rússneskar her- sveitir hafa myrt saklausa borgara, eyðilagt heilu borgirnar sem og mikið af menningarverðmætum landsins. Við höfum eytt miklum tíma í að byggja upp landið okkar og nú er það allt ónýtt. Ég hef ekki heyrt í föður mínum í 25 daga en ég er í reglulegu sam- bandi við móður mína. Heimabærinn minn hefur verið jafnaður við jörðu og þar er ekkert rafmagn, hiti, né símasamband. Ástandið í Úkraínu er erfitt fyrir alla Úkraínumenn en þetta er stríð sem við ætlum og mun- um vinna. Við munum koma sterkari út úr þessari hræðilegu lífsreynslu og við munum líka læra betur að meta allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða að stríðinu loknu,“ sagði Iryna Mayborodina í samtali við Morg- unblaðið. „Vaknaðu! Stríðið er byrjað“ Ljósmynd/Ana Bral Fram Iryna Mayborodina vonast til þess að spila með Frömurum í sumar. - Iryna Mayborodina flúði heimaland sitt þegar innrás Rússlands hófst Ensku liðin Liverpool og Manchester City unnu bæði fyrri leiki sína í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Liverpool heimsótti Benfica til Lissabon og vann þar góðan 3:1-sigur. Luis Díaz, sem kom frá keppinautum Benfica í Porto í janúar, naut sín vel á portúgalskri grundu á ný þegar hann skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Liverpool. Sadio Mané og Ibra- hima Konaté, sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Liverpool, komust einnig á blað. Konaté gerði sig svo sekan um slæm mistök í marki Benfica sem Darw- in Núnez skoraði. Með tveggja marka forystu er Liverpool þó í góðri stöðu fyr- ir síðari leikinn á Anfield í næstu viku. Englandsmeistarar Man. City lentu í öllu meiri erfiðleikum með Spánarmeist- ara Atlético Madríd í Manchester í gær- kvöldi en Kevin De Bruyne náði þó að koma boltanum í netið og tryggja liðinu 1:0-sigur. Það er því allt galopið fyrir síðari leikinn í Madríd eftir slétta viku. gunnaregill@mbl.is AFP/Patricia de Melo Moreira Portúgal Luis Díaz fagnar marki sínu fyrir Liverpool gegn Benfica í gær. Liverpool og Manchester City unnu fyrri leiki sína

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.