Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 1
&% ! #"!($ ! '%''
#!$'&%'&"
(5A#1
#1 4;6@94#
'3>..)"6&3+&;/;,3
%@;<; 2;60-; ";-0 "5A#1 /;#036<1#.8>
<.. +) 36<5947*;<.. &A# $<)-;1#;8*44<; #1
6<).#94 !#;. 6<.: 2" .?!B<. #1 A<..#
B; 5-3.-.= $+.-;
&% '"! $#$$&%((%*+)%'
(")),3 *="3.9;5
'&;/;,3 1"<$-&36&: 4"8,3="30: >3 *))0:&%32#&) 1%3=&;.&34
#,'%/% 2717% - 9'*
*++"3. 8!)&6 4"8,3 )"0+0:)";6,3 / "81., #"0)# %*;6)&;#07 !"
"0))/)14 *7!:%4 +/$! (1 7.%7% +-5$/)$
+8$!/$0*2/% *6 3))7 - 9'*& !#
"0<0)07 $"
L A U G A R D A G U R 3 0. A P R Í L 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 100. tölublað . 110. árgangur .
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Er bíllinn klár
í ferðalagið?
Ferðabox, kajakfestingar, hjólafestingar og margt fleira Menabo farangursbox
320 ltr, Mania, svart
Verð 44.990 kr.
Skíðafesting á topp
4 skíði eða 2 snjóbretti
Verð 24.890 kr
Burðargeta 60 kg, hallanleg
Verð 89.900 kr.
Reiðhjólafesting á topp
Burðargeta 15 kg
Verð 18.900 kr.
ÞRIÐJI ÆTTLIÐ-
URINN LÆTUR
AÐ SÉR KVEÐA
JÁKVÆÐIR
TÍMAR FYRIR
HJÓLAFÓLK
HJÓLREIÐAR 32 SÍÐURKÁRI Í KÖRFUNNI 33
_ Gífurlegar olíuverðshækkanir og
sú staðreynd að Landhelgisgæslan
mun framvegis ekki kaupa olíu í
Færeyjum, sem er mun ódýrari en
hérlendis, hafa veruleg áhrif á all-
an skiparekstur stofnunarinnar.
Þetta upplýsir Ásgeir Erlendsson
upplýsingafulltrúi.
Aukinn kostnaður við olíutöku
varðskipanna leiði til þess að draga
verður úr siglingum. Leitað verði
leiða til að halda úthaldsdögum jafn
mörgum en draga úr olíunotkun
með því að sigla skipunum minna.
„Slíkt leiðir óhjákvæmilega til
minna eftirlits og skyndiskoðana á
hafsvæðinu umhverfis Ísland þar
sem skipin verða oftar bundin við
bryggju eða við akkeri til að mæta
þessum kostnaðarauka. Úthalds-
dagarnir og viðbragðsgetan verður
sú sama þrátt fyrir að minna verði
siglt,“ segir Ásgeir.
Ekki stendur til að auka fjár-
framlög til Gæslunnar frá því sem
ákveðið er í fjárlögum. »16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskipin þurfa að
takmarka siglingar
_ Samkvæmt tölum frá Storytel
hefur lestur raf- og hljóðbóka auk-
ist verulega eða um 50% milli ára
og er kominn vel yfir milljón
klukkustundir í hverjum mánuði að
staðaldri. Fjöldi seldra rafrænna
eintaka á Íslandi í streymi fór í
fyrsta sinn yfir fjölda seldra prent-
aðra eintaka í fyrra en alls voru
seld rafræn eintök yfir 1,5 millj-
ónir.
Tölur Hagstofunnar um veltu ís-
lenskra bókaútgefanda sýna 15%
vöxt á milli ára og fóru í fyrsta
skipti yfir fjóra milljarða á einu ári
í fyrra. „Sem fyrr er það hljóðbókin
sem dregur vagninn en tekjur ís-
lenskra útgefenda af hljóðbókum
tvöfölduðust milli ára. Rafbókin er
líka í mikilli sókn en hjá Storytel
jókst sala á rafbókum um 400%,“
segir Stefán Hjörleifsson, fram-
kvæmdastjóri Storytel á Íslandi. »2
Fleiri rafrænar bæk-
ur en prentaðar
Stúlka horfir út úr rútu í borginni Saporisja, en
flóttafólk hefur streymt þangað síðustu daga frá
svæðum sem rússneski herinn hefur náð á sitt
vald í Úkraínu.
Daily Telegraph greindi frá því í gærkvöldi að
talið væri líklegt að Vladimír Pútín Rússlands-
forseti myndi lýsa yfir formlegu stríði á hendur
Úkraínu hinn 9. maí nk. en þann dag minnast
Rússar sigurs Sovétríkjanna á Þýskalandi í síð-
ari heimsstyrjöld. Hingað til hefur einungis ver-
ið talað um „sérstaka hernaðaraðgerð“ í Rúss-
landi og hafa rússnesk stjórnvöld jafnvel bannað
það að orðið stríð sé notað um innrásina í Úkra-
ínu. Stríðsyfirlýsing myndi gera rússneska hern-
um kleift að kalla í herinn varaliðsmenn, sem og
að halda nýliðum, sem kvaddir hafa verið í her-
inn, lengur, en nú þurfa þeir einungis að sinna
herskyldu í eitt ár. Þá yrðu herlög sett á. »19
AFP/Ed Jones
Pútín sagður íhuga að lýsa yfir stríði
Urður Egilsdóttir
Helgi Bjarnason
„Við höfum bent á að þetta skiptir
máli núna, þegar áhrifa heimsfarald-
ursins gætir ekki lengur, að ríkis-
sjóður sé ekki að auka á eftirspurn í
hagkerfinu,“ segir Bjarni Benedikts-
son fjármála- og efnahagsráðherra
um verðbólguástandið en nú mælist
verðbólgan 7,2%.
Hann segir að þessar nýjustu töl-
ur kalli á að passað sé upp á að auka
ekki eftirspurn í hagkerfinu.
„Í fjármálaáætlun, sem liggur fyr-
ir Alþingi, gerum
við ráð fyrir mjög
aðhaldssamri rík-
isfjármálastefnu
næstu árin með
litlum raunvexti
útgjalda,“ segir
Bjarni og bætir
við að stjórnar-
andstaðan hafi
gagnrýnt þá
stefnu töluvert á
þinginu.
Hann nefnir að Seðlabankinn geti
haft áhrif á stöðuna en tvennt standi
upp úr varðandi hvernig hægt sé að
bregðast við nú.
„Annars vegar að gera ekki það
sem gæti aukið eftirspurn með aukn-
um ríkisútgjöldum en hins vegar að
horfa til þess hvernig hópar sem eru
félagslega illa settir eru á lægri enda
tekjustigans, hvernig verðbólgan er
að leika þá,“ segir Bjarni og bætir
við að þeir séu almennt þeir sem séu
mest útsettir fyrir verðbólgubreyt-
ingum.
Hann segir því að eftir atvikum
þurfi að styðja við slíka hópa, en nán-
ar er rætt við Bjarna á mbl.is.
„Það er mín bjargfasta skoðun að
verkalýðshreyfingin, atvinnulífið,
verslun og þjónusta, Seðlabankinn,
sveitarfélögin og ríkið eigi að taka
höndum saman og finna leið til að
milda afleiðingar aðgerða gegn verð-
bólgunni eins og hægt er,“ segir Vil-
hjálmur Birgisson formaður Starfs-
greinasambandsins við blaðið í dag.
Hann segir um fordæmalausa tíma
að ræða, þar sem verðbólga æði
stjórnlaust áfram, og mikilvægt sé
að stjórnvöld taki málið alvarlega.
Auki ekki ríkisútgjöld
- Mikilvægast að auka ekki á eftirspurn í hagkerfinu - Styðja við lágtekjuhópa
Bjarni
Benediktsson
MSamráð um viðbrögð … »4