Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 COSTA DEL SOL FLUG, GISTING Í 12 DAGA OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGUR | 585 4000 | UU.IS 09. - 21. MAÍ HOTEL PALMASOL 4* TVÍBÝLI MEÐ VERÐ FRÁ89.500 KR Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 127.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA 09. - 21. MAÍ ALUASUN COSTA PARK 4* HERBERGI MEÐ LFU FÆÐI VERÐ FRÁ128.500 KR Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 142.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR BEINT FLUG Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Enn liggur ekkert fyrir hvort eða hvenær komið verður fyrir fallbyssu á varðskipinu Freyju sem kom til Ís- lands í nóvember, þrátt fyrir að bæði Landhelgisgæslan og dómsmála- ráðuneytið telji varðskip þurfa slík- an búnað, án þess þó að gefa það út með beinum hætti. „Engin stefnubreyting hefur orð- ið hjá Landhelgisgæslu Íslands varð- andi fallbyssur á varðskipum stofn- unarinnar,“ segir í svari Landhelgis- gæslunnar við spurningu Morgun- blaðsins um hvort stofnunin telji þörf á slíkum búnaði. „Ástæða þess að fallbyssu hefur ekki verið komið fyrir á varðskipinu Freyju er sú að slík aðgerð kostar allnokkurt fé auk breytinga á skipinu. Þá þarf mannafla og tæki til að koma því í kring. Uppsetning fallbyssu hefur ekki verið forgangsverkefni frá því að Freyja kom til landsins í nóv- ember. Varðskipið Freyja er búið vopnum þrátt fyrir að fallbyssu hafi ekki verið komið fyrir. Áhöfn skips- ins æfir meðferð skotvopna reglu- lega,“ segir í svarinu. Dómsmálaráðuneytið vísar ein- göngu til svara Landhelgisgæsl- unnar í svörum sínum. Fallbyssa varðskipsins Freyju ekki í sjónmáli Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskip Freyja er án fallbyssu öndvert við fyrirrennara sinn. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Lestur er að stóraukast og rafbókin er í stórsókn. Þetta eru mjög já- kvæðar fréttir,“ segir Stefán Hjör- leifsson, framkvæmdastjóri Storytel á Íslandi. Tölur Hagstofu Íslands um veltu íslenskra bóka- útgefenda sýna áframhaldandi vöxt milli ára. Tekjur bóka- útgefenda jukust um 15% í fyrra frá árinu 2020 og fóru í fyrsta skipti yfir fjóra milljarða á einu ári. Þetta er þriðja árið í röð þar sem verulegur vöxtur er milli ára en mikill samdráttur var um árabil þar á undan. „Sem fyrr er það hljóðbókin sem dregur vagninn en tekjur íslenskra útgefenda af hljóðbókum tvöföld- uðust milli ára. Rafbókin er líka í mikilli sókn en hjá Storytel jókst sala á rafbókum um 400% og er enn í miklum vexti,“ segir Stefán. Samkvæmt tölum frá Storytel hefur lestur raf- og hljóðbóka aukist verulega eða um 50% milli ára og er kominn vel yfir milljón klukkustund- ir í hverjum mánuði að staðaldri. Þá vekur það athygli að fjöldi seldra rafrænna eintaka á Íslandi í streymi fór í fyrsta sinn yfir fjölda seldra prentaðra eintaka í fyrra en alls voru seld rafræn eintök yfir 1,5 milljónir. Prentaðar bækur gefa eftir „Því miður eru vísbendingar um að lestur prentaðra bóka sé að drag- ast saman en samkvæmt könnunum kaupa Íslendingar færri bækur en áður og lestur prentaðra bóka virð- ist að sama skapi hafa minnkað. Sem betur fer styður hvert útgáfuform þó annað og það sem skiptir megin- máli er að þótt það hafi orðið breyt- ingar á því hvernig fólk nýtur bóka þá eru tekjur rétthafa að aukast heilt yfir,“ segir Stefán. Tekjur Storytel jukust um 35% milli ára og eru enn í örum vexti að sögn framkvæmdastjórans. Það sem af er þessu ári hafa þær aukist um 25%. „Þetta eru jákvæðar fréttir fyrir bókageirann því Storytel greið- ir meirihluta tekna sinna til rétthafa bóka og því aukast tekjur þeirra í sama hlutfalli.“ Stefán hefur áður starfað að um- breytingarmálum í tónlist og kvik- myndum og segir áhugavert að sjá þær breytingar sem nú séu að verða á bókaútgáfu í samanburði. „Það sem er einkum athyglisvert á Íslandi er að bókageirinn virðist ekki hafa orðið fyrir barðinu á sjóræningja- starfsemi eða misnotkun í neinum mæli líkt og aðrir afþreyingargeirar hafa þurft að glíma við. Ég tel að skýringin geti verið sú sú að bóka- geirinn fór nánast beint í rafrænt streymi og áskriftarmódel sem hafa reynst öðrum geirum best í varnar- baráttu við slíka starfsemi. Það er helst hjá Hljóðbókasafni Íslands sem slík misnotkun hefur tíðkast í gegnum tíðina en með til- komu Storytel hefur hún þó bless- unarlega minnkað. Svo er það nátt- úrlega prentaða bókin, en eins og allir vita þá hefur tíðkast að henni sé dreift án endurgjalds milli aðila og margir lesa sama eintakið þó að það sé aðeins greitt fyrir bókina einu sinni. Sama á auðvitað við um bóka- söfnin, en þar fá útgefendur aðeins greitt fyrir eitt eintak þó að bókin sé lánuð í tugum eða hundruðum ein- taka. Þessu er alveg öfugt farið hjá Storytel og rafrænum bókasöfnum þar sem sannarlega er greitt fyrir hvert eintak. Það má því kannski segja að prentaða bókin sé helsta vandamál bókageirans hvað mis- notkun varðar,“ segir Stefán í létt- um tón. Tekjur af hljóðbókum tvöfaldast milli ára - Hljóðbókin dregur vagninn í tekju- aukningu útgefenda - Rafbókin í sókn Velta íslenskrar bókaútgáfu 2008-2021 Milljarðar kr. án virðisaukaskatts 15% aukning 2020-2021 4,5 4,0 3,5 3,0 2,5 2,0 1,5 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Heimild: Hagstofa Íslands 2,8 3,1 4,15 3,6 3,2 2,4 Stefán Hjörleifsson Ræðuskörungar úr Mennta- skólanum í Reykjavík og Mennta- skólanum á Akureyri tókust á í úrslitakeppni MORFÍs í gærkvöldi, en keppnin var haldin í Háskóla- bíói. Umræðuefni kvöldsins var hvort Sameinuðu þjóðirnar væru að bregðast hlutverki sínu og voru MR-ingar með þeirri fullyrðingu en norðanmenn á móti. Er þetta í fyrsta sinn sem MR og MA keppa til úrslita í ræðukeppn- inni, en hún hefur verið haldin ár- lega frá 1984. Kenndi ýmissa grasa í ræðum keppenda, en úrslit lágu ekki fyrir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Tekist á um hlutverk SÞ Morgunblaðið/Árni Sæberg Öllu starfsfólki Landbúnaðar- háskóla Íslands (LbHÍ), sem hefur sinnt kennslu og tengdum störfum í Garðyrkjuskólanum á Reykjum, verður boðið upp á starf við Fjöl- brautaskóla Suðurlands (FSu) frá 1. ágúst 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en öllu starfs- fólki var sagt upp í vikunni í ljósi þess að námið á að færast undan hatti Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri til FSu á Selfossi. „Í samkomulagi sem mennta- og barnamálaráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynntu í ríkisstjórn í morgun er rekstur starfsmenntanáms í garð- yrkju og skyldum greinum tryggð- ur,“ segir m.a. í tilkynningunni. Öllu starfsfólki skól- ans boðið nýtt starf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.