Morgunblaðið - 30.04.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi.
Þegar kosningar nálgast reynir
Viðreisn að tala bæði til hægri
og vinstri og verður úr því einkar
ótrúverðug blanda.
Framboð Viðreisnar
í Reykjavík hefur
kynnt stefnu sína og
vill aukin útgjöld,
sem er í anda þess
vinstra samstarfs
sem flokkurinn hef-
ur unað sér vel í eft-
ir að hann endurreisti vinstri
meirihlutann fyrir fjórum árum.
- - -
Og flokkurinn stefnir bersýni-
lega að áframhaldandi vinstra
samstarfi því oddvitinn Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir segir samstarfið
hafa „gengið mjög vel“ og stefnu-
málin eru nánast samhljóða stefnu
systurflokkanna, enda hefur einsk-
is áherslumunar orðið vart allt
kjörtímabilið.
- - -
En til að blekkja hægrimenn í
borginni lætur oddvitinn
fylgja að Viðreisn sé ekki föst í
vinstri meirihlutanum og gangi
„óbundin til þessara kosninga“!
- - -
Viðreisn segist vera fylgjandi því
að lækka fasteignaskatta um
0,05% en vill á sama tíma inn-
heimta gistináttagjald sem geti
skilað 300-600 milljónum króna á
ári. Sennilega er sú hugmynd
sprottin upp af því hve vel hefur
gengið í ferðaþjónustu og rekstri
hótela í kórónuveirufaraldrinum
svo ekki munar um sérskatt á þá
grein.
- - -
Þá segist Viðreisn ætla að hag-
ræða í rekstri um 500-1.000
milljónir króna á ári, sami flokkur
og hefur stutt hraðan útgjalda-
vöxt, þenslu í umsvifum og gríð-
arlega sóun hjá Reykjavík allt
kjörtímabilið. Já, nú á að spara allt
að milljarð króna á ári. Það er trú-
legt.
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
Ótrúverðug
kosningastefna
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ákveðið hefur verið að Listaháskóli Íslands flytji í
Tollhúsið við Tryggvagötu. Því er ljóst að finna
þarf nýtt húsnæði undir starfsemi Kolaportsins í
miðborginni. Þessi landsþekkti flóamarkaður hef-
ur haft aðsetur í húsinu í tæp 28 ár.
Á síðasta fundi borgarráðs voru lögð fram til
kynningar drög að erindisbréfi starfshóps um
framtíðarhúsnæði Kolaportsins. Hlutverk hópsins
verður að gera þarfagreiningu á húsnæði undir
flóamarkað, kortleggja möguleika og bestu stað-
setningar í miðborginni, þ.m.t. að framkvæma
markaðskönnun þar sem auglýst er eftir mögu-
legum valkostum. Í kjölfar þess sendi hópurinn
niðurstöður sínar til borgarráðs með tillögum að
næstu skrefum fyrir lok október nk.
Flóamarkaði í miðborg Reykjavíkur undir heit-
inu Kolaportið var fyrst komið á laggirnar laug-
ardaginn 8. apríl árið 1989 og var það staðsett í
bílgeymslum Reykjavíkurborgar undir Seðla-
banka Íslands við Arnarhól. Hinn 15. maí 1994
flutti Kolaportið á jarðhæð Tollhússins og hefur
verið þar síðan. Þróunarfélag Reykjavíkur leigði
húsnæðið af fjármálaráðuneytinu og endurleigði
til félags um Kolaportið. sisi@mbl.is
Kolaportið fari á nýjan stað
- Er núna í Tollhúsinu en
víkur fyrir Listaháskóla
Kolaportið Vinsæll flóamarkaður í miðborginni.
Verkalýðsdagurinn verður haldinn
hátíðlegur um land allt á morgun,
sunnudaginn 1. maí. Í Reykjavík
verður útifundur á Ingólfstorgi eftir
kröfugöngu sem hefst kl. 13.30 frá
Hlemmi og fer niður Laugaveg. Há-
tíðarhöldin þennan dag lágu niðri
meðan á kórónuveirufaraldrinum
stóð. Á vef ASÍ kemur fram að búið
er að boða til samkomuhalds á yfir
þrjátíu stöðum utan höfuðborgarinn-
ar, sjá nánar þar.
Það er Þórarinn Eyfjörð, formað-
ur Sameykis, sem heldur aðalræð-
una á Ingólfstorgi að þessu sinni,
Drífa Snædal, forseti ASÍ, flytur
ávarp. Una Torfa og Bubbi Mort-
hens flytja síðan tónlist. Að fundi
loknum er boðið upp á kaffi á vegum
stéttarfélaganna víðs vegar í borg-
inni.
Í Hafnarfirði verða baráttutón-
leikar á vegum verkalýðsfélaganna í
Bæjarbíói kl. 15. Sóli Hólm, Bríet og
Bjartmar Guðlaugsson skemmta. Á
Akranesi verður kröfuganga sem
hefst við Þjóðbraut 1 kl. 14 og er
gengið að hátíðarsal eldri borgara á
Dalbraut þar sem dagskrá hefst.
Ræðumaður dagsins er Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness og SGS. Á Ísafirði
verður safnast saman við Alþýðu-
húsið kl. 14 og gengið að Edinborg
þar sem dagskráin verður. Ræðu-
maður dagsins er Finnbogi Svein-
björnsson. Á Akureyri verður safn-
ast saman við Alþýðuhúsið og gengið
kl. 14 að Menningarhúsinu Hofi.
Ræðumenn dagsins eru Finnur Vík-
ingsson, formaður Rafiðnaðarfélags
Norðurlands, og Kristján Þórður
Snæbjarnarson, formaður RSÍ. Í
Neskaupstað verður dagskrá í Hótel
Hildibrand á milli kl. 12:00-13:00. Á
Selfossi verður kröfuganga frá
Austurvegi 56 kl. 11:00.
Ræðumenn verða Flosi Eiríksson,
framkvæmdastjóri SGS, og Jóhann-
es Torfi Torfason nemi.
Fjölbreytt dagskrá
um land allt 1. maí
Morgunblaðið/Hari
1. maí Útifundur á Ingólfstorgi.