Morgunblaðið - 30.04.2022, Page 16

Morgunblaðið - 30.04.2022, Page 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sumarið fram undan og næstu misseri líta vel út og bjart er framundan í íslenskri ferðaþjónustu, jafnvel svo að stefnir í skort á mannafla, þar á meðal á leiðsögu- mönnum. Þetta kom fram í máli Friðriks Rafnssonar, formanns Leiðsagnar, stéttarfélags leiðsögumanna, á aðalfundi félagsins á þriðjudaginn. „Við okkur blasir nefnilega sú staðreynd að þegar pestin skall á og fótunum var skyndilega kippt undan lífs- viðurværi okkar áttuðu margir vanir og faglegir leið- sögumenn sig á því hversu ótraust og illa launað leið- sögumannsstarfið er og fengu sér tryggari og betur launaða vinnu,“ sagði hann. Friðrik sagði að einn fylgifiskur slíkrar stöðu væri að ferðaþjónustufyrirtækin væru farin að ráða nánast hvern sem er til leiðsögustarfa. Félagið hefði undanfarnar vik- ur fengið sífellt fleiri tilkynningar um að þar væri því miður ekki farið að kjarasamningum. Viðbrögð félagsins hafi verið að ganga mun betur eftir kærumálum sem þessum heldur en gert hefur verið undanfarin ár og leita til þess aðstoðar sérfróðra lögmanna, auk þess sem félag- ið hefur notið liðsinnis VR, ASÍ og fleiri aðila. Friðrik sagði að þessi vinnubrögð félagsins væru þeg- ar farin að bera árangur sem sæist á því að nokkur fyrir- tæki sem hefðu verið „nokkuð ósvífin“ undanfarin ár væru farin að óska eftir fundi með félaginu að fyrra bragði og vilji koma sínum málum á hreint gagnvart fé- lögum Leiðsagnar. Fram kom enn fremur máli Friðriks á fundinum að hann og ritari stjórnar félagsins hefðu nýlega átt mjög góðan fund með Lilju Alfreðsdóttur ráðherra og fyrir- hugaður væri fundur með fulltrúum ráðuneytisins um efni sem lengi hefði verið baráttumál leiðsögumanna: lögvernd starfheitisins. „Eins og þið vitið hefur gengið á ýmsu með það mál undanfarin ár og áratugi, en vonandi er það loks að komast í gott horf og með samstarfi okkar leiðsögumanna og samtakamætti tekst það vonandi,“ sagði Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar. Gæti orðið skortur á leiðsögumönnum - Viðræður í gangi um lögverndun á starfi leiðsögumanna Morgunblaðið/Eggert Ferðaþjónusta Útlit er fyrir að meira en nóg verði að gera hjá íslenskum leiðsögumönnum í sumar. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Gífurlegar olíuverðshækkanir og sú staðreynd að Landhelgisgæslan mun framvegis ekki kaupa olíu er- lendis hefur veruleg áhrif á allan skiparekstur stofnunarinnar. Þetta kemur fram í skriflegu svari Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa við fyrirspurn Morgunblaðsins. Aukinn kostnaður við olíutöku varðskipanna leiði til þess að draga verður úr siglingum. Leitað verði leiða til að halda úthaldsdögum jafn mörgum en draga úr olíunotkun með því að sigla skipunum minna. „Slíkt leiðir óhjákvæmilega til minna eftirlits og skyndiskoðana á hafsvæðinu umhverfis Ísland þar sem skipin verða oftar bundin við bryggju eða við akkeri til að mæta þessum kostnaðarauka. Úthalds- dagarnir og viðbragðsgetan verður sú sama þrátt fyrir að minna verði siglt,“ segir Ásgeir. Ríkisendurskoðun komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu, sem birt var fyrr á árinu að Landhelgisgæslan ætti að hætta kaupum á olíu í Fær- eyjum. Í framhaldinu tóku stjórn- endur stofnunarinnar þá ákvörðun að í flestum tilfellum yrði olía keypt á Íslandi héðan í frá. Ódýrari olía í Færeyjum Frá aldamótum hafa varðskip Landhelgisgæslunnar tekið olíu í Færeyjum þegar þau hafa verið við eftirlitsstörf djúpt austur af landinu eða við æfingar með dönsku varð- skipunum. Innkaupsverð olíu er mun lægra í Færeyjum en á Íslandi enda þarf ekki að greiða virðisauka- skatt af eldsneytinu í Færeyjum þar sem þetta er útflutningur á olíu þar. Með því að kaupa eldsneyti í Fær- eyjum hafa umtalsverðir fjármunir sparast sem nýst hafa til að fjölga úthaldsdögum varðskipanna og sinna öðrum lögbundnum hlut- verkum. Morgunblaðið leitaði til dóms- málaráðuneytissins og spurðist fyrir um það hvort til stæði að auka fram- lög til Landhelgisgæslunnar í ljósi þess að kaupa þyrfti dýrara elds- neyti en áður eða þá að fella niður virðisaukaskatt af olíukaupum Gæslunnar. Svar ráðuneytisins við fyrirspurninni var eftirfarandi: „Landhelgisgæslan er rekin fyrir framlag úr ríkissjóði sem ákveðið er með lögum frá Alþingi. Landhelgis- gæslan tók sjálf þá ákvörðun á sín- um tíma að kaupa olíu í Færeyjum og spara sér þannig að greiða virðis- aukaskatt. Nú hefur Ríkisendur- skoðun girt fyrir þessa aðferð við ol- íukaup. Ekki er við því að búast að framlög til Landhelgisgæslunnar verði aukin til að vega upp á móti þessari stöðu. Á sínum tíma var það kannað hvort fella ætti niður virðisauka- skatt viðbragðs- og björgunaraðila en niðurstaða yfirvalda var sú að gera það ekki.“ Virðisaukaskattur meginregla Ennfremur sendi Morgunblaðið fyrirspurn til fjármálaráðuneytsis- ins og spurðist fyrir um það hvort til skoðunar kæmi að fella niður virðis- aukaskatt af olíukaupum Landhelg- isgæslunnar. Svar ráðuneytisins var svohljóðandi: „Ráðuneytið bendir á að í lögum um virðisaukaskatt er sú megin- regla að greiða skuli í ríkissjóð virð- isaukaskatt af viðskiptum innan lands á öllum stigum, svo og af inn- flutningi vöru og þjónustu, eins og nánar er kveðið á um í lögunum. Af meginreglunni leiðir að Landhelgis- gæslunni líkt og öðrum aðilum sem kaupa hér á landi skattskylda vöru og þjónustu, þ.m.t. olíu, ber að greiða virðisaukaskatt af slíkum kaupum hér á landi. Þá telst slík sala til innlends aðila líkt og Land- helgisgæslunnar ekki vera útflutn- ingur í skilningi laganna og skip Landhelgisgæslunnar ekki til milli- landafara. Af því leiðir að sala inn- anlands á olíu til Landhelgisgæsl- unnar telst ekki til undanþeginnar veltu í skilningi VSK-laganna. VSK- kerfinu er í eðli sínu ætlað að vera hlutlaust gagnvart ólíkum teg- undum efnahagsstarfsemi með jafn- ræði og hlutlæga mælikvarða að leiðarljósi. Kerfið á því hvorki að ívilna né íþyngja einstökum grein- um atvinnulífsins.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Varðskipaflotinn Þór og Freyja eru til skiptis við eftirlitsstörf á Íslandsmiðum. Stórhækkaður olíukostnaður mun valda því að þau munu sigla minna, en úthaldsdagar verða hins vegar óbreyttir. Varðskipin liggi oftar við akkeri - Landhelgisgæslan bregst við hærri olíukostnaði - Úthaldsdagar óbreyttir en dregið úr siglingum 1. janúar þessa árs voru 76.680 skot- vopn skráð í notkun eiganda hér á landi á 36.548 einstaklinga. Þetta kemur fram í svari Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Andrésar Inga Jóns- sonar, þingmanns Pírata, á Alþingi um skotvopnaeign, innflutning skot- vopna og framleiðslu. Ef óvirk, förguð, týnd, haldlögð og útflutt skotvopn eru talin með auk skotvopna lögreglu og lagera versl- ana eru skráð vopn hér á landi 87.048. Þeir 20 einstaklingar sem eiga flest skotvopn eru 19 karlar og ein kona og eiga þau samanlagt 2.052 vopn eða að meðaltali 103 vopn hvert. Í svarinu segir að frá árinu 2017 hafa verið flutt inn 2.200 til 2.600 skotvopn á ári. Karlar tæplega 96% eigenda Karlar eru skráðir eigendur flestra innfluttra skotvopna, en á tímabilinu 2012 til 2021 voru á bilinu 22 til 69 konur skráðar eigendur inn- fluttra skotvopna á ári og eru þær um 3 til 4% af heildarfjölda skráðra eigenda vopna. Lögin og reglugerðin varðandi sjálfvirka riffla eru til skoðunar hjá dómsmálaráðuneytinu og stendur til að leggja fram frumvarp um breyt- ingar á vopnalögum næsta haust. Eitt þrívíddarprentað vopn Andrés Ingi spyr einnig hversu mörg vopn lögregla hefur lagt hald á sem framleidd voru með þrívíddar- prentun og er svarið eitt. „Tilurð þessa eina vopns er til rannsóknar. Grunsemdir eru uppi um að slík vopn hafi verið framleidd á Íslandi en þess ber að geta að fæstir þrívíddarprentarar ráða við framleiðslu slíkra muna.“ 76.680 skotvopn skráð í notkun - Yfir 35 þúsund manns eiga vopn Skotvopn Tugir þúsunda manna hér á landi eiga skráð skotvopn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.