Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Svíar og Finnar gætu aukið enn frekar samstarf sitt í öryggis- og varnarmálum á Eystrasalti þróist mál þar til verri vegar. Finnar hafi þó enn ekki tekið ákvörðun um hvort sækja eigi um aðild að Atl- antshafsbandalaginu (NATO). Þetta segir utanríkisráðherra Finnlands, Pekka Haavisto, en umræður um hugsanlega aðild að varnarbanda- laginu fara nú fram á finnska þinginu. Stuðningur Finna við aðild að NATO hefur aukist eftir innrásar- stríð Rússa í Úkraínu. Sömu sögu er að segja í Svíþjóð. Telur Haavisto mikilvægt að ákvörðun um aðild ríkjanna liggi fyrir á svipuðum tíma. Ann Linde, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir ekki tímabært að svara því hvort Svíþjóð muni sækja um NATO-aðild. Þingið sé að bíða eftir ítarlegri greiningu á stöðunni og mun hún ekki liggja fyrir fyrr en 13. maí næstkomandi. Þangað til verður engin ákvörðun tekin þar í landi. Bretar senda sérfræðiteymi Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að senda teymi sérfræðinga í málum er varða stríðsglæpi til Úkraínu. Verð- ur hlutverk þeirra þar að rannsaka hugsanlega stríðsglæpi rússneskra hermanna og verður sérstök áhersla lögð á kynferðisbrot. Er talið nær öruggt að rússneskt innrásarlið beri ábyrgð á grófum og útbreiddum kynferðisbrotum í garð bæði kvenna og barna í Úkraínu. Mun teymið í næstu viku ferðast til Pól- lands hvar það hittir m.a. fulltrúa ríkisstjórnar Úkraínu, fjölþjóðlega samstarfsaðila og flóttafólk. Úkra- ínsk stjórnvöld segja Rússa nú markvisst stunda þjófnað á hveiti- birgðum innan hernuminna svæða. Á þetta sérstaklega við Kherson í suðvesturhluta landsins. Hveiti- þjófnaðurinn í bland við þær hafn- arlokanir sem rússneski flotinn framfylgir ógnar, að mati úkra- ínskra stjórnvalda, fæðuöryggi í heiminum. Moskvuvaldið hefur ekki viljað tjá sig um hveitistuld rúss- neskra hersveita. Bandaríkin veita upplýsingar Fullyrt er að bandarískar leyni- þjónustur hafi útvegað Úkraínuher mikilvægar upplýsingar í rauntíma sem snerta herflutninga Rússa og fyrirhugaðar árásir þeirra á skot- mörk innan landamæra Úkraínu. Tókst Úkraínumönnum þannig að lengja líftíma orrustuflugsveita sinna sem án þessara upplýsinga hefði verið eytt á jörðu niðri í sprengjuárás Rússa. Þá eru bandarískar leyniþjónust- ur einnig sagðar hafa leikið stórt hlutverk í því þegar loftvarnasveit- um Úkraínuhers tókst að granda tveimur stórum herflutningavélum Rússa af gerðinni Ilyushin Il-76MD. Um borð voru að líkindum allt að 250 fallhlífarsérsveitarmenn auk flugáhafnar. Gerðist þetta snemma í innrásinni. Ekki er útilokað að upp- lýsingar frá Bandaríkjunum hafi haft meiri áhrif á gang stríðsins. NATO-aðild nú í greiningu - Breskt rannsóknarteymi mun afla sönnunargagna um stríðsglæpi Rússa AFP Eyðilegging Kænugarður er nú afar illa farinn eftir sprengjuregn Rússa. Rússar munu hinn 9. maí nk. halda upp á sigur- daginn svonefnda, en þá er þess minnst þegar Sovétríkin sálugu unnu sigur á Þriðja ríki Þýskalands árið 1945. Er um að ræða árlega her- sýningu á Rauða torginu í Moskvu hvar rúss- neski herinn sýnir mátt sinn. Með hersýningunni fylgjast m.a. Rússlandsforseti, herforingjar, embættismenn og fyrrverandi þjóðarleiðtogar. Hernaðarsérfræðingar telja sumir líklegt að inn- rásarlið Rússlands í Úkraínu muni nú leggja aukna áherslu á landvinninga og sigra sem hampa má sérstaklega á þessum degi. khj@mbl.is Sigurdagurinn undirbúinn í skugga Úkraínustríðs AFP Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Varnarmálaráðuneyti Þýskalands íhugar nú að senda langdrægar hábyssur (e. howitzer) til átaka- svæða í Úkraínu. Bandaríkin hafa þegar ákveðið að gera slíkt og er það í fyrsta skipti sem Bandaríkjamenn senda annarri þjóð hábyssur sem hernaðaraðstoð. Með þeirri send- ingu munu þúsundir skotfæra fylgja. Vopnasendingar ríkja Atlants- hafsbandalagsins (NATO) til Úkra- ínuhers hafa breytt gangi stríðsins í Úkraínu. Ljóst má vera að Moskvu- valdið er ósátt við þessar sendingar og hefur það varað við frekari gjöf- um. Þær séu til þess fallnar að ógna öryggisástandi allrar Evrópu. Sú hábyssa sem Þjóðverjar íhuga nú að senda nefnist Panzerhaubitze 2000. Er um að ræða 155 mm byssu sem hýst er inni í brynvagni. Getur hún grandað skotmörkum í allt að 40 kílómetra fjarlægð. Vel þjálfuð áhöfn getur skotið 10 til 13 skotum á mínútu og þykir PzH-2000 afar öfl- ugt vopn á vígvellinum. Fleiri hábyssur til umræðu - Getur grandað skotmörkum í allt að 40 kílómetra fjarlægð Ljósmynd/Varnarmálaráðuneyti Þýskalands Vopn Hin öfluga Panzerhaubitze 2000 kann að enda á vígvöllum Úkraínu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.