Morgunblaðið - 30.04.2022, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Faxabraut 7, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Mikið endurnýjuð og glæsileg 4 herbergja íbúð á annarri hæð í tvíbýli með bílskúr.
Rishæð með herbergi og geymslu ekki inní birtri stærð eignar.
Skólar, íþróttamannvikri og þjónusta í göngufæri.
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali
s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali
s. 899 0555
Bjarni Fannar Bjarnason
Aðstoðamaður fasteignasala
s. 773 0397
Verð 64.500.000 Birt stærð 185,8 m2
Þ
að féll flest með Hjörvari
Steini Grétarssyni í 7. um-
ferð í keppni landsliðs-
flokks á Skákþingi Íslands
á Selfossi sl. miðvikudag. Honum
tókst að vinna einn helsta keppinaut
sinn um titilinn, Héðin Steingríms-
son, og á sama tíma tapaði Hannes
Hlífar Stefánsson fyrir Hilmi Frey
Heimissyni. Þá missti Guðmundur
Kjartansson niður mikilvægan ½
vinning. Litlu munaði að Vignir
Vatnar tapaði fyrir Símoni Þórhalls-
syni en slapp með skrekkinn og situr
einn í 2. sæti. Eftir þessar skákir
hafði forysta Hjörvars aukist og þar
sem gert var tveggja daga hlé á
mótinu liggur fyrir að úrslit munu
ráðast nú um helgina. Og í dag teflir
Hjörvar Steinn við Vigni Vatnar og
hefur hvítt. Má búast við spennandi
skák í gamla Landsbankahúsinu á
Selfossi. Annar ungur maður, Hilmir
Freyr Heimisson, er heldur ekki al-
veg út úr myndinni því að hann teflir
við Hjörvar Stein í síðustu umferð.
Staðan fyrir lokasprettinn er þessi:
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 5½
v. (af 7) 2. Vignir Vatnar Stefánsson
4½ v. 3.-7. Hannes Hlífar Stefáns-
son, Héðinn Steingrímsson, Guð-
mundur Kjartansson, Þröstur Þór-
hallsson og Hilmir Freyr Heimisson
4 v. 8. Bragi Þorfinnsson 2½ v. 9. Al-
exander Oliver Mai 2 v. 10. Símon
Þórhallsson ½ v.
Viðureignar Héðins og Hjörvars
sl. miðvikudag var beðið með nokk-
urri eftirvæntingu. Þeir hafa áður
mæst undir svipuðum kringum-
stæðum og ber þar hæst úrslitaskák
þeirra á Íslandsþinginu 2015 sem
Héðinn vann. En nú snerist dæmið
við; Héðinn er yfirleitt vel undir-
búinn í byrjunum en að þessu sinni
missti hann þráðinn snemma. Hjörv-
ar nýtti sér færin sem gáfust og
vann í aðeins 28 leikjum:
Skákþing Íslands 2022; 7. um-
ferð:
Héðinn Steingrímsson – Hjörvar
Steinn Grétarsson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3
Gegn Hannesi valdi Héðinn að
leika 4. Dc2. Sennilega hefur hann
viljað forðast undirbúningsvinnu
Hjörvars.
4. … 0-0 5. Bd3 d5 6. a3 Bxc3+ 7.
bxc3 dxc4 8. Bxc4 c5 9. Re2
9. Rf3 má svara með 9. Dc7 og síð-
ar b7-b6.
9. … Rc6 10. 0-0 e5 11. Bb2 Db6
12. Dc2 Bg4 13. f3 Bh5 14. Db3?!
Það er eins og að frá og með þess-
um leik missi hvítur þráðinn. Ein-
faldast er 14. Had1 eða 14. Dd2.
14. … Dc7! 15. Da4 Hac8 16. Hac1
Ra5 17. Ba2 c4
Lokar á báða biskupana.
18. Hf2
Annar slakur leikur. Eftir 14. e4
er hvítur með vel teflanlega stöðu
því að 18. … Rxe4 má svara með 19.
g4! o.s.frv.
18. … e4 19. Rg3 Bg6 20.f4 h5 21.
f5 h4
22. fxg6?
Vendipunkturinn í skákinni.
Þessu mátti hvítur aldrei leika. Eftir
22. Rf1 er staðan í jafnvægi.
22. … hxg3 23. gxf7+ Hxf7 24.
Hf4
Eftir 24. hxg3 Haf8 er hvítur
varnarlaus, t.d. 25. Hf4 g5! og vinn-
ur.
24. … gxh2+ 25. Kh1 Rh5 26.
Hxf7 Kxf7
Menn hvíts standa allir á þröngu
svæði á drottningarvæng og það er
enginn möguleiki á því að verja
kóngsstöðuna.
27. Db5 Rg3+ 28. Kxh2 Re2+
Lokahnykkurinn. Hvítur er óverj-
andi mát og gafst upp.
Í áskorendaflokki er m.a. keppt
um tvö sæti í landsliðsflokki á næsta
ári. Þar eru Benedikt Briem og
Aleksandr Domalchuk-Jonasson
efstir og jafnir með 5 v. af 6. Aleks-
andr á íslenskan föður og móðir hans
er frá Úkraínu. Í 3.-4. sæti koma Jó-
hann Ingvason og Benedikt Þórisson
með 4½ v. Keppendur eru 25 talsins
og verða tefldar níu umferðir.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Spennandi umferð í dag
Vignir Vatnar getur náð
Hjörvari með sigri í inn-
byrðis viðureign.
EFTA-dómstóllinn
er sjálfstæður dóm-
stóll. Hann er ekki
undirdómstóll Evr-
ópudómstólsins.
EFTA-dómstóllinn
dæmdi Íslandi í vil í
Icesave-málinu. Hjört-
ur J. Guðmundsson er
höfundur greinar sem
birtist í Morgunblaðinu
26. apríl og skrifar þar,
að hefði Evrópudómstóllinn haft lög-
sögu hefði íslenska ríkið að öllum lík-
indum beðið ósigur í málinu.
Enginn veit hvernig dómur
Evrópudómstólsins hefði fallið í mál-
inu, en Icesave-málið er staðfesting
á mikilvægi þess fyrir EFTA-ríkin
að hafa sinn eigin dómstól. Það er
eitt að EFTA-dómstólnum beri
skylda til að fylgja dómaframkvæmd
Evrópudómstólsins, en á hitt ber að
líta, að það hefur hann ekki alltaf
gert og eins að Evrópudómstóllinn
hefur fylgt dómaframkvæmd
EFTA-dómstólsins í fjölda mála
gegnum árin, tímabilið 1994 til 2017.
Hefur EFTA-dómstóllinn á þessu
tímabili kveðið upp yfir 200 dóma í
deilumálum sem Evrópudómstóllinn
hefur vísað til í rúmlega 250 tilfellum
og aðallögmenn hans og almenni
dómstóllinn í um 170 málum. Það
verður að teljast nokkuð góð
frammistaða dómstóls sem þrír
dómarar skipa. Evrópudómstóllinn
hefur jafnvel breytt dómafram-
kvæmd sinni til samræmis við dóma-
framkvæmd EFTA-dómstólsins.
Vassilios Skouris, fyrrverandi for-
seti Evrópudómstólsins, hefur ítrek-
að bent á hið góða samband sem rík-
ir milli Evrópudómstólsins og
EFTA-dómstólsins,
samband sem hefur
gert þessa lögfræðilegu
samræðu mögulega.
Hjörtur hefur þó rétt
fyrir sér þegar hann
lýsir núverandi EFTA-
dómstól sem „ójöfn-
um“. Evrópudómstóll-
inn hefur hreinlega lát-
ið af lögfræðilegri
samræðu við EFTA-
dómstól Páls Hreins-
sonar. Þar með hefur
EFTA-dómstóllinn misst þau áhrif
sem hann hafði á Evrópudómstólinn.
Sennilegasta skýringin er þverrandi
gæði dómsúrlausna (sjá til dæmis
Totis Kotsonis á
https://www.lexology.com/gtdt/workareas/
public-procurement/content/
ef348ffe-6053-457f-a7dc-1ec138c20b9;
Tarjei Bekkedal og Mads Andenas á
https://www.idunn.no/doi/abs/10.18261/
lor.61.3.3).
Styttar slóðir:
http://mbl.is/go/nmkhd
http://mbl.is/go/fe64w
Er EFTA-dómstóll-
inn annars flokks
dómstóll?
Eftir Carl
Baudenbacher
»Hefur EFTA-dóm-
stóllinn á þessu
tímabili kveðið upp yfir
200 dóma í deilumálum
sem Evrópudómstóllinn
hefur vísað til í rúmlega
250 tilfellum og aðal-
lögmenn hans og
almenni dómstóllinn í
um 170 málum.
Carl Baudenbacher
Höfundur er fyrrverandi forseti
EFTA-dómstólsins.
Bjarni Benediktsson fæddist
30. apríl 1908 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru hjónin Bene-
dikt Sveinsson, f. 1877, d. 1954,
alþm. og Guðrún Pétursdóttir,
f. 1878, d. 1963, húsmóðir.
Bjarni lauk lagaprófi frá HÍ
1930 með hæstu einkunn sem
þá hafði verið gefin. Hann
stundaði framhaldsnám erlend-
is í stjórnlagafræði 1930-32, og
varð prófessor við HÍ 24 ára
gamall. Hann gegndi því starfi
til 1940 þegar hann varð borg-
arstjóri, en hann hafði verið
borgarfulltrúi frá 1934.
Bjarni kvæntist fyrri konu
sinni Valgerði Tómasdóttur, f.
1913, d. 1936, árið 1935. Seinni
konu sinni, Sigríði Björns-
dóttur, f. 1919, d. 1970, kvænt-
ist hann 1943. Börn þeirra eru
fjögur.
Bjarni varð alþingismaður
1942 en var áfram borgarstjóri
þar til hann varð utanríkis- og
dómsmálaráðherra 1947. Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn fór úr
ríkisstjórn 1956 varð Bjarni rit-
stjóri Morgunblaðsins, en þeg-
ar viðreisnarstjórnin tók við
1959 varð hann dóms-, kirkju-,
heilbrigðis- og iðnaðarmálaráð-
herra. Árið 1961 varð Bjarni
formaður Sjálfstæðisflokksins
og 1963 forsætisráðherra og
gegndi hann þeim stöðum þar
til hann fórst í eldsvoða ásamt
konu sinni og dóttursyni.
Bjarni lést 10. júlí 1970.
Merkir Íslendingar
Bjarni
Benediktsson
Hjörvar með vinnings-
forskot á Vigni Vatnar
og þeir mætast í dag
Viðskipti