Morgunblaðið - 30.04.2022, Side 25

Morgunblaðið - 30.04.2022, Side 25
fór að losna og rakaði það bara af! Alfreð var mikið í fótbolt- anum. Mamma hafði mikinn áhuga og þótti gaman að fara á leiki. Þau pabbi mættu á flesta leiki og eltu hann út um allt land í hvaða veðri sem var. Það fyrsta sem Alfreð gerði á leikj- um var að leita að mömmu og pabba í stúkunni. Samband mömmu og Alfreðs varð mjög sterkt. Ásta Kristný var mikið með mömmu í hesthúsinu, enda smituð af hestamennskunni. Þær voru mikið tvær saman í heimili, þegar pabbi var á sjón- um og við eldri börnin vorum farin að heiman. Nýjasta barnabarnið fékk nafn Krist- manns afa og mömmu þótti vænt um það. Fjölskyldan skipti mömmu öllu máli, börnin, barnabörnin og tengdabörnin. Barnabörnin Ármann og Eyrún hafa notið þess að fá að fara í hesthúsið til ömmu og hjálpa til og brasa og fara á bak. Efri-Hóll er sam- verustaður fjölskyldunnar, það- an var Kristmann afi og mamma hélt mikið upp á þessa jörð. Mamma og pabbi voru mikið með okkur þar, einkum þegar við vorum yngri. Þar var mikið riðið út, veitt í læknum og farið í göngutúra. Efri-Hóll var staðurinn hennar mömmu, til að núllstilla sig og sækja sér orku. Hún var náttúrubarn, kunni hvergi betur við sig en á hesti, að njóta náttúru og úti- veru. Hestamennskan var lífið, ferðirnar með fjölskyldunni, vinirnir, félagsskapurinn, tamn- ingarnar og námskeiðin sem hún var með fyrir krakkana. Pabbi fylgdi henni og hún hon- um, í Brokey og eyjarnar. Þeim leið vel á sjónum og fóru oft á sjó á kvöldin, stundum bara til að fá sér frískt loft. Heima var mamma víkingur, dugnaðarforkur í öllu. Þegar hún þurfti að stækka og breyta hesthúsinu var ekki verið að fá smiði, hún gerði það bara sjálf. Hún hlífði sér aldrei og var alltaf æðrulaus. Líka í veikind- unum. Það stóð aldrei til boða að gefast upp. Pabbi stóð allan tímann þétt við bakið á henni og við öll líka. Hún var sterk- asta manneskja sem við vitum af. Hún hélt áfram, sama hvað blés á móti. Takk elsku mamma fyrir allt og allt. Við elskum þig út fyrir endamörk alheimsins. Arna Dögg, Alfreð Már og Ásta Kristný. Amma farin til himna og við höfum svo margar spurningar. Hvers vegna þurfti amma að fara? Fór hún til Kristmanns langafa? Hvar er amma núna? Af hverju varð amma veik? Hver fer núna með okkur á hestbak? En við eigum minningar um ömmu sem lifa. Við vitum að ömmu líður betur þar sem hún er núna. Hún er komin til Kristmanns langafa, pabba síns, sem passar hana fyrir okkur. Við munum eftir henni þegar við förum í sveitina eða á sjóinn með Jóni afa. Og þegar við förum á hestbak og verðum í kringum hestana. Núna er amma fallegur engill sem vakir yfir okkur. Elsku amma, við söknum þín. Þín ömmubörn, Ármann Ingi, Eyrún Nadía og Kristmann Hjörtur. Það brestur eitthvað inni í manni þegar maður fréttir að vinur sinn sé með krabbamein, það var einmitt það sem gerðist þegar við hjónin heyrðum hvað væri að ske hjá þér Edda mín, menn dofna upp um stund en hrista svo hausinn og segja nei hún Edda er svo mikill nagli að hún hristir þetta af sér. En í þínu tilfelli var það of seint, meinið var komið víða og lítið hægt að gera. Við unnum sam- an síðustu árin, það var gott að vinna með þér, þú varst hrein- skiptin og sagðir það sem þú meintir, menn vissu alltaf hvar þeir höfðu þig og er það mikill kostur. Þú varst hamhleypa til vinnu og stundum yfirþyrmandi en það er fylgifiskur mikils dugn- aðar, en alltaf ljúf og blíð og lést kúnnana finnast þeir vera velkomnir, og vil ég þakka þér samvinnuna. Ég leit á þig sem nokkurs konar ættarlauk, því þú varst alltaf að redda einhverju fyrir fjölskylduna þína; hringja þangað, tékka á þessu … mér fannst utanumhald þitt á fjöl- skyldunni til svo mikils sóma að ég verð að nefna það. Og það er ekki hægt að minnast þín án þess að tala um hestamennsk- una, þar varstu á heimavelli, ræktaðir og tamdir öll þín hross sjálf, metnaðurinn með því mesta sem gerist. Þú keypt- ir meira að segja hlut í einum flottasta og besta stóðhesti landsins, Þóroddi frá Þórodds- stöðum, og notaðir mikið, enda vel ríðandi. Þú tamdir fyrir mig gráan fola þegar þú tókst tamningaprófið frá Hólaskóla, það var einn galli á gripnum; hann hrekkti alltaf þegar ég fór á bak en bara mig, aldrei hjá öðrum. Við göntuðumst alltaf með það að hann væri að segja við mig: einn í einu vegna þess að mig vantaði hæð miðað við kjörþyngd en þú alltaf svo fit og flott. Einu sinni fór ég með þér í sleppitúr suður að Efri- hól, en þar upp við fjöllin er þitt óðal. Það var gaman að ríða um svæðið og njóta útiver- unnar, skoða stóðið þitt og heyra allan fróðleik um sveitina þína, fá svo kaffi og nýbakaðar pönnukökur þegar við komum til baka. Þarna varstu stundum með stóðhesta og kom ég tvisv- ar með merar til þín. Við erum með hesthús í sömu lengjunni í hesthúsahverfinu í Stykkis- hólmi, það verður skrítið að koma í hesthúsin og heyra hvorki hláturinn né sjá þig en minningin lifir. Megi algóður Guð geyma þig. Jóni Inga og börnum vottum við okkar dýpstu samúð. Eiríkur og Unnur. Hún frænka mín var ham- ingjubarn. Hún var fjölskyldu- kona og gleðigjafi, matmóðir og frábær hestamaður, elsku frænka og góður vinur. Svo þungur harmur er að hennar nánustu kveðinn, að því verður ekki lýst með orðum. En minningarnar eru marg- ar og góðar og þær ylja. Við Edda Sóley gátum talað um hesta út í eitt. Það jákvæða var alltaf út- gangspunkturinn. Við ólumst upp við gamalt og gott reið- hestakyn sem okkur fannst báðum heilagt blóð. Þar var geðslagið aðalatriðið, blíð lund og þjónustuvilji, dugnaður, seigla og ákveðni. Með þessu fannst okkur fara vel meira blítt geðslag, mjúkur gangur, dugnaður og seigla, litadýrð og fegurð í viðbót við það sem fyr- ir var. Það rann svo morgun- ljóst upp fyrir mér, þegar birti af degi morguninn eftir andlát Eddu, að hún hafði alla þessa kosti sem manneskja og miklu fleiri. Hamingjubarnið hún frænka mín var ávöxtur mikillar og fal- legrar ástar foreldranna Árnýj- ar og Kristmanns. Þau fundu hvort annað, sáu ekki sólina hvort fyrir öðru og nutu hverr- ar mínútu í samskiptum sínum. Ég var barn og verðandi ung- lingur með höfuð og hjarta fullt af spurningum, og skynjaði alla straumana og ástina feimnis- laust. Ég gat þakkað foreldrum mínum að hafa aldrei leynt okkur systkinin því hversu hrif- in þau voru hvort af öðru. Svo þetta var sannarlega eins og það átti að vera. Það stirndi á gullnu lokkana hennar litlu frænku minnar frá fyrsta degi. Hún varð hrífandi ung stúlka, sportleg ung kona, móðir og eiginkona og sannarlega einn af boðberum kynslóðar sinnar. Boðskapurinn var og er skýr; konur geta allt sem þær vilja. Við Edda Sóley erum systk- inabörn. Við tvö og bræður hennar slitum nokkrum barns- skóm á Uxahrygg, hjá afa og ömmu. Við Edda tókum sömu bakteríuna hjá afa, hestabakt- eríuna, beint og í gegnum systkinin Árnýju og Erling. Við ræktuðum þessa bakteríu bæði og bárum saman reglulega. Það varð því mikill fögnuður, þegar Hreinn vinur okkar beggja leiddi okkur í sömu hestaferð- ina. Ferðirnar urðu fleiri og all- ar góðar. Við hittumst síðast á skírdegi undir þaki Sankti Fransiskusar. Það hillti undir leiðarlok, en við töluðum bara um allt þetta skemmtilega. Og svo um hesta, marga og góða, skemmtilega og fallega. Gæð- ingarnir voru sumir leirljósir, sem stirnir á eins og hárið hennar frænku. Þau Jón Ingi stigu í takt og héldust í hendur til hinsta dags. Sá taktur var held ég sleginn í fermingarveislunni hennar Eddu. Börnin þrjú, tengdabörn og barnabörn bera þeim hjónum gott vitni. Allt snerist þetta um lífsgæfu og gleði fjölskyldunn- ar. Hreiðrið skyldi vera ham- ingjuríkt og engin fyrirhöfn var of mikil. Elsku vinir og frænd- ur; Jón Ingi, Arna Dögg, Alfreð Már og Ásta Kristný, tengda- börn og barnabörn, kæra Árný frænka, Kristján, Þröstur og fjölskyldur. Ég flyt ykkur dýpstu samúð mína og míns fólks, megi almættið styðja ykkur og styrkja í þungum harmi. Elsku frænka mín, góða ferð. Megi bestu gæðingar himnarík- is bera þig, á yfirferðartölti um blómabrekkurnar. Ég bið að heilsa pabba. Takk fyrir allt og allt! Samúel Örn Erlingsson. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur, sem ekki yfirgefur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Á kveðjustund langar okkur æskuvinkonurnar að þakka vin- áttuna, kærleikinn og allar samverustundirnar sem við átt- um með Eddu. Að kveðja æskuvinkonu okk- ar nú er bæði óraunverulegt og ótímabært. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Jón Ingi, Arna Dögg, Alfreð Már, Ásta Kristný og fjölskyldur, megi allar góðar vættir styrkja ykkur og styðja í sorginni. Elsku Edda takk fyrir allt. Þínar æskuvinkonur, Bjargey, Branddís, Halldóra og Kristín. Í dag kveðjum við góða vin- konu okkar, Eddu Sóleyju, sem kvaddi okkur alltof snemma eftir erfið veikindi. Vorið 2018 spurðirðu Hörpu hvort þú mættir koma með í ferðina sem við vorum að skipuleggja, gætir járnað en vildir ekki elda. Harpa vissi þá strax að þarna væri komið síðasta púslið sem við vorum búin að leita að í okkar flotta hóp. Ekki var hægt að óska sér betri ferðafélaga í hestaferðum, okkar fyrsta ferð með þér var um sumarið þegar við fórum á Strandirnar. Þú mættir með hálfkláraðan skírnarkjól fyrir barnabarnið þitt sem átti að fara að skíra rétt eftir ferð. Markmiðið var að klára hann fyrir lok ferðar og þér tókst það enda ef það var laus stund þá varstu komin með hann í fangið. Síðasta hestaferðin okkar saman var í fyrra, þá var farið yfir í Ísafjarðardjúp og þó að þú værir orðin veik þá, þá léstu þig ekki vanta og tókst fullan þátt, eins og alltaf. Enda tal- aðirðu um hvað þig langaði á þessar slóðir. Stórt skarð er komið í hóp- inn okkar sem verður aldrei fyllt, komandi ferðir verða ekki eins án þín en við munum ávallt heiðra minningu þína og ég tel að það verði nú ekki dagur þar sem við munum ekki rifja upp alla þá góðu tíma sem við átt- um saman á hverju ári þegar við hittumst. Þetta voru ekki mörg ár en hópurinn var eins og hann hefði alltaf ferðast saman og þú varst svo mikill hluti af okkur. Elsku Jón Ingi, Arna, Alfreð, Ásta Kristný og fjölskyldur, við sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Kvennaferðarinn- ar miklu, Harpa Björk Eiríksdóttir. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HJÖRLEIFUR JÓNSSON, skólastjóri, prestur og söngstjóri, Hrafnistu Hafnarfirði, áður Lyngrima 15, Reykjavík, lést að morgni þriðjudagsins 19. apríl. Útförin fer fram í Háteigskirkju mánudaginn 2. maí klukkan 13. Athöfninni verður streymt á https://www.skjaskot.is/jonhjorleifur Hlekk á streymi má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat Sólveig Hjördís Jónsdóttir Stefán Stefánsson Kristín Guðrún Jónsdóttir Jón Thoroddsen Jón Árni Jónsson Linda Dís Guðbergsdóttir Kolbrún Sif Muchiutti Ricardo Muchiutti barnabörn og barnabarnabörn Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET B. GUÐMUNDSDÓTTIR, er látin. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Ellen María Ólafsdóttir Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA MARTEINSDÓTTIR, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn 3. apríl 2022. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju miðvikudaginn 4. maí kl. 14. Athöfninni verður streymt á vef Hafnarkirkju, hafnarkirkja.is. Öllum sem vilja minnast Maríu er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Brynja Reynisdóttir Björn Sverrisson Sigurbjörg Hákonardóttir Jón Sigurðsson Hólmfríður Sigþórsdóttir Ingvaldur Mar Ingvaldsson Þórunn Sigþórsdóttir Páll Gíslason ömmu- og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN ANNA CLAESSEN, lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn fimmtudaginn 28. apríl. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir, tengdamóðir og amma og langamma, VALBORG SVEINSDÓTTIR meinatæknir, Hlíðargerði 3, lést á Landspítalanum í Fossvogi 20. apríl. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 3. maí klukkan 13. Frosti Bergmann Eiðsson Sólveig Haraldsdóttir Logi Bergmann Eiðsson Svanhildur Hólm Valsdóttir Hjalti Bergmann Eiðsson Sindri Bergmann Eiðsson Elfa Eiríksdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI BJÖRN FINNSSON húsgagnasmiður, lést á heimili sínu laugardaginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. maí klukkan 15. Hafþór Árnason Brynhildur Konráðsdóttir Heiðar Árnason Edda Marý Óttarsdóttir Inga Dóra Helgadóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.