Morgunblaðið - 30.04.2022, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
✝
Jóna Vilborg
Friðriksdóttir
fæddist á Þor-
valdsstöðum í
Skriðdal 5. októ-
ber 1931. Hún lést
22. apríl 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Friðrik
Jónsson, f. 8.11.
1896, d. 16.4. 1977,
og Sigríður Bene-
diktsdóttir, f.
24.11. 1892, d. 23.8. 1987. Syst-
ir Jónu Vilborgar var Margrét,
f. 1.12. 1927, d. 28.5. 2006.
Hálfbróðir Jónu Vilborgar
1958, maki Védís Klara Þórð-
ardóttir; Benedikt Rúnar, f.
4.5. 1962, maki Lilja Björk
Finnbogadóttir; Hrafnhildur
Vilborg, f. 14.10. 1968. Barna-
börnin eru 16 og barna-
barnabörnin 25 talsins.
Jóna Vilborg ólst upp á Þor-
valdsstöðum í Skriðdal. Eftir
barnaskóla fór hún í unglinga-
skólann á Reyðarfirði, síðan í
Héraðsskólann á Laugarvatni
og Húsmæðraskólann á Löngu-
mýri í Skagafirði. Jóna Vilborg
giftist Kjartani Runólfssyni ár-
ið 1955 og hófu þau búskap á
Þorvaldsstöðum þar sem þau
bjuggu til ársins 2002 en þá
fluttu þau til Egilsstaða.
Útför Jónu Vilborgar verður
gerð frá Egilsstaðakirkju í dag,
30. apríl 2022, klukkan 14.
Jarðsett verður í heimagraf-
reit á Þorvaldsstöðum.
samfeðra var Jón
Karl Hansen, f.
24.4. 1919, d. 21.4.
1932.
Eftirlifandi eig-
inmaður Jónu Vil-
borgar er Kjartan
Runólfsson, f. 31.3.
1932. Börn þeirra
eru: Margrét Sig-
ríður, f. 3.6. 1953,
maki Sigfús Grét-
arsson; Birna
Kristrún, f. 1.2. 1956, maki Ás-
mundur Þór Kristinsson;
drengur, f. 26.3. 1957, d. 26.3.
1957; Friðrik Gauti, f. 17.8.
Föstudaginn 22. apríl þegar
vorið skartaði sínu fegursta á
Austurlandi og gaf fyrirheit um
gott sumar varð ljóst að mamma
mín, Jóna Vilborg Friðriksdóttir,
hafði litið sinn síðasta vordag.
Mamma fæddist á Þorvalds-
stöðum í Skriðdal 5. október
1931, annað barn hjónanna Frið-
riks Jónssonar og Sigríðar Bene-
diktsdóttur. Margrét systir
hennar var fjórum árum eldri og
voru þær systur nánar. Afi og
amma voru víðsýn og hvöttu dæt-
ur sínar til menntunar. Mamma
fékk því tækifæri til að prófa ým-
islegt um fram það sem kannski
tíðkaðist almennt á þessum tíma.
Hún fór meðal annars í Héraðs-
skólann á Laugarvatni og Hús-
mæðraskólann á Löngumýri í
Skagafirði. Auk þess sigldi hún
til Noregs og vann þar í skóg-
rækt eitt sumar.
Mamma var glæsileg og lífs-
glöð kona með dökka lokka og
geislandi græn augu. Hún átti
marga vini og kunningja og rat-
aði í alls kyns ævintýri. Fram á
síðasta dag gat hún sagt manni
sögur „frá því í gamla daga“ þar
sem hún gat með ótrúlegri ná-
kvæmni rakið atburði og sam-
ræður löngu liðinna tíma. En
þrátt fyrir að hafa flakkað um
landið og fengið að sjá heiminn
höguðu örlögin því þannig að hún
varð ástfangin af myndarlega
unga manninum á næsta bæ.
Hún giftist pabba, Kjartani Run-
ólfssyni, árið 1955 og settust þau
að á Þorvaldsstöðum þar sem
þau bjuggu til ársins 2002 þegar
þau fluttu til Egilsstaða. Þor-
valdsstaðir hafa þó alltaf verið
„heim“ í þeirra huga og mamma
vildi hvergi annars staðar eiga
sinn hinsta náttstað.
Heimili þeirra mömmu og
pabba hefur oft verið mannmargt
og alltaf pláss fyrir fleiri, hvort
sem verið hefur í mat, gistingu
eða kaffisopa. Mamma hélt ótrú-
legri yfirsýn yfir allan afkom-
endahópinn, gleymdi aldrei af-
mælisdögum og fylgdist með
öllum í lífi og starfi. Hún hafði
alltaf tíma fyrir alla þó svo að hún
stýrði stóru heimili og gat t.d. átt
löng og innihaldsrík símtöl þar
sem hún hélt á símanum í annarri
hendi og tók matinn til með hinni.
Hún hafði einstakt lag á börnum
og ungmennum, hafði óþrjótandi
þolinmæði við að kenna börnum
til verka og ófáir lærðu að lesa,
sauma eða spila kasínu hjá henni.
Henni tókst að gæða hversdags-
leg verk gleði með því að búa til
leik úr þeim og áður en maður
vissi af var kannski erfitt verk
eins og að tína heybagga af vöru-
bílspalli orðið að spennandi leik.
Ég hef alltaf hugsað með mér að
hún mamma hefði orðið frábær
kennari.
Mamma var víðfræg fyrir
ótrúlegan dugnað og seiglu þar
sem hún reis margsinnis upp úr
erfiðum veikindum, slysum og
áföllum og hélt sínu striki. Upp-
gjöf eða sjálfsvorkunn voru ekki
til í hennar orðabók. Hún náði
aldrei alveg sáttum við Elli kerl-
ingu, litaði gráu hárin, naut þess
að kaupa sér skvísuföt og hélt
bjartri rödd og glettnu augnaráði
til lokadags. Hún hafði marg-
sinnis náð að leika á dauðann en
að lokum þurfti hún að láta í
minni pokann og þiggja hvíldina
fyrir þreyttan líkama.
Takk elsku mamma mín fyrir
samfylgdina, endalausu ástina,
umhyggjuna og gleðina. Megir
þú hvíla í friði undir dalanna sól.
Þín dóttir,
Hrafnhildur Vilborg
Kjartansdóttir.
Nú ertu horfin héðan, kæra
hjartans vina, burt mér frá,
þér ég nú vil þakkir færa,
þögul tárin leika um brá.
Lengi götu ganga máttum
grýtt og hörð var stundum braut,
en við margar einnig áttum
yndisstundir, gegnum þraut.
Því ég stilli harm í hljóði,
horfi yfir forna slóð,
kveð þig nú með litlu ljóði,
ljúfa mamma, kona góð.
Fyrir handan hafið kalda
hygg ég að þú bíðir mín.
Minning þín um aldir alda
eflaust verður sólin mín.
Elsku mamma, einnig viljum
eiga stund við beðinn þinn.
Núna er hljótt, er hér við skiljum,
hjörtun klökkna nú um sinn.
Muna blíða bernsku kæra,
börnin þín og þakkir nú
fyrir ást og allt það kæra
okkur, sem að veittir þú.
Barnabörnin bljúg nú senda
blíða hinstu kveðju þér.
Tengdabörn og tryggir vinir
til þín allir beinast hér,
koma nú að kistu þinni,
krjúpa þar svo undur hljótt.
Allir hafa sama sinni,
segja þökk – og góða nótt.
(Borgfjörð)
Þínar dætur,
Margrét og Birna.
Elsku mamma mín. Það er
sárt að kveðja þig, en huggun að
þú varst með allt á hreinu, allt
þar til yfir lauk. Það er ekki sjálf-
gefið á 91. aldursári. Mér er efst í
huga þakklæti fyrir alla þá
ómældu hjálp sem þið pabbi vor-
uð mér og minni fjölskyldu.
Mamma var einstaklega vinnu-
söm og féll henni það hvað verst
að geta ekki orðið gert neitt eins
og hún sagði. Öll vor meðan
heilsan leyfði komu mamma og
pabbi í sauðburð. Umhyggja
mömmu fyrir fjölskyldunni og
ekki síður fyrir málleysingjum
var einstök. Lítil veikburða lömb
lifnuðu flest við í höndunum á
henni.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin, sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Takk fyrir samfylgdina elsku
mamma mín. Ég hef þá trú að við
sjáumst aftur.
Þinn sonur,
Rúnar.
Konan sem var alls staðar, lét
sig allt varða er kom að sínu nær-
umhverfi. Hafði skoðun á stjórn
landsmála sem oftar en ekki var
ekkert annað en lélegt uppsóp.
Hún hafði ríka réttlætiskennd,
málsvari þeirra sem minna máttu
sín og áttu um sárt að binda. Hún
var einlægur dýravinur, mar-
íuerlan var í miklu uppáhaldi og
hrafninum sýndi hún sérstaka
virðingu. Það kom fyrir að dýrin
sem voru á eða við bæinn leituðu
á náðir hennar ef þau höfðu orðið
fyrir einhverju óhappi. Þá komu
þessir blessuðu málleysingjar
upp að bænum hennar og leituðu
ásjár. Hún var afar næm á líðan
þessara vina sinna.
Hún var náttúrubarn. Lág-
gróðurinn í landinu var hennar
skógur. Hún var alfarið á móti
hömlulausri skógrækt, henni
fannst sárt að horfa upp á fallega
héraðið sitt sem ól hana verða
einn samfelldur skógur. Dala-
drögin, hæðirnar, melarnir, þetta
var landslagið sem skerpti sjón-
ina og gladdi hjartað. Múlakoll-
urinn var fjallið hennar. Áskor-
unin, jú hún hafði klifið Kollinn.
Hún hafði jú staðið frammi fyrir
ýmsum áskorunum í lífinu, mis-
krefjandi og tókst á við þær á
sinn hátt. Það sem hún tók sér
fyrir hendur að gera leysti hún
afar vel af hendi og vildi að aðrir
gerðu það einnig og gaf gjarnan
engan afslátt.
Ég var kynntur fyrir þessari
konu fyrir rúmum 40 árum. Man
að ég sagði með sjálfum mér:
mikið ljómandi er þetta sæt kona.
Og svo sannarlega var hún það.
Þótt aldurinn færðist yfir hana
tókst henni alltaf að snúa aldr-
inum sér í hag, hann skyldi ekki
fá síðasta orðið að þessu leyti.
Ég bið Guð að blessa minningu
Jóna Vilborg
Friðriksdóttir
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskulegur eiginmaður, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
KJARTAN MOGENSEN
landslagsarkitekt,
Norðurbrún 20, Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 16. apríl.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
2. maí klukkan 15.
Halldóra Ólafsdóttir
Erik J. Mogensen
Asbjørnsen
Marit Strand Asbjørnsen
Helga Kristín Mogensen Gunnlaugur Úlfsson
Anna Ingeborg Pétursdóttir Mitchell Stephen Weverka
Snorre, Haakon, Úlfur, Kjartan Leó, Jackson Ólafur og
Audrey Anna
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR B. GÍSLASON,
framkvæmdastjóri
Smurstöðvarinnar Klappar,
Haðalandi 14,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 19. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 5. maí kukkan 13.
Gísli G. Gunnarsson Unnur Birna Magnúsdóttir
Einar B. Gunnarsson Guðrún Magný Jakobsdóttir
Anna G. Gunnarsdóttir Sigurður T. Jack
Laufey E. Gunnarsdóttir Óðinn Einisson
Ari Gunnarsson Sigríður Árnadóttir
Sigfús B. Gunnarsson
Ásgerður Tryggvadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir, dóttir, systir og barnabarn,
SVANHVÍT HARÐARDÓTTIR
tanntæknir,
lést í Hafnarfirði laugardaginn 23. apríl.
Útför Svanhvítar fer fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði miðvikudaginn 4. maí
klukkan 13.
Hörður Ingi Þorsteinsson
María Lind Atladóttir
Hörður V. Sigmarsson Erla Ferdinandsdóttir
Sigurbjörg E. Guðmundsdóttir
Erica María Harðardóttir Thelma Hilmarsdóttir
Kári Harðarson Sigrún H. Gunnarsdóttir
Hjalti Harðarson Júlíana B. Bjarnadóttir
Ásrún Sigurbjartsdóttir
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýnt
hafa okkur samúð og hlýhug við andlát
okkar ástkæra
DAVÍÐS SCHEVING THORSTEINSSON
framkvæmdastjóra.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki sem önnuðust hann á
Landspítala í Fossvogi.
Stefanía Svala Borg
Laura Sch. Thorsteinsson Magnús Pálsson
Hrund Sch. Thorsteinsson Gunnar Ingimundarson
Jón Sch. Thorsteinsson Ragnheiður Harðardóttir
Magnús Sch. Thorsteinsson Þórey Edda Heiðarsdóttir
Guðrún Sch. Thorsteinsson
Stefanía Sch. Thorsteinsson Jóhann Torfi Ólafsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir
Okkar ástkæra móðir, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
SOFFÍA H. JÓNSDÓTTIR,
Lautasmára 20, Kópavogi,
lést á Landspítalanum föstudaginn 22. apríl.
Útför Soffíu fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 2. maí klukkan 13. Útförinni verður streymt á
YouTube-rás Grafarvogskirkju. Hlekk á streymi má einnig
nálgast á www.mbl.is/andlat
Guðrún Dóra Gísladóttir Páll Snæbjörnsson
Jón Bender Guðrún Ragnarsdóttir
Guðleif Bender G. Aðalsteinn Gunnarsson
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir ástvinir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN KRISTINN JÓNSSON,
Einbúablá 17, Egilsstöðum,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Dyngju,
Egilsstöðum, 2. apríl.
Útför hans fór fram frá Egilsstaðakirkju 13. apríl.
Þökkum fyrir hlýhug, samúð, blóm, gjafir og fallegar kveðjur.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dyngju og
Akstursíþróttaklúbbsins START.
Sigrún Aðalbjörg Ingadóttir
Hjálmar Jónsson Bergrún Hafsteinsdóttir
Björgvin Jónsson Katrín Dóra Jónsdóttir
og afabörnin
Jón Vilberg, Hrafntinna Heiður og Sigrún Lóa
VIÐ ERUM FLUTT
Eyrartröð 16, 220 Hafnarfirði
sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Eyrartröð 16
220 Hafnarfirði
Opið kl. 11-16 virka daga
FALLEGIR LEGSTEINAR