Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 ✝ Valgerður Björnsdóttir fæddist 30. maí 1953 í Deildartungu í Reykholtsdal í Borgarfirði. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 18. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Björn Jóns- son bóndi og hrepp- stjóri í Deildar- tungu, f. 28. júlí 1915, d. 13. mars 1978, og Unnur Jónsdóttir hús- freyja, f. 14. júní 1920, d. 25. sept- ember 2008. Systkini Valgerðar eru: Guð- laugur, f. 18. desember 1942, kona hans er Sigríður Fjóla Guð- mundsdóttir; Sigurbjörg, f. 30. janúar 1951, d. 16. apríl 1952; og Jón, f. 12. júní 1955, kona hans er Gréta Ingvarsdóttir. Hinn 17. nóvember 1973 giftist Valgerður Jóhanni Oddssyni frá Steinum í Stafholtstungum, f. 9. ágúst 1946. Börn þeirra eru: 1) Jónína Laufey, f. 20. júní 1973, Heimilið var stórt, störfin mörg við búskap auk þess að vera með fatlaðan son á hand- leggnum í 20 ár. Þó vann hún af og til utan heimilis. Hún kenndi við Varmalandsskóla og greip í alls kyns aukaverkefni í sveit- inni. Einnig sótti hún ýmiss kon- ar námskeið og menntun, t.d. sem stuðningsfulltrúi, bowen- tæknir og jógakennari. Valgerður var alla tíð mikil fé- lagsmálamanneskja. Hún starfaði í ungmennafélagi sveitar sinnar og var í stjórn þess um tíma, hún var einnig lengi virk í leikdeild fé- lagsins. Var hún sæmd heiðurs- merki UMSB fyrir félagsstörf í gegn um árin fyrir nokkru. Val- gerður var einnig gegnheil kven- félagskona og var formaður síns félags a.m.k. tvisvar og eins var hún formaður Sambands borg- firskra kvenna. Valgerður var virkur félagi í hestamannafélag- inu Faxa og sat í ýmsum nefndum þar í gegn um tíðina. Hún kom að stofnun Þroskahjálpar á Vest- urlandi á sínum tíma og var síðar formaður í 15 ár. Útförin fer fram frá Reyk- holtskirkju í dag, 30. apríl 2022, klukkan 16. Streymi á athöfnina má nálg- ast hér: https://youtu.be/U4ronnHmTmQ maður hennar er Bernhard Þór Bern- hardsson, f. 14. nóv- ember 1972. Börn þeirra eru Baldur Freyr, Hugrún Björk og Björn Haukur. 2) Oddur Björn, f. 2. desem- ber 1976, kona hans er Eva Karen Þórð- ardóttir, f. 5. sept- ember 1978. Börn þeirra eru Jóhann Páll, Hilmar Örn og Laufey Erna. 3) Hannes, f. 28. nóvember 1980, d. 31. des- ember 2013. 4) Guðmundur Steinar, f. 9. ágúst 1982, kona hans er Sigurrós María Sig- urbjörnsdóttir, f. 18. janúar 1985. Valgerður ólst upp í Deildar- tungu við almenn sveitastörf. Hún fór í Héraðsskólann í Reyk- holti að lokinni grunn- skólagöngu. Vann við ýmis þjón- ustustörf í héraðinu. Tvítug að aldri var hún komin að Steinum þar sem hún hóf búskap með eft- irlifandi eiginmanni sínum. Mér hefur sjaldan brugðið meir en þegar Oddur Björn bróðurson- ur minn hringdi í mig síðdegis laugardaginn 16. apríl og sagði mér að móðir sín (mágkona mín) hefði fengið alvarlegt tilfelli blæð- ingar í heila og útlitið væri mjög erfitt. Á slíkum augnablikum þarf maður tíma til að átta sig á því hvað raunverulega hafi gerst. Hún var í fermingarveislu hjá dóttur- dóttur minni á skírdag, tveimur sólarhringum fyrr, og ekkert benti þá til þess að hún væri ekki eins og hún var vanalega. Við svo snögg og óvænt um- skipti stöðvast tíminn, maður þarf ákveðið svigrúm til að átta sig á aðstæðum. Margs mætti minnast á langri vegferð. Sagt er að móðureðlið sé sterkasta einkenni konunnar, það kom best í ljós þegar Hannes son- ur þeirra veiktist alvarlega í frum- bernsku og var fatlaður til ævi- loka. Þar hófst barátta fyrir velferð hans og oft var á brattann að sækja en uppgjöf var aldrei í huga. Þar var algjör samstaða að veita honum alla þá umhyggju sem hægt var. Valgerður var mikil félags- málamanneskja og tók þátt í margs konar félagsstarfsemi, m.a. kvenfélagi og einnig var hún virk í Þroskahjálp á Vesturlandi. Nú blasir sú staðreynd við bróður mínum eins og mér áður fyrr að þær eru báðar farnar, eftir stönd- um við, því verður ekki breytt. Áfram skal haldið þrátt fyrir óvænt áföll, annað er ekki í boði. Ég kveð mágkonu mína með virð- ingu og þökk fyrir allt. Samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Kristján F. Oddsson. Þegar ég var krakki og ung- lingur var ég í sveit hjá Völu og Jóa frænda á Steinum. Það má segja að Vala hafi verið mamma mín í sveitinni yfir sumarmánuð- ina í þann tæpa áratug sem ég var í sveit á Steinum. Vala átti því sinn þátt í mínu uppeldi. Það er mér sérstaklega eftirminnilegt frá þessum tíma hve vel hún og öll fjölskyldan á Steinum hugsaði um Hannes frænda, son þeirra Jóa. Þegar ég minnist Völu núna hugsa ég um sumrin á Steinum. Alltaf var mikið um að vera og nóg að gera. Vala stjórnaði heimilinu á bænum og það er kannski fyrst núna sem ég átta mig á því hve skilyrðislaust traust ég bar alltaf til hennar. Það vill svo til að það er ekki svo langt síðan Vala tók að sér mömmuhlutverkið fyrir mig í síð- asta skipti. Það var eftir Þverár- rétt fyrir nokkrum árum að ég fékk slæmt mígrenikast og treysti mér ekki suður til Reykjavíkur. Þeir sem þekktu Völu vita að það var minnsta málið að ég fengi að gista á Steinum um nóttina. Dag- inn eftir þurfti ég svo að taka strætó heim, þar sem ég hafði fengið far upp eftir. Vala skutlaði mér því í Bauluna, þar sem strætó stoppaði, og ákvað hún þegar þangað var komið að splæsa á mig ís. Þetta er mér minnisstætt augnablik, þegar við Vala sátum og borðuðum ís á meðan ég beið eftir rútunni suður. Það var eins og við hefðum ferðast aftur til árs- ins ’93, eða þar um bil. Takk fyrir allt saman. Oddur Kristjánsson. Vala var mér meira eins og eldri systir en frænka. Ég, Vala og Jón bróðir hennar ólumst upp sitt á hvorum Deildartungubænum þar til við mamma fluttum til Reykjavíkur. Vala stjórnaði okkur Jónka með harðri hendi enda elst og ráðríkust. Amma kenndi okkur að lesa með bandprjónsaðferðinni og ég lærði að lesa um leið og Vala. En mér gekk ekki eins vel að fylgja henni í prjónaskapnum. Þegar amma reyndi að losa lykkj- urnar sem voru negldar á prjón- inn hjá mér eða hirða upp þær sem höfðu týnst á leiðinni, sagði hún að ég ætti að taka Völu mér til fyrirmyndar, því ekki vildi ég verða prjónaskita. Kannski urðu þetta áhrínsorð. Mikið öfundaði ég oft Völu seinna meir af hennar mikla verksviti og útsjónarsemi, hvort sem það var varðandi ein- hverja handavinnu eða bara al- menn verk. Við vorum aldar upp á hestbaki og með slæma hestadellu sem eltist ekki af okkur. Það var nóg af viljugum hestum á Deild- artungubæjunum og mörg ung- menni á sumrin til að ríða út. Á sunnudögum lá leiðin oftar en ekki niður á Kroppsmela til að hleypa, sem var trúlega bannað, og síðan í æsilegan kúrekaleik innan um birkihríslurnar í Bæjarskógi en það var örugglega bannað. Lík- lega hefði ég hætt öllum útreiðum á seinni árum ef ekki hefði verið fyrir Völu og fjölskylduna á Stein- um. Þar eru góðir vel tamdir hest- ar og gestrisni mikil. Við fórum í stuttar ferðir, langar ferðir og í hestaferðalög. Síðustu árin kom Vala reglu- lega í menningarferðir til höfuð- borgarinnar yfir langa helgi og dvaldi þá hjá mér. Við settum upp dagskrá og fórum á leiksýningar og í bíó, á söfn og í sund. Yfirleitt sinnti hún innkaupaerindum án mín. En ef ég lenti í að fara með henni í búðir þá var það upplifun út af fyrir sig og kannski ekki al- veg fyrir mína þolinmæði. Hún vissi hvar allt fékkst og hvar mað- ur gat fengið hina aðskiljanleg- ustu hluti á Reykjavíkursvæðinu. Hún hafði líka gjarnan á hreinu hvað nágranna hennar vantaði. Inni í búðinni voru síðan ræddir kostir og gallar í þaula ekki bara við afgreiðslufólkið heldur líka við aðra viðskiptavini. Ég mun sakna sárt ferða okkar Völu hvort sem þær voru gang- andi, ríðandi eða á vit ævintýra í leikhúsi og á listsýningum. Elsku Jói, Jónína, Doddi og Guðmundur, ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sigurbjörg. Vala frænka mín var glæsileg kona með fallega rautt og liðað hár. Fjölhæfur skörungur, sem fátt vafðist fyrir og áhugasöm um margt. Hún ólst upp hjá foreldr- um sínum, Unni og Birni í Deild- artungu í Reykholtsdal, ásamt Jóni yngri bróður sínum, núver- andi bónda í Deildartungu, og Guðlaugi eldri hálfbróður, sem fljótlega eignaðist eigin fjölskyldu en sinnti býlinu með Birni. Á þeim tíma var margt um manninn í sveitunum. Vinnumenn komu og fóru og krakkar voru sendir í sveit. Tvíbýli var í Tungu og bjuggu bræðurnir Björn og Andr- és hvor á sínum helmingi jarðar- innar og var ég í sveit hjá Adda. Við krakkarnir vorum settir í störf eftir því sem hægt var og höfðum aldur til en á kvöldin lékum við okkur. Frjálsíþróttir voru stund- aðar af kappi á melunum austan við túnfótinn, prílað í fjósinu, sem var í byggingu, og hlaðan var skemmtilegur vettvangur leikja en þegar við urðum eldri var lang- vinsælast að fara í útreiðar. Þá voru bugður Reykjadalsár riðnar og kannski farið í sjoppuna í Reykholti eða riðið yfir Kropps- melana, út í Bæjarskóg og farið í kúrekaleik á hrossunum. Alla tíð síðan fannst Völu gaman að bregða sér á bak og átti hún ávallt góða reiðskjóta. Tvítug eignaðist Vala frumburð sinn, Jónínu Lauf- eyju, með Jóhanni Oddssyni, bóndasyni á Steinum í Stafholt- stungum, og flutti fljótlega þang- að. Bjuggu þau þar allan sinn bú- skap upp frá því og tóku við helmingi búsins. Synirnir Oddur Björn, Hannes og Guðmundur Steinar bættust síðan í hópinn á næstu níu árum. Vala var höfðingi heim að sækja. Þau voru ófá skiptin sem ég kom til þeirra Jóa með börn, sem henni fannst þurfa að hitta nýgotna kett- linga, fjöruga hvolpa eða nýborin lömb og ef einhver þurfti að kom- ast á hestbak var það auðsótt hjá þeim hjónum. Ef viðkomandi var ekki nógu vel gallaður voru dregn- ar fram úlpur og stígvél, sem nóg var til af. Völu var margt til lista lagt og áhugi hennar lá víða. Handavinna af ýmsum toga lék í höndunum á henni. Af nauðsyn saumaði hún og lagaði flíkur en einnig saumaði hún sér til skemmt- unar eins og bútasaumsteppi og upphlut á sjálfa sig. Á tímabili bólstraði hún húsgögn af krafti og myndarbrag. Sem bóndi sinnti hún bæði úti- sem inniverkum í sam- vinnu við bónda sinn og var enginn aukvisi þar og þótt álagið væri oft mikið vann hún auk þess lengi vel utan heimilis. Þótt skyldustörfin væru ærin fannst henni gaman og nauðsynlegt að gera sér dagamun. Vala var mikil félagsvera og afar virk í ýmsum félagasamtökum. Hún var frændrækin og fróð um menn og málefni. Ferðalög voru of- arlega á vinsældalista hennar, bæði innanlands og utan. Stóra sorgin í lífi þeirra Jóa voru veikindi og í kjölfarið fötlun Hannesar son- ar þeirra en hann veiktist af heila- himnubólgu á fyrsta aldursári. Þau sinntu honum af einstakri natni, ást og óeigingirni alla tíð og tóku systkini hans virkan þátt í því hlut- verki. Ég og fjölskylda mín erum full þakklætis fyrir allt sem Vala hefur gert fyrir okkur og sendum Jóa, Jónínu, Dodda, Guðmundi og þeirra fjölskyldum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Jóhanna Sigtryggsdóttir. Valgerður Björnsdóttir - Fleiri minningargreinar um Valgerði Björns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ASTRID SIGRÚN KAABER sjúkraliði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 15. apríl, verður jarðsungin frá Breiðholtskirkju þriðjudaginn 3. maí klukkan 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 2C í Sóltúni fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjálparsamtök. Magnús Björn Björnsson Guðrún Dóra Guðmannsdóttir Ragnar H. Björnsson Sigrún Birna Björnsdóttir Agnar Benónýsson barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts okkar ástkæru ÁSTU ÓLAFSDÓTTUR, Miðengi 15, fyrrverandi bónda á Skúfslæk. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dagdvalarinnar Vinaminnis og hjúkrunarheimilisins Lundar fyrir einstaka umönnun. Sigurður Einarsson Magnús Eiríksson Magdalena Lindén Árni Eiríksson Sólveig Þórðardóttir Ólafur Eiríksson Halla Eiríksdóttir Erling Valur Friðriksson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur frændi okkar og vinur, LEIFR LEIFS, lést föstudaginn 8. apríl 2022. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til alls starfsfólks á Sléttuvegi 9, fyrr og nú, fyrir vináttu og umönnun. Frændfólk og vinir Okkar ástkæri, SÆVAR ÁRNASON húsasmíðameistari, Reykjanesbæ, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 3. maí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast Sævars er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja. Hildur Ellertsdóttir Örn Úlfar Sævarsson Ásta Andrésdóttir Ellert Sævarsson Aldís Ósk Sævarsdóttir Ómar Örn Kristófersson barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, laugardaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 5. maí klukkan 13. Inga Þóra Stefánsdóttir Helga Björg Stefánsdóttir Rögnvaldur Guðmundsson Elfa Stefánsdóttir Haraldur J. Baldursson Víðir Stefánsson Elín Ragna Sigurðardóttir Magnús Hjörleifsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir okkar, fósturfaðir, afi og bróðir, EIÐUR PÁLL SVEINN KRISTMANNSSON, Skógarvegi 6, lést á Landspítalanum við Hringbraut 27. apríl eftir stutt veikindi. Jarðarför verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Ólöf Gísladóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.