Morgunblaðið - 30.04.2022, Síða 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Umspil kvenna
Undanúrslit, fyrsti leikur:
Grótta – HK.......................................... 21:31
ÍR – FH ................................................. 28:27
Þýskaland
B-deild:
Rimpar – Coburg................................. 25:23
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði eitt
mark fyrir Coburg.
Pólland
Zaglebie – Kielce................................. 24:32
- Haukur Þrastarson skoraði þrjú mörk
fyrir Kielce en Sigvaldi Björn Guðjónsson
er meiddur.
Frakkland
Montpellier – Nancy............................ 33:27
- Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki
með Montpellier vegna meiðsla.
- Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk
fyrir Nancy.
B-deild:
Nice – Angers ...................................... 40:26
- Grétar Ari Guðjónsson varði 11 skot í
marki Nice.
E(;R&:=/D
Belgía/Holland
Landstede – Leuven Bears................. 57:82
- Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor-
aði sex stig, tók þrjú fráköst og gaf eina
stoðsendingu á 25 mínútum með Land-
stede.
Hague Royals – Phoenix Brussels..... 53:82
- Snorri Vignisson skoraði sex stig, tók
þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 22
mínútum með Hague.
Þýskaland
Crailsheim – Fraport Skyliners ........ 70:81
- Jón Axel Guðmundsson tók tvö fráköst á
tveimur mínútum með Crailsheim.
Úrslitakeppni NBA
1. umferð:
Toronto – Philadelphia ...................... 97:132
_ Philadelphia vann 4:2 og mætir Miami.
New Orleans – Phoenix.................... 109:115
_ Phoenix vann 4:2 og mætir Dallas.
Utah – Dallas ........................................ 96:98
_ Dallas vann 4:2 og mætir Phoenix.
>73G,&:=/D
Sindri Kristinn
Ólafsson, mark-
vörður knatt-
spyrnuliðs Kefl-
víkinga, er ekki
eins alvarlega
meiddur og ótt-
ast var en hann
lenti í hörðum
árekstri snemma
leiks gegn Vík-
ingi í fyrrakvöld.
Talið var að hann gæti verið kinn-
beinsbrotinn en í gær var staðfest
að svo væri ekki. Grunur leikur á
að Sindri hafi fengið heilahristing
og óvíst er hvenær hann má hefja
æfingar á ný.
Sindri er ekki
brotinn
Sindri Kristinn
Ólafsson
KNATTSPYRNA
Besta deild karla:
Hlíðarendi: Valur – KR..................... L19.15
Eyjar: ÍBV – Leiknir R .......................... S16
Kópavogur: Breiðablik – FH ............ S19.15
Mjólkurbikar kvenna, 1. umferð:
Skessan: ÍH – KÁ ................................... L12
Höfn: Sindri – KH .................................. L13
Framvöllur: Fram – Víkingur R ........... L14
Álftanes: Álftanes – Grindavík.............. L14
Húsavík: Völsungur – Einherji ............. L14
Sauðárkrókur: Tindastóll – HK ............ L14
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fimmti úrslitaleikur kvenna:
Ásvellir: Haukar – Njarðvík (2:2)..... S19.15
Undanúrslit karla, fjórði leikur:
Sauð.: Tindastóll – Njarðvík (2:1) .... L20.15
HANDKNATTLEIKUR
1. umferð kvenna, annar leikur:
Garðabær: Stjarnan – ÍBV (1:0)............ L16
Ásvellir: Haukar – KA/Þór (0:1) ....... S14.30
Undanúrslit karla, fyrsti leikur:
Ásvellir: Haukar – ÍBV .......................... S17
Umspil kvenna, annar leikur:
Kaplakriki: FH – ÍR (0:1).................. S19.30
Kórinn: HK – Grótta (1:0) ...................... S20
GLÍMA
Íslandsglíman 2022 fer fram í íþróttahús-
inu á Reyðarfirði í dag og hefst kl. 13.
Keppt er um Freyjumenið í kvennaflokki
og Grettisbeltið í karlaflokki.
UM HELGINA!
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Þrjár af fjórum leikseríunum í átta
liða úrslitunum í NBA-deildinni eru
komnar á hreint eftir leiki fyrstu um-
ferðarinnar á fimmtudagskvöldið.
Undirritaður lofaði möguleika
Phoenix Suns fyrir úrslitakeppnina
eftir frábæra frammistöðu í deilda-
keppninni, en síðan meiddist Devin
Booker – besti leikmaður liðsins – í
upphafi úrslitakeppninnar og allt í
einu var útlitið aðeins óljósara. Hann
mætti hins vegar í sjötta leikinn í
fyrrakvöld í New Orleans þar sem
Phoenix vann, 115:109, í hörku-
spennandi leik og þar með rimmuna
4:2. Með endurkomu hans líta hlut-
irnir því vel út að nýju fyrir Suns.
Lykillinn að sigri Phoenix í þess-
um leik var frábær leikur Chris
Pauls. Hann lék einn sinn besta leik
á ferlinum – skoraði 33 stig og hitti
úr öllum fjórtán skotum sínum. Af-
rek Pauls var met í hittni fyrir leiki í
úrslitakeppninni, en enginn leik-
maður hefur tekið jafn mörg skot og
hitt úr öllum þeirra í gegnum áratug-
ina.
Hreint ótrúlegt hjá tæplega 37 ára
gömlum leikmanni.
Doncic í firnagóðu formi
Mótherjar Phoenix í næstu um-
ferð verða leikmenn Dallas Maver-
icks, sem heimsóttu Utah á fimmtu-
dag og mörðu 98:96 sigur í sjötta leik
þeirra.
Leiksería Phoenix og Dallas ætti
að verða jafnari en vænta mætti þar
sem Luca Doncic er nú mættur til
leiks að nýju eftir að hafa jafnað sig á
meiðslum í kálfa, en hann náði ekki
að leika í þremur fyrstu leikjunum í
rimmunni gegn Utah Jazz. Doncic er
nú kominn í firnagott leikform eftir
að hafa byrjað keppnistímabilið illa.
Þjálfari Mavericks, Jason Kidd, sak-
aði hann um að hafa mætt í þjálf-
unarbúðir liðsins fyrir keppnis-
tímabilið í engu leikjaformi. Hann er
allt í öllu í leik liðsins og með hann á
fullu gæti þetta orðið fín rimma.
Þríeyki Golden State komið í
gang að nýju
Golden State Warriors átti í litlum
vandræðum með Denver Nuggets í
fyrstu umferðinni vestan megin og
virðist þríeyki þeirra Stephen Curry,
Klay Thompson, og Draymond
Green vera að komast í fínt stuð eftir
tveggja ára pásu sem skapaðist af
erfiðum meiðslum Thompsons.
Með þessa leikmenn á fullu og þá
Jordan Poole og Andrew Wiggins til
stuðnings er hægt að sjá liðið nú
stefna á úrslitarimmuna í Vestur-
deildinni.
Liðið mun sjálfsagt mæta Memph-
is Grizzlies í næstu umferð, en við-
ureign þess liðs gegn Minnesota
Timberwolves í fyrstu umferðinni
var ekki útkljáð þegar þetta var rit-
að. Warriors ætti að vera í litlum erf-
iðleikum að slá út annað hvort þess-
ara liða og stefnir því beint á
Phoenix.
Miami til alls líklegt
Í Austurdeildinni átti Miami í
litlum erfiðleikum í rimmunni gegn
Atlanta Hawks í fyrstu umferð þrátt
fyrir að tveir bestu leikmenn liðsins
– Jimmy Butler og Kyle Lowry –
hefðu ekki leikið í síðasta leiknum.
Mótherjar Heat í annarri umferð-
inni verða Philadelphia 76ers, en
með Joel Embiid í broddi fylkingar
(33 stig og tíu fráköst) fóru 76ers
hamförum norður í Toronto, 132:97, í
sjötta leik þeirra liða á fimmtudag.
Í viðureign Heat og 76ers er erfitt
að veðja gegn Miami, en varnar-
leikur liðsins undanfarið hefur verið
hreint frábær.
Slær Boston meistarana út?
Í þessum þremur leikseríum ann-
arrar umferðarinnar virðist sem
hægt sé að veðja á annað liðið, en
mest spennandi rimma umferð-
arinnar verður hins vegar á milli
meistaranna Milwaukee Bucks og
Boston Celtics.
Rétt eins og hjá Miami var það
frábær varnarleikur Boston sem
„sópaði“ Brooklyn Nets (þeirri sápu-
óperu) út úr keppninni í fyrstu um-
ferðinni með litlum erfiðleikum.
Varnarleikur Boston mun gera
meisturunum lífið erfitt í viðureign-
inni. Ekki bætti úr fyrir Bucks að
Khris Middleton mun að öllum lík-
indum missa af rimmunni eftir að
hafa tognað á liðbandi í vistra hné í
öðrum leik keppninnar gegn Chicago
Bulls í fyrstu umferðinni.
Þessi meiðsl Middletons gætu
gert gæfumuninn í þessari leikseríu
Bucks og Celtics, en án stigaskor-
unar hans er erfitt að sjá Milwaukee
skora nægilega mikið gegn firna-
sterkri vörn Boston.
Spáin er sex eða sjö leikja rimma
þar sem allt getur þó gerst.
gval@mbl.is
Fullkominn
leikur hjá
Chris Paul
AFP
NBA-met Hinn 36 ára gamli Chris Paul skoraði 33 stig fyrir Phoenix gegn
New Orleans og skoraði úr hverju einasta skoti sínu í leiknum.
- Phoenix stefnir á meistaratitilinn
en fær harða mótspyrnu frá Dallas
HK og ÍR eru komin í forystu í ein-
vígjum sínum um sæti í efstu deild
kvenna í handbolta á næstu leiktíð
eftir sigra í fyrstu leikjum undan-
úrslita umspilsins í gærkvöldi.
HK, sem varð í næstneðsta sæti
Olísdeildarinnar í vetur, vann
öruggan 31:21-útisigur á Gróttu,
sem hafnaði í fimmta sæti 1.
deildarinnar, Grill 66-deildarinnar.
HK U, ungmennalið HK, endaði fyr-
ir ofan Gróttu í deildinni í vetur og
áttu flestir von á öruggum sigri
HK, sem varð raunin.
Landsliðskonan Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir skoraði fimm
mörk fyrir HK. Katrín Anna Ás-
mundsdóttir gerði níu fyrir Gróttu.
Í Austurbergi hafði ÍR, sem hafn-
aði í öðru sæti 1. deildarinnar, bet-
ur gegn FH með minnsta mun,
28:27, en FH-ingar höfnuðu í þriðja
sæti.
ÍR getur helst þakkað Karen
Tinnu Demian sigurinn en hún
skoraði ellefu mörk. Fanney Þóra
Þórsdóttir gerði átta fyrir FH.
Leikir tvö í einvígjunum fara
fram á morgun, sunnudag. Tvo
sigra þarf til að komast í úrslit.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mögnuð Karen Tinna Demian fór á kostum fyrir ÍR-inga í gærkvöldi og
skoraði ellefu mörk í eins marks sigri á FH í Austurberginu í fyrsta leik.
HK og ÍR skrefi nær
sæti í efstu deild
_ Breski auðkýfingurinn Jim Rat-
cliffe, stærsti einstaki landeigandi á
Íslandi, gerði í gær formlegt tilboð í
enska knattspyrnufélagið Chelsea en
það hljóðaði upp á 4,25 milljarða
punda. Boðið var lagt inn rétt áður en
frestur til þess rann út. Samkvæmt
BBC er hins vegar líklegast að Banda-
ríkjamaðurinn Todd Boehly verði tek-
inn fram yfir Ratcliffe og verði næsti
eigandi Chelsea. Boehly er eigandi
bandaríska hafnaboltaliðsins LA
Dodgers. Tveir aðrir sem hafa lagt inn
tilboð, Steve Pagliuca og Martin Bro-
ughton, munu
hins vegar ekki
eiga neina mögu-
leika á að kaupa
félagið.
_ Atvinnukylfing-
urinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir
lék mjög vel á öðr-
um hring Women’s NSW Open-
golfmótinu í Nýja Suður-Wales í Ástr-
alíu í fyrrinótt en hún lék þá á 71
höggi, einu undir pari. Hún vann sig
talsvert upp og var í 35.-41. sæti á
samtals tveimur höggum yfir pari þeg-
ar þriðji hringurinn hófst í nótt. Mótið
er liður í Evrópumótaröðinni.
_ Króatíski knattspyrnumaðurinn
Luka Modric hefur skrifað undir nýj-
an samning við Real Madrid til eins
árs, með möguleika á árs framleng-
ingu. Modric, sem er 36 ára gamall,
hefur leikið með spænska stórveld-
inu frá árinu 2012 en hann var þá
keyptur frá Tottenham. Modric hefur
orðið fjórum sinnum Evrópumeistari
og tvisvar spænskur meistari með
Real Madrid.
_ Mohamed Salah hjá Liverpool og
Sam Kerr hjá Chelsea voru í gær út-
nefnd besti knattspyrnumaður og
besta knattspyrnukona ársins á Eng-
landi af samtökum enskra knatt-
spyrnufréttamanna. Salah, sem er 29
ára gamall Egypti og hlaut þessi
verðlaun áður árið 2018, hefur skor-
að 30 mörk fyrir
Liverpool á tíma-
bilinu, 22 þeirra í
úrvalsdeildinni
þar sem hann er
markahæstur.
Kerr, sem er 28
ára gömul ástr-
ölsk landsliðs-
kona, er marka-
hæsti leikmaður úrvalsdeildar
kvenna og hefur átt frábært tímabil
með Chelsea í vetur.
_ Keflvíkingar hafa samið á ný við
ítalska körfuknattleiksmanninn David
Okeke fyrir næsta tímabil. Okeke kom
til þeirra síðasta sumar en slasaðist á
hásin í desember og spilaði ekki meira
á tímabilinu.
Eitt
ogannað