Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022 VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Norræna húsið hefur staðið í Vatns- mýrinni í ríflega hálfa öld og er í raun einstakt kennileiti. Húsið, sem var teiknað af finnska arkitektinum Al- var Aalto, var vígt snemma hausts árið 1968. Það hefur frá upphafi hýst norrænt samstarf og verið mikil- vægur kjarni menningarlífs í borg- inni. Nú á í fyrsta sinn að ráðast í alls- herjarendurbætur á húsinu. Húsið er orðið 54 ára og þykir merkilega vel farið enda með eindæmum vel byggt. Sabina Westerholm, forstjóri Nor- ræna hússins, og Ástþór Helgason, yfirmaður fasteignar og sýninga- framkvæmda, segja eðlilegt að bygg- ing sem komin sé á þennan aldur þurfi á endurbótum að halda. Í öllum húsum er að finna ýmislegt, stórt og smátt, sem venjan er að yfirfara, eða jafnvel skipta út, á 25-30 ára fresti. „Maður getur ekki ætlast til þess að hægt sé að nota hús byggt 1968 án þess að ráðast í heildarendurbætur. Hús eru aldrei byggð til þess að end- ast fullkomlega, það þarf alltaf að ráðast í einhverjar framkvæmdir og í raun þarf stöðugt að endurbyggja húsið,“ segir Ástþór. Ýmislegt í innviðum hússins er far- ið að láta á sjá; varmakerfi, loftræst- ing og pípulagnir, svo eitthvað sé nefnt. Þá þarf að fara yfir ytra byrði hússins, glugga og þak. Þó geta þau Sabina og Ástþór þess að margt í húsinu sé nútímalegt og það sé ljóst að það hafi verið byggt til þess að standast tímanns tönn. Fleiri vandamál komu í ljós Sabina tók við starfi forstjóra Nor- ræna hússins árið 2019. Stuttu eftir það urðu miklar vatnsskemmdir í sýningarrýminu á neðri hæð hússins og ljóst varð að það væru vandamál með frárennsliskerfi hússins. Þá var neðri hæðin gerð upp. Sýningarsal þessum og barna- bókasafninu, sem einnig er að finna á neðri hæðinni, var bætt við nokkrum árum eftir að húsið var byggt. Stjórnendur hússins hafa meira frelsi til að breyta þeim rýmum þar sem þau eru ekki hluti af upphaflegri hönnun Alvars Aaltos. „Svo fóru önnur vandamál að koma í ljós og þá var ekkert annað í stöðunni en að láta gera skýslu um ástand hússins,“ segir Sabina. Árið eftir fengu þau verkfræðistofuna EFLU til þess að gera slíka skýrslu. Þar kom fram að það er margt sem þarf að gera upp eins fljótt og auðið er. Áætlunin sem EFLA hefur sett upp er til tíu ára en nú á að ráðast í fyrsta fasann og gera það allra nauð- synlegasta á næstu tveimur árum. Ástþór og Sabina fullyrða að engu verði breytt í útliti hússins, að minnsta kosti ekki í þeim rýmum sem opin eru almenningi. Það verða kannski einhverjar breytingar gerð- ar á skrifstofum og öðrum rýmum „baksviðs“. Til dæmis hefur þeim hluta hússins sem geymdi íbúð for- stjóra þess verið breytt í skrifstofu- rými. Þannig eru herbergi sem áður voru opin nú lokuð og það skapar áskoranir í loftræstingu svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt í sögu arkitektúrs Þar sem Norræna húsið er sögu- frægt hús eftir merkan erlendan arkitekt þarf að vanda til verka þeg- ar ganga á í framkvæmdir. Það þykir með mikilvægustu byggingum í sögu arkitektúrs á Íslandi. Þetta er ein af fáum byggingum frá þessum tíma sem voru hannaðar af erlendum, vel þekktum arkitekt frá móderníska tímanum. Ástþór og Sabina hafa verið í nánu samstarfi við Minjastofnun og stofn- un Alvars Aaltos í Finnlandi. Nor- ræna húsið er á skrá Minjastofnunar og hefur verið alfriðað frá árinu 2004. Það þýðir að húsið er friðað bæði að innan og utan. „Við höfum lagst í miklar rann- sóknir og farið í gegnum mikið af heimildum. Markmið okkar er að skilja hvern einasta þátt hússins, hvernig það var byggt og hvaða efni voru notuð. Þetta er mikil nákvæmn- isvinna,“ segir Ástþór. Þannig segir hann að hægt sé að tryggja að húsið breytist ekki útlitslega. Þá sé markmiðið að hvert einasta smáatriði verði eins og það hafði upp- haflega átt að vera. Hann nefnir sem dæmi að gluggarnir séu núna aðeins dekkri en þeir áttu upphaflega að vera svo því verður komið í upphaf- legt horf á ný. Stofnun AlvarsAaltos hefur verið þeim innan handar með slíkar ákvarðanir en ekki síður um innan- hússönnun. Fyrir nokkrum vikum komu fulltrúar frá stofnuninni á stað- inn og fóru yfir alla innanstokksmuni svo nú hafa starfsmenn hússins góða hugmynd um hvaða húsgögn eru upprunaleg, það er allt skráð skil- merkilega niður í minnstu smáatriði. Heildstæð listaverk „Við megum að sjálfsögðu breyta því hvernig við notum rýmin en við þurfum að vita hvernig þau litu út upprunalega því þau voru hönnuð sem heildstæð listaverk,“ segir Sab- ina. Hún minnir á að starfsfólk hússins starfi þar í mesta lagi í átta ár og því sé mikilvægt að safna þessum upp- lýsingum saman fyrir „komandi kyn- slóðir“ starfsmanna. Öllu sem verður fjarlægt verður komið aftur fyrir á sama stað ef hægt er. Á einni skrifstofunni þar sem framkvæmdir eru hafnar, nokkurs konar tilraunarými fyrir fram- kvæmdirnar, var hver einasta gólf- fjöl vandlega merkt þegar hún var fjarlægð og verður síðan komið fyrir aftur þegar vinnunni undir gólfinu er lokið. Ástþór segir að í þessum fram- kvæmdum felist ótal smáatriði af þessu tagi og það krefjist mikillar vinnu hjá mörgum að bæta húsa- kynnin án þess að breyta nokkru í út- litinu. Sabina bendir á að Ástþór verði orðinn mikill Alvar Aalto-sérfræð- ingur þegar yfir lýkur. Hann heim- sótti ýmsar byggingar eftir Aalto í Finnlandi og grandskoðaði allt frá kjallara og upp á þak. Þau hús sem hann skoðaði hafa öll undirgengist svipaðar framkvæmdir og þeim þykir líklegt að Norræna húsið sé síðasta húsið frá þessum tíma til þess að fá slíka yfirhalningu. Það er mikið af lausnum til um hvernig eigi að fara að en veðurfarið á Íslandi gerir að- stæðurnar svolítið öðruvísi. Húsið þarf að verja fyrir vatni og vindum á annan hátt en annars staðar í heim- inum. Húsið mun standa opið Búið er að tryggja fjármagn fyrir fyrsta hluta framkvæmdanna. Húsið er í eigu Norrænu ráðherranefnd- arinnar og sér hún að mestu um fjár- mögnunina en þau hafa einnig hlotið sérstaka styrki frá Minjastofnun fyr- ir rannsóknarvinnuna og sérstæða hönnunarvinnu og frá finnsku rík- isstjórninni fyrir vinnuna með stofn- un Alvars Aaltos. Gert er ráð fyrir að Norræna húsið verði opið að einhverju leyti allan tímann sem framkvæmdirnar eiga sér stað. „Þetta er svo mikilvæg stofnun þannig að það voru allir sam- mála um að það mætti ekki loka henni alveg. En við munum þurfa að loka vissum hlutum hússins. Næsta árið verða öll þau rými sem eru opin almenningi opin en einhverjum skrif- stofum verður lokað síðar á árinu,“ segir Sabina. Vilja upplýsa almenning Starfsfólki hússins þykir mikil- vægt að almenningur fái að fylgjast með framkvæmdunum og sé vel upp- lýstur um hvaða starfsemi fari enn fram í húsinu þrátt fyrir þær. Hún býst þó við að það verði áskorun að gera almenningi grein fyrir því að húsið sé í raun og veru opið þegar það muni líta út eins og byggingar- svæði. Þá muni auðvitað skapast ein- hver hávaði og röskun á starfsem- inni. Meðan á framkvæmdunum stend- ur munu þau að mestu einblína á eig- in viðburði og það samstarf sem hef- ur verið komið á fót við aðrar stofn- anir en minna á utanaðkomandi viðburði. Þau munu ekki geta leigt salarkynnin út eins og þau eru vön að gera þar sem þau vita ekki hve mikil truflun muni skapast af framkvæmd- unum. Ástþór og Sabina vilja einnig leggja mikla áherslu á að miðla því sem þau hafa uppgötvað við þessa miklu rannsóknarvinnu til almenn- ings. „Við höfum nú þegar rekist á mikið af áhugaverðum staðreyndum, bæði um bygginguna sjálfa og um starfsemina í húsinu í gegnum tíð- ina,“ segir Sabina. Þau segjast vilja varpa ljósi á þetta áhugaverða ferli og hafa það gagnsætt og við þetta skapist gott tækifæri til þess að benda almenningi á það hvers virði þetta hús sé. Vilja sýna gott fordæmi „Þegar ég kom hingað árið 2019 varð mér strax ljóst að þetta er mjög mikilvæg bygging, táknræn bygging, þegar kemur að norrænu samstarfi á Íslandi. Það hafa svo margir komið til mín og sagt mér sögur af sambandi sínu við húsið og þeim minningum sem þeir hafa af því að koma hingað í gegnum tíðina. Fólk hefur jákvæðar og sterkar tilfinningar tengdar hús- inu,“ segir Sabina. Í tengslum við þessar framkvæmdir munu þau safna saman myndum frá almenningi og sögum um húsið „Ég vildi líka opna húsið fyrir öðr- um minnihlutahópum hér á landi, nýjum Íslendingum með annan bak- grunn en norrænan svo þau fengju tækifæri til þess að skapa svipaðar minningar. Baltneska samfélagið á Íslandi hefur til dæmis verið einn af þeim hópum sem við höfum helst vilj- að þjóna.“ Markmiðið sé að húsið lyfti sam- félaginu upp fyrir það staðbundna og því hafi þau virkni ólíkra hópa og fjöl- breytileika að leiðarljósi. „Við viljum sýna gott fordæmi,“ segir hún. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu undanfarin ár en hús- ið stóð lengi vel eitt í mýrinni. Um- hverfið hefur þannig breyst mikið með tilheyrandi breytingum á starf- semi hússins. Sabina segir það gleði- efni að það sé meira líf í kringum hús- ið sem gefi góða möguleika á sam- starfi. Núna er hver krókur og kimi hússins notaður til hins ýtrasta. Arnþór segir að það hafi verið hugsun Alvars Aaltos að húsið væri lifandi og ætti að þróast með breytt- um tímum. Hann bendir þó á að allir séu mjög meðvitaðir um stöðu húss- ins á svæðinu, Háskóli Íslands og Minjastofnun hafi lagt sig fram um að vernda sérstöðu þess. Þrátt fyrir að byggingunum fjölgi þá séu þær miðaðar við að Norræna húsið sé enn það kennileiti sem því var ætlað að vera. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Norræna húsið Sabina og Ástþór segja mikla nákvæmnisvinnu felast í að gera upp þetta sögufræga hús. Vandað til verka í sögufrægu húsi - Ráðist verður í allsherjarendurbætur á Norræna húsinu - Sabina Westerholm, forstjóri hússins, og Ástþór Helgason, yfirmaður fasteignar, segja mikilvægt að útlit hússins verði varðveitt að fullu Samstarfsmenn Elissa Aalto, Alvar Aalto og Ilona Lehtinen funda á arkitektastofu Aaltos árið 1970. Á HönnunarMars í ár býður Norræna húsið, í samstarfi við Arkitekta- félag Íslands, til málstofu í tveimur hlutum sem ber titilinn Kvenkyns brautryðjendur og sögulegar byggingar. Málstofan fer fram á fimmtu- dag, 5. maí, og hefst kl. 10. Hópur sérfræðinga mun kynna sögu og verk norrænna kvenkyns arkitekta, sem teljast brautryðjendur á sínu sviði. Einnig verða til umræðu endurbætur á sögulegum húsum en báðir hlut- ar málstofunnar tengjast sögu Norræna hússins. „Eitt af því sem við höfum áttað okkur á í þessu ferli er að þrátt fyrir að Alvar Aalto hafi verið arkitekt hússins þá voru margar áhugarverðar konur sem störfuðu með honum. Þær hönnuðu og sáu um byggingu hússins og fylgdu því eftir árin á eftir,“ segir Sabina Westerholm. Ilona Lehtinen var leiðandi í teikningu hússins og fylgdist með öllu ferlinu. Eiginkona Aaltos, Elissa Aalto, sá einnig um höfuðteikningarnar að húsinu ásamt Lehtinen. Hún starfaði hjá fyrirtækinu eftir að Alvar Aalto lést, þar til hún lést 1994. Hennar starf fólst meðal annars í að vinna að endurbótum á þeim húsum sem höfðu verið hönnuð í tíð eigin- manns hennar. Fundist hafa bréfaskriftir milli hennar og umsjón- armanna hússins um smávægilegar breytingar stuttu eftir byggingu hússins. Þriðji kvenarkitektinn sem starfaði við hönnun og byggingu hússins var Pirkko Söderman. Þessar konur höfðu mikil völd á bak við tjöldin. Konurnar þrjár að baki Aalto KVENKYNS BRAUTRYÐJENDUR OG SÖGULEGAR BYGGINGAR Kennileiti Norræna húsið stóð lengi vel eitt í Vatnsmýr- inni. Mynd þessi er frá því það var í byggingu 1967.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.