Morgunblaðið - 30.04.2022, Qupperneq 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2022
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin,
Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes
Í
nýjustu mynd spænska kvik-
myndaleikstjórans Pedros
Almodóvars, Madres paral-
elas (e. Parallel Mothers),
segir af tveimur konum sem kynnast
á fæðingardeild þar sem þær fæða
börn sín á sama degi. Þær tengjast
strax tilfinningaböndum, verandi
samferða í þeim dramatísku að-
stæðum sem hríðatími fyrir fæðingu
er, sem og reynslan af fyrstu barns-
fæðingu í lífi konu og fyrstu dögum
eftir fæðingu. Báðar standa þær
frammi fyrir því að þurfa að sjá einar
um að ala upp nýfæddar dætur sínar
(sem er ekki jafn auðvelt á Spáni og á
Íslandi). Þetta eru þær Janis, tísku-
ljósmyndari um fertugt sem leikin er
af Penélope Cruz, og hún Ana, sem
er á unglingsaldri og leikin af Milenu
Smit. Aðstæður þessara kvenna eru
ólíkar, ekki aðeins vegna aldurs,
heldur er bakgrunnur þeirra einnig
ólíkur. Til að skemma ekki fyrir þeim
sem eiga eftir að sjá myndina skal
lítið sagt um framvindu mála í einka-
lífi þessara tveggja kvenna og hvern-
ig líf þeirra tvinnast saman, en margt
er þar með ólíkindum, bæði fallegt,
flókið og sársaukafullt. Þótt myndin
hverfist um þessar tvær konur fáum
við innsýn í líf annarra persóna, til
dæmis móður Önu, leikkonu úr efri
stétt sem öllu fórnar fyrir framann,
meðal annars tíma og samvistum við
dóttur sína.
Vissulega er Almodóvar hér að
taka fyrir móðurhlutverkið og að-
stæður kvenna því tengdar, en hann
er líka að fjalla um þörf allra mann-
eskja fyrir ást, hlýju og nánd, hug-
rekki einhleypra mæðra, kynslóða-
bilið og hvernig stundum er ekki
hægt að skilja á milli fortíðar, fram-
tíðar og nútíðar. Almodóvar drepur
hér víða niður fæti, myndin talar líka
inn í MeToo-byltinguna og þótt hún
hafi verið frumsýnd í fyrra, þá talar
hún mjög sterkt beint inn í samtím-
ann, stríðið í Úkraínu. Barnsfaðir
Janis, fornleifafræðingurinn Arturo,
starfar við að leita fólks sem myrt
var í borgarastríðinu á Spáni á fjórða
áratug tuttugustu aldar og hvarf
ofan í ómerktar fjöldagrafir. Hann
tekur að sér að beiðni Janisar að
grafa upp meinta fjöldagröf í
heimabæ hennar til að komast að því
hvort þar liggi líkamsleifar langafa
hennar og fleira fólks sem myrt var í
stríðinu, og til að veita þeim verðuga
greftrun. Myndin er því líka að
stórum hluta einhvers konar uppgjör
eða áminning um leyndarmál þess-
arar skelfilegu fortíðar í sögu Spán-
ar, sem því miður endurtekur sig nú í
Úkraínu: Fólki er slátrað og líkum
hrúgað í fjöldagrafir. Lokaatriði
myndarinnar er gríðarlega sterkt,
sérstaklega í ljósi þess hvað á sér
stað í Úkraínu núna. Almodóvar
tekst í þessari mynd að láta þetta allt
kallast á, líf þessara kvenna og ný-
fæddra barna þeirra, leyndarmálin
og tilfinningarnar, við sögu þjóðar og
fortíð fjölskyldna. Sem á sama tíma
er nálæg og hluti af nútíð.
Í þessari nýju mynd er áhersla
Almadóvars á hið sjónræna stór
þáttur, líkt og í öllum hans kvik-
myndum. Sterkir litir eru ríkjandi,
rauði liturinn og sá mintugræni,
hvort sem eru klæði, húsgögn eða
annað. Áhrifamikil skot þar sem
hann fer alveg upp að andlitum aðal-
leikkvennanna eru áberandi og
nándin í matseldinni er einnig áhrifa-
mikil.
Þessi mynd er mikil veisla fyrir
augu og einstakur stíll og handbragð
Almodóvars alltumlykjandi. Leik-
urinn er í hæsta flokki, enda leikkon-
urnar sumar mjög vanar að vinna
með leikstjóranum, Penélope Cruz
er í mörgum mynda hans og sama á
við um Rossy de Palma, sem hér er í
aukahlutverki sem umboðsmaður
Janis. Hin unga Milena Smit stendur
sig með mikilli prýði, hún nær að
skila miklu í lágstemmdum leik í
mjög dramatískum senum og það er
auðvelt að finna virkilega til með
þessari ungu umkomulausu stúlku
hverrar aðstæður eru átakanlegar.
Ólíkt mörgum fyrri mynda Almo-
dóvars, sérstaklega þeim eldri, þá er
hraði og gáskafullur húmor ekki hér
á ferð, engin læti heldur róleg fram-
vinda og mikið drama með djúpum
ljóðrænum tóni. Samt tekst honum á
sama tíma á einhvern hátt að minna
á sápur, með stílbragði sem finnst
með augum (áhorfi). Sannarlega er
mikil nautn að horfa á kvikmynd þar
sem hugsað er fyrir hverju einasta
smáatriði hvers ramma.
Pedro Almodóvar hefur skapað
sinn eigin sérstaka heim með kvik-
myndum sínum. Í þessari nýju mynd
sýnir meistarinn að hann er sannar-
lega ekki af baki dottinn þótt rúm-
lega sjötugur sé.
Fortíð, framtíð og nútíð eru eitt
Janis og Ana Hér leikur allt í lyndi, þegar Ana er nýflutt inn á hið fagra og litríka heimili Janis. Þar er allt innanstokks úthugsað af leikstjóranum, líka
stóra ljósmyndin fyrir miðju af hörundsdökku fáklæddu konunni, Nubile Young Beauty of Diamaré, sem hinn frægi tískuljósmyndari Irving Penn tók.
Bíó Paradís
Madres paralelas bbbbn
Leikstjórn og handrit: Pedro Almodóvar.
Aðalleikarar: Penélope Cruz, Milena
Smit, Israel Elejalde, Aitana Sánchez-
Gijón, Rossy de Palma. Spánn, 2021.
120 mín.
KRISTÍN HEIÐA
KRISTINSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Sænska myndlistarkonan Ann Lars-
son-Dahlin opnar sýningu í dag,
laugardag, kl. 14 í Gallerí Grásteini
á Skólavörðustíg 4. Í tilkynningu
segir að Larsson-Dahlin sé leiðandi
afl í fagi vatnslitamálara, verk henn-
ar séu stór og tjái ástríðu hennar
fyrir náttúrunni. Hún hafi hlotið við-
urkenningar víða um heim fyrir
verk sín.
Larsson-Dahlin sýnir verk sem
hún hefur málað af íslenskri náttúru
að vetrarlagi og mun sýning hennar
í Grásteini standa yfir út maí.
Landslag Eitt af verkum Ann Larsson-Dahlin á sýningunni í Grásteini.
Ann Larsson-Dahlin sýnir í Grásteini
Kór Fella- og Hólakirkju heldur
tónleika í dag, laugardag, kl. 14
ásamt Vörðukórnum sem kemur úr
uppsveitum Árnessýslu. Segir í til-
kynningu að boðið verði upp á fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá og
að í lokin verði gestum boðið að
taka lagið með kórunum.Einsöngv-
ari á tónleikunum verður Kristín R.
Sigurðardóttir. Stjórnandi Vörðu-
kórsins er Eyrún Jónasdóttir og
stjórnandi kórs Fella- og Hóla-
kirkju Arnhildur Valgarðsdóttir
sem annast líka meðleik með báð-
um kórum. Á saxófón í fjöldasöngs-
lögum leikur Reynir Þormar Þór-
isson. Aðgangseyrir er kr. 2.500.
Stuðningur Nokkrir söngvara kórs Fella-
og Hólakirkju í litum fána Úkraínu.
Vortónleikar tveggja kóra