Morgunblaðið - 02.05.2022, Qupperneq 8
Ljósmynd/ Ómar Óskarsson
Mótmæli Fjöldi fólks á öllum aldri var mættur til að láta skoðun sína í ljós.
Fjöldi þekktra Íslendinga lagði leið
sína á fjölmenn mótmæli við Austur-
völl í Reykjavík á laugardag.
Reykjavíkurdætur hituðu upp fyrir
mótmælin, Rebecca Scott Lord fór
með gamanmál og Brynja Hjálms-
dóttir flutti ljóð.
Mótmælt var í fjórða skipti vegna
sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka en
mótmælin báru yfirskriftina „Burt
með Bjarna og spillinguna“. Við
Ráðhústorgið á Akureyri var einnig
staðið að mótmælum.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
leikkona ávarpaði mótmælendur og
Hundur í óskilum lokaði dagskránni
með nokkrum lögum.
Stjörnum prýdd mótmæli
Fleiri þekkt nöfn voru meðal mót-
mælenda. Þar má nefna tónlistar-
konuna Sölku Sól Eyfeld, leikarann
Þröst Leó Gunnarson og Alexöndru
Briem, forseta borgarstjórnar. Mót-
mælendur fengu fallegt veður og
seldir voru stuttermabolir í tjaldi,
skreyttir með kennimerki Íslands-
banka.
Mótmæltu banka-
sölunni í fjórða sinn
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Glærir ruslapoka
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
1.995
Strákústar
mikið úrval
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
Greinaklippur
frá 585
Burstar framan
á borvél 3 stk.
Mikið úrval af
garðstömpum
Fötur í
miklu úrvali
frá1.495
Laufhrífur
Sundabraut er samgöngubót sem
núverandi meirihluti í Reykja-
vík segist styðja, en verkin benda til
annars. Hann komst meira að segja
upp með að gera „samgöngu-
sáttmála“ við ríki og önnur sveit-
arfélög þar
sem þessi
framkvæmd
var óútfærð
og í auka-
hlutverki og
engin vissa
er fyrir að af
henni verði,
nema þá
helst með því að ríkið fallist á að
fara mun dýrari leiði en ástæða er
til vegna skipulagsákvarðana
meirihlutans í Reykjavík. Sigurður
Már Jónsson blaðamaður víkur að
þessu í pistli á mbl.is og bendir þar
á að borgin hafnaði ódýrasta kost-
inum við lagningu brautarinnar
með því að byggja í Vogabyggð
þannig að ekki er fært fyrir Sunda-
braut þar.
- - -
Hann segir að enn séu borgar-
yfirvöld að skipuleggja þvert
á þarfir Sundabrautar, „eins og sést
þegar vegastæði Sundabrautar er
skoðað uppi í Gufunesi. Látum vera
þó að smáhýsi fyrir útigangsfólk sé
reist beint ofan í vegastæðið (þar
býr hvort sem er enginn). Verra er
að nú eru að rísa varanleg fjölbýlis-
hús í Gufunesi sem eru óþægilega
nálægt vegastæðinu. Kunnugir
menn segja að ef vegastæði Sunda-
brautar verði fært þar til austurs
kalli það á mikla aukavinnu og
aukakostnað við að vinna veginn of-
an í klappir og hæðir til að ná veg-
inum eins beinum og öruggum og
hægt er. Hver á að bera aukakostn-
að af því?“
- - -
Rétt fyrir kosningar tala flestir
sem í framboði eru um að þeir
vilji samgöngubætur, jafnvel meiri-
hlutaflokkarnir í Reykjavík sem
bera ábyrgð á umferðarhnútunum
þar. Kjósendur ættu frekar að
horfa til þess sem verkin segja um
vilja framboða.
Verkin tala
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Ég var að verja Íslandsmeistaratit-
ilinn, svo þetta var aukin pressa að
standa sig aftur,“ segir stór-
meistarinn Hjörvar Steinn Grét-
arsson (2542) sem er nýkrýndur Ís-
landsmeistari í annað sinn.
Vann í næstsíðustu umferð
Ljóst var að Hjörvar Steinn ynni
mótið strax í næstsíðustu umferð
þegar hann vann sannfærandi sigur
á Vigni Vatnari Stefánssyni (2501) á
laugardag. Í lokaumferð mótsins
tefldi Hjörvar Steinn á móti Hilmi
Frey Heimissyni (2321) og sigraði
og endar því mótið með 7 ½ vinning
af 9 mögulegum.
Þáttaskil í þriðju umferð
„Ég byrjaði hægt á mótinu en eft-
ir það féllu hlutirnir bara með mér,“
segir Hjörvar Steinn. Þriðja umferð
mótsins var æsispennandi en þar
mættust Hjörvar Steinn og Hannes
Hlífar Stefánsson (2534) og segir
Hjörvar Steinn að sigur í þeirri skák
hafi valdið þáttaskilum í mótinu.
Hannes Hlífar deilir 2.-3. sætinu
með Héðni Steingrímssyni.
Hjörvar Steinn segir að það sé
alltaf svolítið sérstakt að tefla á
heimamótum því allir keppendur séu
góðir vinir og þekki stíl hver annars
út og inn. „En ég er bara nokkuð
ánægður með sjálfan mig eftir þetta
mót,“ segir hann að lokum.
Hjörvar Steinn Íslandsmeistari 2022
- Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson deila 2.-3. sætinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslandsmeistari Hjörvar Steinn
Grétarsson varði titil sinn.