Morgunblaðið - 02.05.2022, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
U S A TO D AY
92% 89%
92%
72%
Total Film
Radio Times
Colin Firth – Matthew Macfadyen – Kelly Macdonald
THE LEGACY CONTINUES
E
kki vantar morðin og annað
ofbeldi í spennusöguna Við
skulum ekki vaka eftir
Heine Bakkeid en glæp-
irnir eru ekki bara svartir og hvítir
heldur liggur ýmislegt annað í litróf-
inu að baki. Fyrir bragðið er þetta
ekki aðeins sakamálasaga heldur
greinir hún frá
ákveðnu uppgjöri og
varpar ljósi á hvað
sjálfhverfur ein-
staklingur getur
skemmt mikið fyrir
sér og öðrum.
Ákveðinn hópur
mótmælenda finnur
sér gjarnan eitthvað
til að mótmæla. Hernaðarandstæð-
ingar mótmæltu heræfingum á dög-
unum og leituðu að kræklingi í Hval-
firði. Það gæti orðið yrkisefni
einhvers höfundar síðar meir. Nátt-
úruverndarsinnar mótmæltu Kára-
hnjúkavirkjun og stóriðju með heldur
meiri látum á sínum tíma og Heine
Bakkeid setur mótmælin í búning og
tengir við líðandi stundu eins helsta
forsprakkans. Umhverfissinninn Úlf-
ur verður að nokkurs konar trúar-
leiðtoga í umfjölluninni, manni sem
aðrir fylgja í blindni, þegar sagan er
rifjuð upp, en frásögnin leiðir í ljós að
þar fer úlfur í sauðargæru. Börn hans
flúðu frá honum með móður sinni til
Noregs á sínum tíma, saga þeirra
kemur æ betur í ljós og krabbameins-
sjúki faðirinn sér ekki aðeins fram á
endalok sín vegna meinsins heldur
þarf að horfast í augu við sannleikann
í heimsókn systkinanna til landsins.
Liz og Thorkild Aske eru ekki að-
eins á Íslandi til þess að hitta og
kveðja föður sinn heldur vilja þau fá
svör við ýmsu, sem reynist þrautin
þyngri. Sumu er ekki hægt að svara,
öðru má ekki svara og svo er ýmislegt
sem þolir ekki dagsljósið. Lygin vefur
utan á sig og þegar svo er komið
verður allt erfiðara, jafnvel hættu-
legra.
Sagan er skemmtilega uppbyggð.
Margir lausir endar dreifast um land-
ið en þótt Thorkild sé ekki endilega
barnanna bestur gefst hann ekki upp
í leitinni að sannleikanum, sem verð-
ur stöðugt sársaukafyllri eftir því
sem á líður frásögnina.
Ljósmynd/Harriet M. Olsen
Norðmaður „Ekki vantar morðin og annað ofbeldi“ í spennusögu Bakkeid.
Spennusaga
Við skulum ekki vaka bbbbn
Eftir Heine Bakkeid.
Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði.
Ugla 2022. Kilja. 447 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Hulinn heimur lyga
og skemmdarverka
»Kvartett djassbassa-
leikarans Þorgríms
Jónssonar kom fram á
síðustu tónleikum Jazz-
klúbbsins Múlans í Flóa
í Hörpu. Gestir á tón-
leikum klúbbsins, sem
kenndur er við Jón
Múla Árnason, voru á
ýmsum aldri; fullorðnir
djassgeggjarar jafnt
sem nemendur á grunn-
skólaaldri.
Kvartett Þorgríms bassaleikara djassaði í Múlanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvartettinn Tómas Jónsson, Þorgrímur Jónsson, Magnús Trygvason Elíassen og Rögnvaldur Borgþórsson.
Skot Ljósmyndari Morgunblaðsins var ekki einn um að
ljósmynda tónlistarmennina fjóra á sviðinu í Hörpu.
Fjölskyldutónleikar Þótt gestir í Múlanum séu oft sjóaðir í djassfræðum og
sögu, þá eru yngri gestir einnig velkomnir og kunna oft líka vel að meta.
Fjölhæfur Tómas Jónsson hefur verið kallaður „alls-
konar“-leikari en ýmis hljómborð eru sérsvið hans.