Morgunblaðið - 10.05.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 10.05.2022, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. M A Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 108. tölublað . 110. árgangur . TINDASTÓLL JAFNAÐI EINVÍGIÐ Á HEIMAVELLI SPUNI SEM VINDUR UPP Á SIG SPENNTAR FYRIR STÓRU STUNDINA Í KVÖLD BRÁÐNANDI DEMANTUR 28 SYSTUR Í EUROVISION 2STÓRSIGUR Í SÍKINU 27 Líf Magneudóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykja- vík, segir að mun dýrara sé að byggja ný hverfi en að þétta byggð sem fyrir er. Vinstri-græn leggja áherslu á að borgin stígi sjálf inn á húsnæðismarkað og byggi fimm hundruð til þúsund óhagnaðardrifnar íbúðir sem standi öllum Reykvíkingum til boða. „Þetta eru ekki Félagsbústaðir eða íbúðir í félagslega kerf- inu,“ segir Líf og úrskýrir að verkefnið yrði frábrugðið félagslega kerfinu og ætlað að hafa áhrif á leiguverð. „Reykjavíkurborg hefur öll tæki til að byggja hagkvæmt húsnæði sjálf með góðum lánum, gefa út skuldabréf og við getum boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu,“ segir Líf Magneudóttir. »11 Íbúðir borg- arinnar standi öllum til boða Líf Magneudóttir Hátt í 30 manns, flestir frá Úkraínu, tóku þátt í mótmælum fyrir utan rússneska sendiráðið við Túngötu í gær, á sigur- deginum svonefnda. Tilgangur mótmælanna var að vekja at- hygli á kynferðisglæpum og ofbeldi sem rússneskir hermenn í Úkraínu hafa beitt almenna borgara í stríðinu þar í landi. Rússar voru einnig við mótmælin og börn með foreldrum sín- um. Fyrr um morguninn var rússneska rétttrúnaðarkirkjan á Íslandi með minningarathöfn í Fossvogskirkjugarði þar sem fórnarlamba úr seinni heimsstyrjöldinni var minnst. »6 & 13 Morgunblaðið/Eggert Mótmæltu stríðsglæpum í Úkraínu við sendiráð Rússa Verði einkaaðilum á Íslandi leyft að selja áfengi yfir netið er sú sala komin í beina sam- keppni við einkasölu ÁTVR. Slíkt myndi leiða til þess að einkaréttur ÁTVR liði undir lok og slíkt fyrirkomulag brýtur gegn bæði íslenskum samkeppnislögum og Evrópurétti. Þetta segir Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, í formála nýút- kominnar árs- og samfélagsskýrslu fyrirtækis- ins fyrir árið 2021. „Það er einfaldlega ekki hægt að vera með frjálsa samkeppni og einka- sölu á sömu vöru á sama tíma,“ segir hann. „Í þessum efnum verður ekki bæði sleppt og haldið.“ Ívar segir enn fremur að vefverslanir sem komu fram á sjónarsviðið í fyrra afhendi áfengi hverjum sem er þrátt fyrir ákvæði laga um að ekki megi afhenda og selja áfengi þeim sem eru yngri en 20 ára. Heildarvelta ÁTVR fór yfir 50 milljarða króna í fyrra annað árið í röð. Áfengi var selt fyrir tæpa 40 milljarða og tóbak fyrir 11 milljarða en áfengis- magnið minnkaði um 1,6% milli ára og tekjur af sölu tóbaks minnkuðu um 7,5%. Sala á léttvíni dróst saman um 2,8% og á bjór um 2,2% en hins vegar jókst sala á sterku áfengi um 12% á seinasta ári. Viðskiptavinum fækkaði um 0,6% en hagn- aður ÁTVR í fyrra var 1.631 milljón króna. Arðgreiðslur til ríkisins og virðisaukaskattur og áfengis- og tóbaksgjöld skiluðu samtals tæpum 30 milljörðum yfir árið. »4 „Verður ekki bæði sleppt og haldið“ - ÁTVR seldi áfengi og tóbak fyrir 51 milljarð Ívar J. Arndal Þrátt fyrir að tekjur og út- gjöld sveitarfélaga hafi farið vaxandi hefur af- koma þeirra verið neikvæð um árabil og ljóst að rekst- ur þeirra er ekki sjálfbær. Þetta kemur fram í sam- antekt Viðskiptaráðs þar sem fjallað er um sveitar- stjórnarstigið og fjármál sveitarfélaga. „Sveitarstjórnarstigið hefur verið rekið með viðvarandi halla síðast- liðin 40 ár, að undanskildum fimm árum,“ segir Svanhildur Hólm Valsdóttir, fram- kvæmdastjóri Viðskiptaráðs. „Of mörg sveitarfélög eru of lítil og veik- burða til að bera þá þjónustu sem þeim er ætlað að veita íbúum sínum og lifa í raun upp á náð og miskunn annarra sveitarfélaga og ríkisins með framlögum úr Jöfnunarsjóði,“ segir Svanhildur. »12 Sveitarfélögin rekin með halla í áratugi Svanhildur Hólm Valsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.