Morgunblaðið - 10.05.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.
U S A TO D AY
89%
92%
81%
Total Film
Radio Times
Empire Rolling StoneLA Times
Colin Firth – Matthew Macfadyen – Kelly Macdonald
THE LEGACY CONTINUES
72%
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
Á
fram rúllar Marvel-færi-
bandið og nú er það önnur
kvikmyndin um Doctor
Strange, skurðlækninn
Stephen Strange sem varð að öflug-
um seiðkarli í fyrstu myndinni frá
árinu 2016 sem var bráðskemmtileg.
Því miður er framhaldsmyndin,
Doctor Strange in the Multiverse of
Madness, eða Strange læknir í fjöl-
heimi brjálseminnar, ekki eins
skemmtileg og á köflum svo undar-
leg að maður veit varla hvað er að
gerast.
Strange (Skrítinn myndi hann
heita á íslensku) fer að þessu sinni á
bólakaf í hinn svokallaða fjölheim
Marvel, multiverse eins og hann
heitir á ensku, sem er svo sem engin
Marvel-uppfinning heldur fornar
vangaveltur mannsins um hvað sé
handan hins sýnilega heims og hvort
mögulega séu heimarnir margir,
jafnvel óteljandi og því mögulegt eða
næsta öruggt að einhver þeirra sé
alveg eins og sá sem við þekkjum.
Myndin hefst á því að Strange er á
flótta í einhvers konar furðuheimi
með táningsstúlku, engu líkara en
þau svífi um í geimnum. Þau reyna
að ná til bókar einnar en tekst ekki
og vaknar Strange þá upp við vond-
an draum. Bókstaflega. Hann heldur
að þetta hafi bara verið martröð en
annað kemur fljótlega í ljós þegar
hann kemur sömu stúlku, Americu
Chavez að nafni, til bjargar á götum
New York þar sem hún er ofsótt af
risavöxnu og eineygðu kolkrabba-
skrímsli. Einhvers konar galdrar
eru þar á ferð og í ljós kemur að
Wanda (ein af ofurkonum Marvel
sem er allt að því ósigrandi í fjöl-
kynngi sinni) er ábyrg. Wanda verð-
ur fyrir vikið illmenni myndarinnar
og af ákveðnum ástæðum þarf hún á
kröftum Americu að halda. Gengur
myndin svo meira og minna öll út á
að koma í veg fyrir að Wanda nái
Americu og er víða komið við á því
ferðalagi, í ólíkum heimum þar sem
finna má aðrar útgáfur af Strange
og fleiri persónum Marvel. Virðist
framleiðendum hafa verið mikið í
mun að tengja þetta nýlega þema
um fjölheiminn við fyrri myndir og
sjónvarpsþætti Marvel, sem flestar
ofurhetjur og fyrir þá sem ekki
þekkja til þeirra fræða gæti myndin
reynst heldur illskiljanleg.
Raimi með vont handrit
Hinn annars ágæti leikstjóri Sam
Raimi var fenginn til að leikstýra að
þessu sinni og gerir svo sem ágæt-
lega miðað við það sem hann hefur
úr að moða, heldur óspennandi og
húmorslausri sögu þar sem tölvu-
teikningar skipa stærra hlutverk en
raunverulegt fólk og umhverfi.
Raimi hefur náð góðum árangri með
fyrri ofurhetjumyndum sínum um
Köngulóarmanninn, einkum þó
fyrstu tveimur og er einnig þekktur
fyrir ágætar hrollvekjur sínar, m.a.
The Evil Dead og Drag Me to Hell.
Ákveðinn hluti Doctor Strange in
the Multiverse of Madness vísar
skemmtilega til þeirrar fortíðar,
hrollvekjumyndanna, en sem fyrr
segir virðist handritið hafa reynst
leikstjóranum fjötur um fót.
Stærsti galli myndarinnar er flétt-
an, söguþráðurinn. Að gera Wöndu
að þeirri vondu er, til að byrja með,
heldur óspennandi og einnig sú
skýring að illska hennar sé drifin
áfram af eldheitri móðurást. Ekki
bætir úr skák að lausnin undir lokin
er fulleinföld og þá búið að stefna
öllum fjölheiminum í hættu, hvorki
meira né minna, með manni og mús.
Betur hefði farið á safaríkara plotti
og nýju illmenni. Ágæt tilbreyting
þó að illmennið er kona þar sem mik-
ill skortur hefur verið á kvenkyns
þrjótum í ofurhetjusögum.
Ætla mætti að þessi Marvel-fjöl-
heimur byði upp á endalausa mögu-
leika og hugmyndir en þær eru þó
heldur þunnar og löng tölvuteiknuð
bardagaatriði, þar sem fólk er að
skjóta rauðum eldkúlum út úr lóf-
unum á sér eða búa til stóra eld-
hringi, reyna á þolinmæðina. Í svona
kjánalegum sagnaheimi er líka
algjör nauðsyn að slá á létta strengi
og því miður er lítið um gamanmál í
þessari mynd. Hugurinn fór að reika
hjá ofanrituðum í mesta tölvuteikni-
hasarnum og þýðingin á Stephen
Strange, Stefáni skrítna, þróaðist
yfir í hugarleikfimi um hann Stebba
sem stóð á ströndu og var að troða
strý. Strý var ekki troðið nema
Stebbi træði strý, eintreður Stebbi
strý, tvítreður Stebbi strý … á með-
an tilkynnti Cumberbatch að hann
þyrfti að finna aðra útgáfu af sjálfum
sér í öðrum heimi sem þyrfti að finna
aðra útgáfu af sjálfum sér í öðrum
heimi sem þyrfti að …
Ekki er við leikarana að sakast að
gagnrýnandi barðist stundum við að
halda athygli, þeir standa sig ágæt-
lega, sérstaklega Olsen, og eiga hrós
skilið fyrir að halda andliti í mesta
kjánaskapnum. Myndinni til tekna
er hún litrík og gleður oft augað, til
dæmis uppvakningsútgáfan af
Strange með viðhangandi djöflum
sem sjá má í stiklunni. En þegar öllu
er á botninn hvolft er þetta nýjasta
útspil Marvel vonbrigði þótt hörð-
ustu aðdáendur fái eflaust sitthvað
fyrir sinn snúð.
Stebbi stóð á ströndu …
Kúla Benedict Cumberbatch í hlutverki Doctor Strange að búa til eina af mörgum logandi kúlum myndarinnar.
Laugarásbíó, Smárabíó,
Sambíóin og Háskólabíó
Doctor Strange in the Multiverse of
Madness bbmnn
Leikstjórn: Sam Raimi. Handrit: Michael
Waldron og Jade Halley Bartlett. Aðal-
leikarar: Benedict Cumberbatch, Eliza-
beth Olsen, Rachel McAdams, Benedict
Wong og Xochitl Gomez. Bandaríkin,
2022. 126 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Heimildarkvikmyndin This much I
know to be true, sem fjallar um
samstarf áströlsku tónlistarmann-
anna Nicks Caves og Warrens Ellis
og flutning þeirra á lögum af plöt-
unum Ghosteen og Carnage, verður
frumsýnd víða um lönd á morgun,
11. maí, og þar á meðal í Bíó Para-
dís. Aðeins verða nokkrar sýningar
á myndinni.
Kvikmyndin er verk leikstjórans
Andrews Dominiks sem áður gerði
með Nick Cave kvikmyndina One
more time with feeling (2016) sem
fjallar um líf hans og verk í skugga
fráfalls ungs sonar hans.
This much I know to be true
fjallar um listrænt sköpunarsam-
starf Caves og Ellis og var kvik-
mynduð vorið 2021 þegar þeir
undirbjugu tónleikaferð og unnu að
því að móta flutning laganna af
plötunum tveimur með strengja-
sveit og bakraddasöngvurum. Í
kvikmyndinni kemur líka við sögu
gamall vinur þeirra, söngkonan
Marianne Faithfull.
Kvikmynd um Cave
og Ellis frumsynd
Samstarfsmenn Nick Cave og Warren Ellis
við slaghörpuna í senu í kvikmyndinni.
Ljósmynd/Charlie Gray
Elmar Gilberts-
son tenór kemur
í dag fram á síð-
ustu hádegistón-
leikum vetrarins
í Hafnarborg
ásamt Antoníu
Hevesi píanóleik-
ara. Þá munu
þau flytja lög eft-
ir Donizetti,
Verdi, Lehár og
Ernesto de Curtis.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
standa yfir í um hálfa klukkustund.
Tónleikarnir eru öllum opnir og er
aðgangur ókeypis.
Elmar
Gilbertsson
Elmar syngur á
hádegistónleikum