Morgunblaðið - 10.05.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.05.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y – Meirihlutaflokkunum fjórum í borgarstjórn er mikið í mun að láta líta út fyrir að nóg sé af lóð- um til bygginga og að eitthvað allt annað en kreddur þeirra í skipulags- málum hafi valdið því að allt of lítið hefur verið byggt og að húsnæðis- verð, þar með talið leiguverð, hefur rokið upp úr öllu hófi. Þannig kynntu borgaryfirvöld í liðinni viku að skrifað hefði verið undir „lóða- vilyrði“ fyrir um 2.000 íbúðir fyrir „óhagnaðar- drifin“ íbúðafélög. Borg- arstjóri gat af því tilefni komist í enn eina undir- ritunarmyndatökuna, en slíkar myndatökur hjálpa því miður ekkert þeim sem tekst ekki að finna húsnæði vegna for- dóma borgaryfirvalda í garð bygg- inga á nýjum svæðum. - - - Meðal þeirra svæða sem borgar- stjóri veitir nú „lóðavilyrði“ fyrir er Skerjafjörðurinn, sem borg- in getur ekki byggt upp eins og innviðaráðherra hefur bent á, og stokkurinn sem borgarstjóri ætlar að setja undir Miklubraut, sami stokkur og hann lofaði hátíðlega fyr- ir síðustu kosningar! - - - Verkalýðsarmur Sósíalistaflokks- ins, Efling, áttar sig á vand- anum en telur að hann verði leystur með því að hækka húsaleigubætur umtalsvert. Við núverandi aðstæður á húsnæðismarkaði er þó líklegt að þær bætur yrðu aðallega til að auka enn þrýstinginn á húsnæðisverðið. - - - Það sem þarf er að brjóta nýtt land undir byggingar og það þarf að gera strax. Mosfellsbær kynnti metnaðarfullar hugmyndir í því sambandi á dögunum. Reykja- víkurborg gæti gert það einnig ef vilji væri til staðar að leysa vandann. Kosninga-„vilyrði“ leysa ekki vandann STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hátt verð á fiskmörkuðum hefur glatt strandveiðisjómenn í upphafi vertíðar. Margir voru á sjó í gær, skip og bátar af ýmsum stærðum og gerðum. Alls reyndust þau vera 681 samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Að meðaltali fengust 380 krónur fyrir kílóið af óslægðum þorski fyrstu fjóra daga strandveiða en 249 krónur á sama tíma í fyrra og 229 krónur í upphafi vertíð- ar 2020. Strandveiðibátar máttu byrja róðra 2. maí, en tíðarfar var víða erfitt í síðustu viku og dagsaflinn að meðaltali minni en í fyrra. Í lok vikunnar höfðu 513 fengið tilskilin leyfi, en 383 landað afla. Aðeins fleiri eru komnir með leyfi núna heldur en í fyrra, en aðeins færri hafa landað afla. Langflestir hafa til þessa róið á A-svæði frá Arnar- stapa til Súðavíkur eða rúmur helmingur. 135 hafa landað grásleppu Aflahæsti báturinn á grásleppuvertíð- inni er Fönix BA, sem var kominn með 59,5 tonn um helgina. Meðaltalið er hins vegar 21,6 tonn á bát, en var 37,3 tonn í fyrra. 135 bátar hafa landað afla á grá- sleppuvertíðinni, nokkru færri en í fyrra. Margir þeirra hafa lokið vertíð, sem mátti hefjast 20. mars og standa í 25 daga sam- fellt frá því að net voru lögð. Alls hafa 677 tonn af grásleppu verið seld á fiskmörkuðum, 29% minna en í fyrra. Verðið er hins 25% hærra í ár eða 169 krónur á kíló að meðaltali, en var 135 krónur í fyrra. aij@mbl.is Gott verð í upphafi strandveiða - Margir á sjó í gær - Aflahæsti grásleppubáturinn kominn með tæp 60 tonn Opinber heimsókn forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, hefst í dag í Þinganesi í Þórshöfn þar sem Guðni fundar með lögmanni Fær- eyja, Bárði á Steig Nielsen. Þaðan liggur leiðin til Eiðis á Austurey þar sem forseti heimsækir Sigrúnu Gunnarsdóttur myndlistarkonu sem tekur á móti honum í stúdíói sínu og segir frá list sinni, að því er segir í tilkynningu. Næst verður haldið til Syðrigötu, þar sem forseti hittir Ósbjørn Ja- cobsen, aðalarkitekt tónlistarhúss- ins Hörpu í Reykjavík. Loks verður ekið til Glyvrar á Austurey, þar sem forseti á hádegisverðarfund með bæjarstjóra Rúnavíkur, Tor- bjørn Jacobsen. Síðdegis á forseti fund í sendiráðsbústað Íslands í Þórshöfn með hópi Færeyinga sem komu að frækinni björgunaraðgerð eftir flugslysið í Mykinesi 26. sept- ember árið 1970. Þá brotlenti vél Flugfélags Ís- lands með þeim afleiðingum að átta manns lét- ust en 26 var bjargað. Þess verður minnst að rúm 50 ár eru nú liðin frá atburð- inum. Á morgun á Guðni fund með borgarstjóra Þórshafnar, Heðin Mortensen, í ráðhúsinu. Að þeim fundi loknum flýgur forseti til Mykiness þar sem gengið verður á fjallið Knúk að minnisvarða sem reistur hefur verið um flugslysið og björgunina. Þá býður bæjarstjór- inn í Mykinesi til hádegisverðar en síðdegis heldur forseti loks að Vág- um og flýgur þaðan til Keflavíkur. Forsetinn heim- sækir Færeyjar - Stíf dagskrá í tveggja daga ferð Guðni Th. Jóhannesson Í Reykjavíkurbréfi um liðna helgi var nefndur til sögunnar heiðurs- konsúll í Minnesota, Örn Arnar læknir, en var þar rangnefndur. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTTING Rangt nafn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.