Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 10

Morgunblaðið - 10.05.2022, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Engin stór átakamál blasa við fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ. Ásgeir Sveinsson odd- viti Sjálfstæðisflokksins segir fjár- málin standa nokkuð vel þrátt fyrir mikið tekjufall í heimsfaraldrinum en samkvæmt langtímafjárhagsáætlun verður hægt að greiða upp skuldir bæjarins samhliða mikilli uppbygg- ingu. Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokksins er þó ekki á sömu línu en hann telur bæjarstjórn hafa farið offari og að ákvarðanataka hennar líkist þeirri sem var uppi rétt fyrir hrun. Hann viðurkennir þó að ekki sé auðsótt að skera niður kostnað og því mikil áskorun fyrir höndum. Meirihlutinn staðnaður Í Mosfellsbæ geta kjósendur valið milli sjö framboðslista fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en oddvitar þeirra sátu fyrir svörum í kosninga- þáttum Dagmála sem koma út í dag. Frambjóðendur tókust á um ýmis málefni en í brennidepli voru skóla- og skipulagsmál. Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjórn segja þreytu komna í íbúa eftir stjórnarsamstarf Vinstri-grænna og Sjálfstæðisflokksins sem á rætur að rekja til ársins 2006. Stöðnun sé farin að einkenna rekstur bæjarfélagsins og ákall sé eftir breytingum. Ásgeir segir samstarfið þó ganga afar vel og ekkert hafi komið upp í aðdraganda kosninga sem kalli á uppstokkun meirihlutans. Þá hafi samstarf við minnihlutaflokkana einnig verið gott. Bærinn vaxi ekki of hratt Allir oddvitar virðast sammála um að áhersla á uppbyggingu sé nauð- synleg enda fjölgi íbúum bæjarins ört. Þeim ber þó ekki saman um hvort vel hafi tekist við að hafa hemil á þessari þróun eða hvort vaxtaverk- ir séu farnir að segja til sín. Ásgeir telur innviði hafa náð að fylgja fjölgun íbúa nokkuð vel. Til að mynda séu skólamál í góðum farvegi og dagvistarúrræði fyrir hendi fyrir öll börn frá 12 mánaða aldri. Halla Karen Kristjánsdóttir odd- viti Framsóknar er ekki sammála en hún telur áherslu bæjarstjórnar á uppbyggingu hafa gert það að verk- um að viðhald innviða og þjónusta við íbúa hafi verið vanrækt. Segir hún jafnframt mikilvægt að klára fram- kvæmdir sem þegar séu hafnar áður en ráðist verður í nýjar. Hröð afgreiðsla fyrir kosningar Á mánudaginn í síðustu viku náðist samkomulag milli Mosfellsbæjar og dótturfyrirtækis Arion banka, Blika- staðalands ehf., um uppbyggingu íbúðabyggðar í Blikastaðalandi, þar sem gert er ráð fyrir 3.500 til 3.700 nýjum íbúðum. Fulltrúar meirihlutans töldu já- kvætt að samkomulagið væri í höfn enda myndi landeigandi koma að uppbyggingu innviða á borð við skólahúsnæði og gatnagerð. „[Land- eigandi] greiðir einfaldlega í bein- hörðum peningum fleiri, fleiri millj- arða,“ segir Bjarki Bjarnason oddviti Vinstri-grænna. Það kvað við annan tón hjá minni- hlutanum sem gagnrýndi harðlega þá hröðu afgreiðslu sem málið fékk og þann skamma tíma sem þeim gafst til að kynna sér efni samnings- ins. Gagnrýnin beindist fyrst og fremst að vinnubrögðunum en ekki samningnum sjálfum. „Ég var á skipulagsnefndarfundi föstudeginum áður þar sem fulltrúar frá Arion banka komu og voru að kynna fyrir okkur hvað þeir væru komnir með. Það var ekki hikstað upp að við ættum von á samningi þar sem væri búið að ganga frá niður í smáatriði um allar greiðslur,“ segir Lovísa Jónsdóttir oddviti Viðreisnar. Land bæjarstjóra skipulagt Í þættinum rifjar Sveinn Óskar jafnframt upp samningagerð um uppbyggingu lands, sem átti sér stað fyrir rúmum tíu árum, þar sem hann telur að ekki hafi verið gætt að jafn- ræði. „Ég sagði það í öðrum viðtalsþætti að þessi tímabil sem ég hef verið í Mosfellsbæ hafa aðallega gengið út á það að skipuleggja land tveggja bæj- arstjóra. Leirvogstungan fyrir Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Hulduhólarnir fyrir bæjarstjórann.“ Hann segir annað land hafa verið í boði á sama tíma sem hét Helgafells- land en eigendur þess hafi verið frystir úti. „Þetta gerði það að verkum að þau gátu hesthúsað fjármagn þegar þeir náðu að selja þessar lóðir sem þeim tilheyrðu. Hún átti spildu hún Ragn- heiður í Leirvogstungu og Hulduhól- ar eru í eigu fjölskyldu bæjarstjór- ans. Ég segi einfaldlega að þetta er því miður að halda áfram.“ Telur hann mikilvægt að brjóta þetta niður þar sem mikilvægt sé að fá íbúa með til samráðs við þéttingu. Bærinn breytist ekki í svefnbæ Ekki bar mikið á áhyggjum þegar fulltrúar meirihlutans voru spurðir út í fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut sem mun leiða hluta um- ferðar fram hjá bænum. Samkvæmt greiningu sem var gerð á kjörtímabilinu halda um 20% af allri umferð sem fer í gegnum Mosfellsbæ áfram norður. Oddviti Sjálfstæðisflokksins telur Mos- fellsbæ því enn eiga eftir að njóta góðs af þeim ferðalöngum sem stefna á að fara Gullna hringinn, þar sem þeir skipi stóran hluta þeirra sem eiga leið í gegnum bæinn. „Við þurfum ekki að hræðast það að Mosfellsbær breytist í einhvern svefnbæ þó að Sundabraut komi,“ segir Ásgeir. Áskorunin nú sé að skapa fleiri spennandi staði í bænum til að fá ferðamenn til að stoppa. Í því samhengi benti Anna Sigríð- ur oddviti Samfylkingarinnar á að til framtíðar litið væri ekki lífvænlegt að bensínstöðvar væru í hjarta bæj- arins. Öflugt og færanlegt teymi Málefni skóla komu einnig oft upp í þættinum en flestir oddvitar voru sammála um mikilvægi þess að leggja áherslu á uppbyggingu skóla- starfs og m.a. finna stærra rými fyrir Listaskóla Mosfellsbæjar. Anna Sigríður vakti athygli á því að erfitt væri fyrir börn að fá aðstoð í skólum nema læknisfræðileg grein- ing lægi fyrir, sem oft tæki marga mánuði að fá. „Við verðum að fara að grípa börnin okkar miklu fyrr og við viljum að sveitarfélagið taki það að sér. Við erum að fara að ná í fólk með mismunandi sérfræðiþekkingu, þroskaþjálfa, talmeinafræðinga og sálfræðinga.“ Dagný Kristinsdóttir, oddviti framboðslista Vina Mosfellsbæjar, telur mögulegt að koma á fót öflugu teymi sérfræðinga sem geta farið á milli skóla í bæjarfélaginu. Engin hætta á „svefnbæ“ - Minnihlutinn í Mosfellsbæ segir ákall eftir breytingum - Uppbygging nauðsynleg en ekki má vanrækja þjónustu - Hröð afgreiðsla rétt fyrir kosningar - Bæjarstjóri hafi skipulagt eigið land Morgunblaðið/Ágúst Ólíver Mosfellsbær Oddvitar virtust nokkuð samstiga hvað varðar áherslur flokkanna fyrir næsta kjörtímabil. Breytingar Oddvitar flokka minnihlutans töldu stjórnarsamstarf meirihlutans hafa runnið sitt skeið. Alls hafa 10.013 manns greitt at- kvæði utan kjörfundar í sveitar- stjórnarkosningunum sem fara fram núna á laugardaginn. Á höf- uðborgarsvæðinu hafa 6.576 at- kvæði verið greidd. Þetta segir Sigríður Kristins- dóttir, sýslumaðurinn á höfuðborg- arsvæðinu, í samtali við Morgun- blaðið. Alls höfðu 4.608 manns kosið á sama tíma í sveitarstjórnarkosning- unum á höfuðborgarsvæðinu árið 2018. Þannig hafa um 30% fleiri kosið núna. Í samtali við Morgunblaðið sagði Sigríður að talsverð umferð hefði verið á kjörstað í gær, meiri en um helgina. Bjóst hún við að við lok dags hefðu í kringum 7.000 manns greitt atkvæði á höfuðborgarsvæð- inu. Fyrir rúmri viku greindi Morg- unblaðið frá því að samtals 1.839 hefðu greitt atkvæði hjá sýslu- manninum á höfuðborgarsvæðinu en 2.537 á landinu öllu. Því hafa alls um 7.500 manns kosið síðustu vik- una. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á höfuðborgarsvæðinu er í Holta- görðum á 2. hæð. Opið er frá 10-22 alla vikuna, en 9-17 á kjördag. Frekari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má nálgast hjá sýslumönnum um land allt. Rúmlega 10.000 manns kosið utan kjörfundar á öllu landinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Holtagarðar Salka Sól söngkona er búin að kjósa utan kjörfundar. - 30% fleiri kosið en í sveitarstjórnarkosningum 2018 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.