Morgunblaðið - 10.05.2022, Qupperneq 11
DAGMÁL
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Áhersla á náttúruverndar- og lofts-
lagsmál aðgreinir Vinstrihreyfinguna
– grænt framboð fyrst og fremst frá
öðrum meirihlutaflokkum í Reykja-
víkurborg að mati Lífar Magneu-
dóttur, oddvita framboðsins. Líf er
gestur Karítasar Ríkharðsdóttur í
Dagmálum.
„Við Vinstri-græn erum svolítið
þannig að við komum fram með eitt-
hvað, fyrst flokka, sem verður svo
meginstraumsstefna. Þannig að við
þurfum oft að finna upp hjólið. En svo
er ótal margt sem við erum ein með.
Til dæmis niðurfelling gjalda í
menntakerfinu,“ segir Líf enn frekar
um aðgreiningu Vinstri-grænna og
annarra flokka í meirihlutasamstarf-
inu en ítrekar að Vinstri-græn séu
eini flokkurinn sem talar um náttúru-
verndarmál í þessari kosningabar-
áttu.
Vinstri-græn boða gjaldfrjálsa
leikskóla í borginni ásamt gjald-
frjálsum skólamáltíðum. Það var
einnig eitt helsta áherslumál flokks-
ins fyrir síðustu kosningar en hefur
ekki komið til framkvæmda á kjör-
tímabilinu. Spurð að því hvernig
Vinstri-græn ætla að tryggja fram-
gang sinna áherslna inn í meirihluta-
samstarf segir Líf að gjaldfrjálsir
leikskólar hafi verið áherslumál
flokksins frá því fyrir hrun en þá hafi
ekki verið hljómgrunnur fyrir slíkri
breytingu.
„Árið 2014 fórum við fram með
þetta og vorum meira að segja búin
að reikna út hvernig við ætluðum að
gera þetta. Okkur tókst að lækka
álögur og okkur tókst það líka árið
2018. Þannig að við erum að stíga
þessi skerf,“ segir Líf.
Líf segir leikskólagjöld í Reykjavík
lægst á landinu og að gjaldið nemi um
sjö prósentum af raunvirði þess að
hafa barn í leikskóla. „Við erum að
stíga í áttina að þessu en að lokum
viljum við Vinstri-græn afnema með
öllu gjaldtöku í menntakerfinu.“ Líf
segir að síðast þegar samið var um
meirihlutasamstarf hafi leikskóla-
gjöld verið flókið viðfangsefni þar
sem Viðreisn hafi ekki verið hlynnt
því að lækka leikskólagjöld. „En
núna er Viðreisn farin að tala um sex
tíma gjaldfrjálsa fyrir fimm ára
börn.“
Líf segir að allir flokkar vilji brúa
bilið á milli fæðingarorlofs og leik-
skólavistar barna. „Þetta er svo ótrú-
lega margþætt.“ Líf segir að launa-
stefna fyrir starfsfólk í leikskólum sé
stór þáttur í fjölgun leikskólaplássa.
Þá er viðunandi húsnæði fyrir starf-
semina einnig áskorun. „Við erum
með plön, þau eru að ganga eftir og
við getum tekið inn 12 mánaða börn í
haust,“ segir Líf.
Spurð hvort 12 mánaða börn muni
fá pláss í eigin hverfum segir Líf að
það sé ekki tryggt en það sé verk-
efnið fram undan. Gert sé ráð fyrir
ungu börnunum í ungbarnadeildum
og færanlegum einingum sem einnig
hafa verið kallaðar ævintýraborgir.
„Leikskólinn var ekki hannaður fyrir
ung börn, þannig að við þurfum að
fara í miklar breytingar sem þegar
eru komnar af stað til þess að búa til
leiksvæði fyrir ung börn og vist-
arverur sem henta þeirra þroska.
Spáir fleiri myglumálum
Við höfum fengið ýmislegt í fangið,
heldur betur,“ segir Líf þegar heil-
næmi skólahúsnæðis er nefnt. Hún
segir stöðuna á skólahúsnæði borg-
arinnar ekki góða og spáir því að
fleiri tilfelli muni koma upp þar sem
mygluvandamál stríða reykvískum
börnum. Hún segir að mikill lærdóm-
ur hafi verið tekinn út úr málefnum
Fossvogsskóla og harmar hversu
hægt afgreiðsla ýmissa mála tengdra
honum gekk. Verkferlar sem hafi þá
verið mótaðir eða skerpt á hafi virkað
vel þegar ámóta mál kom upp í Haga-
skóla.
Líf segir að sér þyki eðlilegt að
kanna möguleika á áframhaldandi
samstarfi haldi meirihlutinn. Líf vill
verða borgarstjóri í Reykjavík og tel-
ur að hún yrði frábær í hlutverkinu.
Morgunblaðið/Ágúst Óliver
Oddviti Líf Magneudóttir leiðir lista VG í Reykjavík. Hún telur að hún yrði frábær borgarstjóri ef það býðst.
Vilja gjaldfrjálsa leik-
skóla og skólamáltíðir
- Líf Magneudóttir leggur áherslu á niðurfellingu gjalda
11
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fundur Sigmundur Davíð og odd-
vitar Miðflokksins ræddu skipulags-
mál á höfuðborgarsvæðinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Miðflokksins segist sann-
færður um að Miðflokkurinn sé eini
flokkurinn sem geti haft raunveru-
leg áhrif í Reykjavík og sá eini sem
treysti sér til að koma með inngrip
til að stoppa kerfismál líkt og borg-
arlínuna. Samgöngumál voru rædd
á opnum fundi með Sigmundi í gær.
Þá segir Sigmundur borgarstjór-
ann í Reykjavík mega eiga það að
hann viti hvernig hægt sé að gera
mál að kerfismálum. „Núna er til
dæmis þessi borgarlína orðin að al-
gjöru kerfismáli, búið að ráða verk-
fræðistofu, búið að búa til stofnanir
og fá fólk til vinnu sem hefur hag af
því að verkefnið haldi áfram,“ segir
Sigmundur og bætir við að kerfið
virki þannig að þegar eitthvað er
komið af stað þá sé reynslan sú að
erfitt sé að stoppa það.
„Þegar það er búið að verja
vinnu í að undirbúa þetta og ráða
fólk í vinnu við það þá heldur það
yfirleitt bara áfram. Þannig að það
þarf eitthvert inngrip. Það þarf
eitthvað til að stoppa það af. Maður
sér þetta núna á mjög mörgum
sviðum í samgöngumálum á höfuð-
borgarsvæðinu að kerfið er farið af
stað og ég held að við séum ekki
með mjög marga stjórnmálamenn
sem treysta sér til að koma með það
inngrip sem þarf – nema auðvitað í
Miðflokknum.“
Miðflokkurinn sá eini sem
geti „haft raunveruleg áhrif“
- Segir erfitt að stoppa kerfið þegar það er komið af stað
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022
Aðalfundur
Samvinnufélagsins Hreyfils verður haldinn þriðju-
daginn 24. maí kl. 13:30 í þingsal á Hótel Natura.
DAGSKRÁ:
1. Athugað lögmæti fundarins
2. Skýrsla félagsstjórnar
3. Reikningar ársins 2021
4. Kosning í stjórn ofl.
5. Önnur mál.
Stjórn Hreyfils
Kolbrún Baldursdóttir, oddviti
Flokks fólksins í Reykjavík, segir
flokkinn vilja byrja á að mæta þörf-
um fólksins í Reykjavík og sérstak-
lega þeirra sem þurfi séraðstoð og
hafi sérþarfir. Þá þurfi að mæta
þörfum barnanna. „Síðan má fara að
stilla upp og fegra og laga til og eitt-
hvað slíkt.“
Hún segir ómælt fjármagn hafa
farið í fjárfrek verkefni „sem hafa
tekið milljarða og svo er ekkert eftir
til að sinna fólkinu í borginni“. Þá sé
alltof stór hópur sem geti ekki sagst
einfaldlega vera í góðum málum og
eiga nóg fyrir sig og sína.
Umhugað um biðlistana
Á blaðamannafundi í gær lagði
flokkurinn áherslu á að útrýma bið-
listum í borginni. Langir biðlistar
væru eftir allri þjónustu á vegum
Reykjavíkurborgar, t.d. nauðsyn-
legri sálfræðiaðstoð fyrir börn, og
síðan eru biðlistar vegna skorts á
hjúkrunarrýmum.
„Mér er náttúrlega mjög umhug-
að um þessa biðlista sem ég er búin
að vera að berjast og lemjast með
mjög lengi, í mörg herrans ár, vegna
þess að ég hef verið að hitta þetta
fólk bæði sem sálfræðingur og líka
sem borgarfulltrúi þannig að ég vil
þessa biðlista burt. Það er til fjár-
magn og ég vil að þessu bruðli og só-
un verði hætt, forgangsraðað upp á
nýtt, spilin stokkuð upp á nýtt þann-
ig að við byrjum á að þjónusta fólk-
ið,“ segir Kolbrún í samtali við
Morgunblaðið.
Þá segir hún að flokkurinn vilji að
byggt verði sértækt húsnæði fyrir
fatlaða og að þjónustukjarnar fyrir
eldri borgara verði byggðir víðar um
borgina. Auk þess vill flokkurinn að
eldri borgurum sé hjálpað við að
vera lengur heima ef þeir kjósa það.
gunnhildursif@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Blaðamannafundur Flokkur fólksins kynnti stefnumál sín í gær.
Forgangsraða
verði upp á nýtt
- Vilja byrja á að mæta þörfum fólksins