Morgunblaðið - 10.05.2022, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.05.2022, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Stöðugildum hjá sveitarfélögum hef- ur á síðastliðnum tveimur árum fjölgað um 1.900 en starfandi á öllum vinnumarkaðinum aðeins um 900. Fjölgun hjá sveitarfélögum nemur því um 8,5% á sama tíma og störfum fækkaði á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í nýrri saman- tekt Viðskiptaráðs þar sem fjallað er heildstætt um sveitarstjórnar- stigið og fjármál sveitarfélaga. Í samantektinni, sem birt er á vef Viðskiptaráðs, kemur fram að laun og launa- tengd gjöld eru stærsti útgjalda- liðurinn í rekstri sveitarfélaganna og nema meira en helmingi allra út- gjalda. Laun og launatengd gjöld námu þannig 240 milljörðum króna árið 2020 sem samsvarar um 59% af heildarútgjöldum sveitarfélaga það ár. Þá kemur fram að frá árinu 2015 hefur hlutfall launakostnaðar af heildarútgjöldum sveitarfélaga vaxið um sex prósentustig og segir Við- skiptaráð að því hærra sem vægi launakostnaðar er í útgjöldum því minna sé til skiptanna í önnur mál- efni. „Miðað við rekstrarafkomu sveit- arfélaga eru þau í spennitreyju,“ segir Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, í samtali við Morgunblaðið aðspurð nánar um þennan lið. Sveitarfélög í spennitreyju „Það virðist vera lögmál, alveg sama hvernig árar, og það er skrýtið að sjá að efnahagslegur uppgangur virðist hafa lítil áhrif á afkomu sveit- arfélaganna. Launakostnaður þeirra hefur aukist mikið undanfarin ár og á fjármálaráðstefnu sveitarfélag- anna fyrir ári kom fram að laun og tengd gjöld næmu 99% af útsvars- tekjum sveitarfélaganna í fyrra, úr 87% árið 2018,“ segir hún. Í saman- tektinni kemur fram að þess séu dæmi að sveitarfélög hafi yfirboðið fyrirtæki á markaði, til dæmis hvað viðkemur tæknilegum störfum á borð við verkfræðistörf. Í könnun meðal aðildarfélaga Viðskiptaráðs svöruðu 39% fulltrúa fyrirtækja því til að starfsmaður hefði sagt starfi sínu lausu vegna starfs sem viðkom- andi bauðst hjá hinu opinbera. Hægt að draga úr kostnaði Fram kemur að umsvif á sveitar- stjórnarstiginu hafi aukist á liðnum árum. Það er þó mat Viðskiptaráðs að afkoma sveitarfélaganna hafi samt sem áður verið neikvæð um árabil og ljóst að rekstur þeirra sé ekki sjálfbær, heilt á litið. Hvort tveggja, tekjur og útgjöld, hefur far- ið vaxandi á kjörtímabilinu. „Sveitarfélög eiga að tryggja að íbúar þeirra fái margvíslega þjón- ustu en það er ekkert sem segir að þau þurfi að sinna henni öll sjálf, með eigin starfsfólki,“ segir Svanhildur. „Af hverju gera sveitarfélög ekki fleiri samninga um rekstur t.d. skóla og leikskóla, þótt þau eigi húsnæðið? Af hverju að ráða stöðugt fleiri sér- fræðinga í stað þess að kaupa þjón- ustu hjá einkaaðilum eins og verk- fræðistofum og upplýsingatækni- fyrirtækjum, svo dæmi sé tekið, í stað þess að stofna sín eigin hug- búnaðarhús? Þetta myndi skapa meiri sveigjanleika í starfsemi sveit- arfélaga, auka valfrelsi íbúa og gera vinnumarkaðinn fjölbreyttari fyrir fólk í ýmsum atvinnugreinum og af því að við vitum að einkageirinn leggur meiri áherslu á framleiðni en hið opinbera. Með því er hægt að draga verulega úr kostnaði.“ Hærri fasteignaskattar Einnig kemur fram að fasteigna- skattar hér á landi eru mun hærri en í þeim ríkjum sem við alla jafna berum okkur saman við. „Þetta eru eignaskattar sem leggjast þungt á fólk og fyrirtæki, sem borga um sex sinnum hærra hlutfall af atvinnuhúsnæði en einstaklingar af íbúðarhúsnæði,“ segir Svanhildur. Telja rekstur sveitarfélaga ósjálfbæran til lengri tíma Morgunblaðið/Unnur Karen Sveitarfélög Viðskiptaráð telur að hægt sé að spara töluvert fjármagn með því að kaupa meira af aðkeyptri þjónustu. Sveitarfélög » Ísland er Norðurlandamet- hafi í hækkun á fasteigna- sköttum. » Aðeins 20% sveitarfélaga innheimta ekki hámarksút- svar. » Aðeins eitt sveitarfélag hefur lækkað útsvarsprósentu á kjörtímabilinu. » Stöðugildum í höfuðborg- inni fjölgaði um 13,5% milli áranna 2019 og 2021, eða um næstum 1.000. » Viðskiptaráð telur að fleiri sveitarfélög þurfi að samein- ast. - Viðskiptaráð birtir ítarlega samantekt um rekstur og stöðu sveitarfélaga Svanhildur Hólm Valsdóttir 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 2022 Faxafeni 14 108 Reykjavík www.z.is GJAFAVARA FRÁ LAURA ASHLEY ER TILVALIN BRÚÐKAUPSGJÖF 10. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.84 Sterlingspund 161.52 Kanadadalur 101.99 Dönsk króna 18.589 Norsk króna 13.857 Sænsk króna 13.211 Svissn. franki 132.74 Japanskt jen 1.0029 SDR 175.47 Evra 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.7814 « Bandaríski tóbaksframleiðandinn Philip Morris International á nú í við- ræðum um kaup á sænska tóbaksfram- leiðandanum Swedish Match. Sam- kvæmt frétt Wall Street Journal (WSJ) er talið að andvirði viðskiptanna sé um 15 milljarðar bandaríkjadala. Swedish Match er verðmetið á um 12 milljarða dala en markaðsvirði Philip Morris er um 154 milljarðar dala. Ein helsta framleiðsluvara Swedish Match eru sænsku munntóbakspok- arnir, sem í daglegu tali eru kallaðir snús, en þá hefur félagið einnig verið umsvifamikið í framleiðslu á tóbaks- lausum nikótínvörum, þá helst nikótín- púðum undir vörumerkinu ZYN. Púðarnir hafa notið vinsælda í Banda- ríkjunum og jókst innflutningur um rúm 50% á milli ára í fyrra. Tilgangur kaupanna er sagður áhugi Philip Morris á níkótínvörum Swedish Match. Philip Morris hefur áður lýst því yfir að félagið vilji framleiða meira af tóbakslausum nikótínvörum, sem valda mun minni skaða en tóbaksvörur. Félagið stefnir að því að um helmingur tekna þess árið 2025 komi af sölu á tóbakslausum vörum, en samkvæmt uppgjöri síðasta árs komu um 30% tekna félagsins til af slíkum vörum. Tóbaksframleiðendur hafa í auknum mæli horft til framleiðslu á tóbaks- lausum nikótínvörum á liðnum árum. Þannig hefur British-American To- bacco (BAT) framleitt og selt bæði raf- sígarettur og nikótínpúða sem notið hafa mikilla vinsælda á Vesturlöndum. Philip Morris vill nikótín- vörur Swedish Match STUTT Töluverð lækkun varð á hlutabréfum í Kauphöllinni í gær, sem bætist ofan á þá lækkun sem varð á liðinni viku. OMXI10-úrvalsvísitalan lækkaði um 3,16% í gær og hefur nú lækkað um 7,3% á einni viku og 10,6% á einum mánuði. Öll tíu félögin í úrvalsvísitöl- unni lækkuðu en Arion banki, sem lækkaði um 4,2%, og Icelandair, sem lækkaði um 4,1%, leiddu lækkanir dagsins. Icelandair hefur nú lækkað um 11,5% á einni viku. Þá lækkaði Eimskip um 3,9% í gær og hefur lækkað um 10% á einni viku. Mest var velta með bréf í Íslands- banka, eða um 2,7 milljarðar króna. Þá nam velta með bréf í Marel um 1,1 milljarði. Marel heldur áfram að lækka þótt lækkunin í gær hafi ekki verið nema 2,7%. Félagið hefur nú lækkað um 25,6% frá áramótum. Gengi Marel er nú 650 kr. á hvern hlut og hefur ekki verið lægra í tæp tvö ár, eða frá því í júní 2020. Hæst fór það í rúmar 970 kr. á hvern hlut í lok ágúst á síðasta ári. Önnur félög, sem ekki mynda úrvalsvísitöluna, hafa einnig lækkað nokkuð. Origo lækkaði um 4,8% og Skel um 4,7%. Viðmælendur Morgunblaðsins af markaði kunna enga eina skýringu á þeim lækkunum sem orðið hafa á liðnum dögum. Flestir eru þó sam- mála um að rýna beri í veltutölur, og benda á að oft þurfi litlar upphæðir til að hreyfa við markaðnum. Þannig hafi aðeins þurft um 38 milljónir króna til að lækka gengi bréf í Origo um 4,8% í gær og 25 milljónir króna til að lækka Skel um 4,7%, svo tekin séu nýleg dæmi. Morgunblaðið/Þórður Oft þarf ekki mikla veltu til að hreyfa verulega við hlutabréfum. Rauðar tölur í Kauphöllinni - Gengi Marel hefur lækkað um rúm 25% á árinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.