Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.05.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ný fræðsluskilti um fuglalíf við Urriðavatn voru vígð með formlegum hætti, en skiltin má finna víðs vegar í kringum vatnið. Skiltin eru samstarfsverkefni Toyota á Íslandi og Garðabæjar og kynntu þeir Gunnar Ein- arsson bæjarstjóri Garðabæjar og Úlfar Þor- móðsson forstjóri Toyota skiltin. Fjölbreytt fuglalíf er við vatnið, og munu skiltin eflaust koma sér vel fyrir fuglaskoðara og aðra gesti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fræðsluskilti um fuglalíf Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn- arflokkurinn slitu viðræðum við Bæj- arlistann á Akureyri í gærkvöldi. Bæjarlistinn er með þrjá fulltrúa en hinir tveir flokkarnir með tvo fulltrúa hvor. Heimir Örn Árnason, oddviti og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ástæðu slitanna vera þá að flokkarnir hafi ekki náð saman. Innt- ur eftir því hver helstu ágreiningsefn- in voru segir hann að það hafi verið svo margt. Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn deili sambærilegri sýn og muni þeir því fylgjast að í framhaldinu. Að sögn Huldu Sólveigar Jóhanns- dóttur, bæjarfulltrúa Bæjarlistans, hófu fyrrnefndir flokkar viðræður við Miðflokkinn og Samfylkinguna á bak við Bæjarlistann. Hana grunar að þeir hafi aldrei ætlað sér í samstarf við Bæjarlistann, enda óttist þeir styrk hans. Kópavogur kemur í ljós í dag Í Kópavogi hélt meirihlutinn, en Framsóknarflokkurinn bætti við sig og hefði getað snúið sér í ólíkar áttir. Óformlegt samtal hófst milli B- og D-listans, sem funduðu í gærkvöldi og ætla sér að funda aftur í dag. Ásdís Kristjánsdóttir, oddviti og bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir samtalið ganga vel, en þau séu enn að fara yfir málefnin og máta þau saman. Gengur vel í Hveragerði Í Hveragerði ganga viðræður milli Okkar Hveragerðis og Fram- sóknarflokksins vel, að sögn Jóhönnu Ýrar Jóhannsdóttur, bæjarfulltrúa og oddvita Framsóknarflokksins. Hún var einmitt stödd á fundi með oddvita Okkar Hveragerðis þegar blaðamað- ur náði af henni tali. Boðar fréttir fyrir helgi Búast má við fréttum þegar nær dregur helgi, að sögn Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarfulltrúa og odd- vita Framsóknarflokksins í Reykja- nesbæ. Þar hélt meirihlutinn velli eft- ir kosningar og því eðlilegt að hennar mati að óformlegt samtal eigi sér stað milli flokkanna sem saman mynduðu þann meirihluta, þ.e. Framsóknar- flokksins, Samfylkingarinnar og Beinnar leiðar. „Við erum bara að fara yfir síðasta kjörtímabil og máta málefnin.“ Margir í meirihluta í Mosó Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Vinir Mosfellsbæjar og Samfylkingin munu hefja viðræður á næstu dögum um mögulega meirihlutamyndun í Mosfellsbæ. Samanlagt náðu fram- boðin inn sjö kjörnum fulltrúum af ellefu. Meirihluti Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokksins, sem hefur verið í bæjarstjórn í tæpa tvo áratugi, var felldur í nýafstöðnum kosningum og Framsóknarflokkurinn bætti við sig fjórum bæjarfulltrúum. Þannig var pálminn í hendi oddvita Framsókn- arflokksins, Höllu Karenar Kristjáns- dóttur, sem þótti eðlilegast að snúa sér frá föllnum meirihluta. Ef flokk- unum tekst að mynda umræddan meirihluta verður Sjálfstæðisflokkur- inn þó einn í minnihluta. Endurtalið í Garðabæ Talið verður upp á nýtt í Garðabæ í dag. Verður það gert að ósk Garð- arbæjarlistans, enda munaði örfáum atkvæðum að þeir næðu inn manni til viðbótar. Nánar tiltekið þriðja mann- innum, sem kæmi til með að vera á kostnað sjöunda manns Sjálfstæðis- flokksins sem hlaut 49,1 prósent at- kvæða, en sjö af ellefu kjörnum fulltrúum í Garðabæ. Lítið er að frétta úr Hafnarfirði, en óformlegar þreifingar eru hafnar þar milli Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins um áframhaldandi samstarf. Viðræðum slitið á Akureyri - Framsókn og D-listi í Kópavogi fara áfram yfir málefnin í dag - Dregur til tíðinda í Reykjanesbæ fyrir helgi - Endurtalning í Garðabæ - Sjálfstæðisflokkurinn einmana í Mosfellsbæjarminnihluta Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Akureyri Næstu meirihlutaviðræður á Akureyri verða líklega á milli Fram- sóknarflokks, Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Samfylkingarinnar. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Verðandi og nýbökuðum foreldrum stendur til boða vöggugjöf frá Lyfju sem er unnin með Ljós- mæðrafélagi Íslands. Um er að ræða pakka með pela, snuðum, ýmsum kremum og vítamínum, lekahlífum og barnatannbursta, svo eitthvað sé nefnt, að verðmæti tíu þúsund króna. Þá fylgir einnig bæklingur með gagnlegum greinum fyrir nýbakaða foreldra. Er þetta í þriðja skipti sem Lyfja gefur vöggugjafir sem þessa og að sögn Sigurlaugar Gissurardóttur, vefstjóra Lyfju, verða þær veglegri með hverju árinu. Þar að auki er markmiðið að gefa öllum nýburum á Íslandi svona vöggugjöf. Gefa aftur í haust Í byrjun vikunnar gaf Lyfja tvö þúsund vöggugjafir sem kláruðust á innan við sólarhring. Var því ákveðið að annar eins skammtur yrði gefinn í haust. Þannig mun Lyfja hafa gefið fjögur þúsund vöggugjafir í ár, en á síðasta ári fæddust rúmlega fjögur þúsund börn á Íslandi. Foreldrar geta nálgast gjafirnar með því að panta þær á vefsíðu Lyfju og sækja svo í næstu verslun, eða þá óska eftir heimsendingu. „Það er greinilegt að foreldrar kunna vel að meta Vöggugjöfina og nú vinnur starfsfólk Lyfju hörðum höndum að því að afhenda Vöggu- gjöfina í verslunum Lyfju um land allt.“ Sigurlaug segir að Lyfja geri ráð fyrir einni gjöf á hvert barn en við- urkennir að fyrirtækið geti ekki fylgst með því hvort einungis ný- bakaðir foreldrar séu að nýta sér þessa gjafmildi. „Við bara treystum fólkinu.“ Vöggugjafirnar kláruðust - Lyfja og Ljós- mæðrafélagið settu saman gjafir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Nýburi Markmiðið er að allir nýbak- aðir foreldrar fái vöggugjöf. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæ- fellsbæ, sagði í gær að Guðríðar- og Langabrekkuhópurinn muni gera kröfu um að þeim verði bætt það tjón sem þau hafa orðið fyrir vegna þjófn- aðarins á styttunni af Guðríði Þor- bjarnardóttur eftir Ásmund Sveins- son. Styttan er aftur komin á Snæfells- nesið en hefur ekki verið sett upp á ný. Kristinn sagði að ýmis kostnaður hefði fylgt þessu auk tíma, sem hann hefði varið í málið. „Það er eiginlega ótrúlegt að þurfa að finna gögn til að sanna eignarhaldið á styttunni en ég þurfti að gera það,“ sagði Kristinn, en það þarf m.a. að láta útbúa nýjar fest- ingar fyrir styttuna. Kristinn sagði einnig að í upphafi hefðu þau verið tilbúin til að láta gott heita ef fólk bæðist afsökunar og skilaði styttunni eftir að hafa náð þeirri athygli sem það vildi. „En það vildi ekkert við okk- ur tala. Við buðum fram hinn vangann en því var ekki vel tekið og nánast lát- ið eins og það kæmi okkur ekkert við að verkinu væri stolið af okkur. Við- brögð þeirra við okkar málaleitan fannst okkur mjög sérstök og þess vegna ætlum við ekki að gefa eftir.“ Munu krefjast bóta vegna tjónsins - Þóttu viðbrögðin mjög sérstök Kristinn Jónasson Fjögur verkefni hlutu í gær Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Ís- lands, sem veitt voru við hátíðlega athöfn. Veitt voru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokk- um, Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatning- arverðlaun. Auk þess var sigurveg- ari keppninnar valinn úr hópi verð- launahafa úr ofangreindum flokkum. Þau Vivien Nagy, doktorsnemi í lyfjafræði, og Már Másson prófessor fengu verðlaunin í flokknum Heilsa og heilbrigði, sem og heildar- verðlaunin fyrir aðferð, sem kemur í veg fyrir alvarlegar sýkingar á yf- irborði sílíkongræðslna og gerviliða. Nánar má lesa um verðlaunin og verðlaunahafa á mbl.is. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Verðlaunahafar Vivien Nagy, Már Más- son og Jón Atli Benediktsson rektor sem veitti verðlaunin. Fjögur verkefni verðlaunuð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.